Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 10
10 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Í febrúar síðastliðnum hóf ég störf hjá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði og
var ráðinn þar inn sem sérfræðingur á
sviði starfsendurhæfingar. Í þessari
grein ætla ég að fara yfir hlutverk,
stefnu og verkefni Starfsendur hæf
ingar sjóðs og einnig að koma inn á
hlutverk ráðgjafa á sviði starfsendur
hæfingar og hvernig staðan er í dag.
Stofnaðilar Starfsendurhæfingarsjóðs
eru: Alþýðusamband Íslands, Samtök
atvinnulífsins, Bandalag starfsmanna
ríkis og bæja, Bandalag háskólamanna,
Kennarasamband Íslands, fjármálaráð
herra, Reykjavíkurborg og launanefnd
sveitarfélaga. Sjóðurinn byggir á sam
komulagi um nýtt fyrirkomulag starfs
endurhæfingar í kjarasamningum á
vinnumarkaði á árinu 2008.
Stefnt er að því að í heild verði ráð
stafað 0,39% af launum til Starfs
endur hæfingarsjóðs. Í fyrsta áfanga
greiða atvinnurekendur 0,13% af
öllum launum og í öðrum áfanga sem
hefst á árinu 2009 er miðað við að
ríkissjóður leggi Starfsendur hæf ingar
sjóði til sömu upphæð og launa
greiðendur. Í þriðja áfanga sem hefst í
ársbyrjun 2010 er stefnt að því að
lífeyrissjóðir komi inn með sama
framlag og launagreiðendur.
Hjá VIRK starfa níu einstaklingar í
6,5 stöðugildum. Framkvæmdastjóri,
sjúkra þjálfari, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi,
endurhæfingarlæknir, hjúkrunar
fræðingur, kennslufræðingur og starfs
menn sem sjá um bókhald og skrif
stofuna.
Hlutverk og stefna
Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs
er að draga markvisst úr líkum á því að
launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna
varanlegrar örorku, með aukinni
virkni, eflingu endurhæfingar og
öðrum úrræðum.
Ef starfshæfni einstaklinga er skert
eða henni er ógnað vegna heilsubrests
geta þeir leitað aðstoðar hjá ráðgjöfum
stéttarfélaga um allt land. Þessir ráð
gjafar eru sérhæfðir í að aðstoða ein
staklinga við að efla færni sína og
vinnugetu. Þeir hafa einnig aðgang að
hópi ólíkra sérfræðinga og fjölbreyttri
þjónustu.
Verkefni
Starfsendurhæfingarsjóður skipu
leggur og hefur umsjón með störfum
ráðgjafa sem starfa á vegum stéttar
félaganna og munu aðstoða einstak
linga sem þurfa á endurhæfingu að
halda. Hann greiðir kostnaðinn af
störfum ráðgjafanna ásamt því að hafa
umsjón og eftirlit með starfi þeirra og
veita þeim faglegan stuðning.
Sérstök áhersla er lögð á snemmbært
inngrip með starfsendur hæfingar úr
ræðum í samstarfi við stéttarfélögin og
atvinnurekendur og kemur starfs
endur hæfingarsjóður til með að greiða
kostnað af ráðgjöf ýmissa fagaðila um
mótun sérstakrar einstaklingsbund
innar endurhæfingaráætlunar, svo sem
lækna, sál fræðinga, iðjuþjálfa, sjúkra
þjá l fa , fé lags ráðgjafa , náms og
starfsráðgjafa og svo framvegis.
Starfsendurhæfingarsjóður leggur
ríka áherslu á að eiga gott samstarf við
hags munaaðila í starfsendurhæfingu
um allt land, heilsugæslu, opinberar
stofn anir, fagaðila, stéttarfélög, lífeyris
sjóði og atvinnurekendur.
Hlutverk ráðgjafa í
starfsendurhæfingu
Eins og áður hefur komið fram mun
Starfsendurhæfingarsjóður greiða
kostnað af störfum ráðgjafanna og allir
ráðgjafarnir hafa sinn tengilið hjá
honum. Þaðan fá ráðgjafarnir faglegan
stuðn ing og leiðbeiningar varðandi þá
vinnu sem er í gangi vegna einstakling
anna. Þessi stuðningur getur meðal
annars verið á þann hátt að fara yfir
stöðu einstak lingana út frá þeim skim
unarlistum sem ráðgjafarnir nota og
meta næstu skref. Ef það er ljóst að
einstaklingurinn hefur þörf fyrir að
fara í greiningarviðtal hjá sálfræðingi
þarf ráðgjafinn að geta rökstutt það út
frá skimunarlistunum.
Allir ráðgjafarnir fá þjálfun og
kennslu. Þeir voru nýlega á vikunám
skeiði hjá okkur þar sem þeir voru
þjálfaðir í að nota þau verkfæri og þá
hug myndafræði sem við vinnum eftir.
Tengsl við atvinnurekendur
Starfsendurhæfingarsjóður leggur
áherslu á að eiga gott samstarf við
atvinnurekendur um allt land, sam starf
sem miðar að því að auka starfs hæfni
fólks á vinnumarkaði og styrkja þannig
atvinnulíf og samfélag. Atvinnu
rekendur geta leitað upplýs inga hjá
ráðg jö fum s té t ta r fé l aganna eða
sérfræðingum Starfs endur hæfingarsjóðs
um úrræði, vegna starfsmanna með
skerta vinnu getu eða langvinn veikindi.
Atvinnu rekendur geta einnig bent
starfsmönnum sínum á að hafa sam
band við ráðgjafa hjá stéttarfélögum ef
um er að ræða skerta vinnugetu.
VIRK
– Starfsendurhæfingarsjóður
■ Sigurður Þór Sigursteinsson,
sérfræðingur/iðjuþjálfi
Virk – Starfsendurhæfingarsjóður
www.virk.is