Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Side 12
12 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Fimm iðjuþjálfar frá Íslandi fóru á fyrsta norræna málþingið um
starfs endurhæfingu/atvinnuendur hæf
ingu (voc a tional rehabilitation) sem
haldið var í Helsinki 1. og 2. september
síðastliðinn Efni mál þingsins var:
Atvinnu endur hæf ing, matstæki og
markaðs setning (vocational rehabili
tation, assessment and marketing) og
skiptist dagskrá málþingsins í fyrir
lestra, pallborðs umræður og vinnuhópa
báða dagana. Margir virtir og þekktir
iðju þjálfar innan starfsendurhæfingar
voru með erindi en aðrir fundarmenn
tóku virkan þátt í umræðum og hóp
vinnu. Fundar menn voru sammála um
nauðsyn þess að skilgreina betur
hlutverk iðjuþjálfa í atvinnu endur
hæfingu og að vinna að því að mark
aðs setja og styrkja stöðu iðjuþjálfa
innan atvinnuendurhæfingar. Formenn
norrænu félaganna komu allir inn á
það hvernig niðurstaða mál þingsins
yrði þróuð áfram í viðkomandi félagi.
Til stendur að stofna faghóp iðjuþjálfa
innan atvinnuendurhæfingar á Íslandi.
Lýsandi lykilorð
Atvinnuendurhæfing, starfsendur
hæfing, norrænt málþing, faghópur
Dagana 1. og 2. september síðast
liðinn var haldið norrænt málþing í
Helsinki fyrir iðjuþjálfa sem vinna við
starfsendur hæfingu/atvinnuendur hæf
ingu (vocati onal rehabilitation).
Ákveðið hafði verið árið áður á fundi
formanna norrænu iðjuþjálfafélaganna
að halda norrænt málþing í tengslum
við formanna fundina og taka þá fyrir
ákveðið sérsvið innan iðjuþjálfunar.
Atvinnu endur hæfing varð fyrst fyrir
valinu. Gestir málþingsins voru alls 37
og skiptust nokkuð jafnt á Norður
löndin, flestir frá Finnlandi (11) og
fæstir frá Færeyjum (2). Tungumál
málþingsins var enska og efnið var:
Atvinnu endurhæfing, matstæki og
markaðs setning (vocational rehabili
tation, assessment and marketing).
Frá Íslandi fóru auk formanns og
varaformanns Iðjuþjálfafélags Íslands
(IÞÍ) höfundar þessa pistils. Ferðalagið
til Finnlands gekk snurðu laust. Flest
okkar voru að koma til Finnlands í
fyrsta skipti með ákveðnar væntingar
um glæsilegan arkitektúr og hönnun
sem Finnar eru frægir fyrir. Helsinki
olli svo sannarlega ekki vonbrigðum,
falleg borg, maturinn góður og Finnar
vingjarnlegir heim að sækja. Ekki
ósvipaðir Íslendingum að yfirbragði
fannst okkur!
Dagskrá málþingsins skiptist í
fyrirlestra, pallborðsumræður og vinnu
hópa báða dagana. Þeir sem héldu
fyrirlestra voru meðal annars Elin
Ekbladh og Jan Sandqvist, iðjuþjálfar
og f ræðimenn v ið háskólann í
Lindköping í Svíþjóð. Þau héldu
fyrirlestra um matstæki sem eru notuð
í Svíþjóð innan atvinnuendurhæfingar:
Fræðilegan grunn Assessment of Work
Performance (AWP), Assessment of
Work Characteristics (AWC), The
Worker Role Interview (WRI) og The
Work Environment Impact Scale
(WEIS) matstækjanna. Auk ávinn
ingsins af notkun fræðilegra matstækja
innan atvinnuendurhæfingar og
samþættrar notkunar WRIWEIS
(interviewed based instrument) og
AWPAWC (observat ion based
instrument).
Randi Wågø iðjuþjálfi og vísinda
maður (senior research scientist) frá
IRIS, Alþjóðlegu rannsóknarstofnun
inni í Stavanger, hélt fyrirlestur um
Helsinkifarar
– Norrænt málþing iðjuþjálfa í starfsendurhæfingu
■ Sif Þórsdóttir
iðjuþjálfi í atvinnulegri
endurhæfingu Reykjalundi
■ Sigurður Þór Sigursteinsson
sérfræðingur/iðjuþjálfi
Virk – Starfsendurhæfingarsjóður
■ Unnur St. Alfreðsdóttir
verkefnastjóri/iðjuþjálfi
Janus endurhæfing ehf