Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 14
14 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Hlutverkasetur var stofnað árið 2005 og hefur þar farið fram
atvinnuleg endurhæfing frá desember
2007. Meginmarkmið Hlutverkaseturs
er að styðja fólk til vinnu eða náms,
nýta þekkingu og reynslu fólks, auka
þátt töku þess í samfélaginu og skapa
hlutverk. Í Hlutverkasetri er þeim sem
misst hafa hlutverk sín vegna sál
félagslegra hindrana veittur stuðningur.
Hlutverk eru fólki mikilvæg og skil
greinir það sig eftir þeim hlut verkum
sem það sinnir, t.d. sem starfs maður,
nemandi, foreldri og svo framvegis.
Hlut verkin skapa daglega rútínu, gefa
tilgang og móta sjálfs myndina (Creek
og Lougher, 2008; Kielhofner, 2002,
2007). Hluti af atvinnulegu endur
hæfingunni er að styðja fólk til að
endurheimta fyrri hlutverk eða finna
sér ný, meðal annars með greiningar
vinnu, einstaklings stuðningi, viðtölum,
aðstoð við að setja markmið og fram
fylgja þeim, hópa vinnu og nám
skeiðum.
Í kjölfar efnahagshrunsins haustið
2008 dró úr eftirspurn í atvinnulega
endurhæfingu í Hlutverkasetri. Full
frískt fólk missti atvinnu sína í hrönn
um og þeir sem höfðu skerta starfsgetu
misstu vonina, trúðu ekki að þeir ættu
neitt erindi á atvinnu markaðinn. Upp
frá því fór starfsfólkið að velta því fyrir
sér hvaða möguleikar væru í stöðunni
og hvernig hægt væri að bregðast við
ástandinu. Þörfin á að koma til móts
við atvinnuleitendur var brýn og
mikilvægt að fyrirbyggja heilsubrest og
niðurbrot sem oft eru fylgifiskar
langvarandi atvinnuleysis. Við það að
missa vinnuna, missa einstaklingar
jafnframt eitt af stærstu hlutverkum
sínum. Vinnan hefur ekki aðeins
fjárhagslegan ávinning heldur einnig
félagslegt gildi og er hluti af daglegu
skipulagi (Creek og Lougher, 2008;
Jón Sigurður Karlsson, 1992; Kiel
hofner, 2002, 2007; Stein og Cutler,
2002). Í upphafi ársins 2009 hófum
við því átak fyrir atvinnu leitendur,
jafnframt því að bjóða upp á atvinnu
lega endurhæfingu. Með góðu samstarfi
og stuðningi frá Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur (VR) gat Hlutverkasetur
boðið upp á fjölbreytt námskeið. Lögð
var áhersla á að námskeiðin væru
skemmti leg, fræðandi og ættu erindi til
fólks á öllum aldri. Við skipulagninguna
nýttum við það sem við höfðum þegar í
boði ásamt því að bæta við nám skeið
um. Þannig var fólk hvatt til að vera
virkt og reynt að koma í veg fyrir að
það einangraðist og missti trúna á sjálft
sig. Við höfum skapað jákvæðan vett
vang fyrir fólk til að hittast á, gefa af
sér, tengjast og eiga ánægjulegar stundir
saman. Einnig höfum við hvatt fólk til
að leggja sitt af mörkum og hafa margir
boðið fram krafta sína og þekkingu,
bæði atvinnuleitendur sem og fólk sem
er í vinnu með alls kyns námskeiðum.
Þessi viðbót hefur haft jákvæð áhrif á
starfsemi Hlutverkaseturs. Á sama tíma
og atvinnuleitendur eru góðar fyrir
myndir og hvatning fyrir aðra hafa þeir
aukið fjölbreytileikann á staðnum.
Hlutverkasetur tekur nú þátt í forvarna
starfi ásamt mörgum öðrum, meðal
annars Rauða krossi Íslands, íþrótta
félögum, nýsköpunarmiðstöðvum,
kirkjunni og atvinnumálastofnun. Fólk
sem sækir Hlutverkasetur viðheldur
starfsorku sinni með því að halda sér
virku og tekur þátt í verkefnum sem
hafa jafn framt jákvæð áhrif á aðra.
Heimildaskrá
Creek, J. (2008). The knowledge base of
occupational therapy. Í J. Creek og L.
Lougher (ritstj.), Occupational therapy and
mental health (bls. 4041). Edinburgh:
Churchill Livingstone.
Jón Sigurður Karlsson (1992). Samhengi
atvinnuleysis og (van)líðanar. Sótt 16.janúar
2009, frá http://persona.is/index.php?action=
articles&method=display&aid=185&pid=11
Kielhofner, G. (2002). Model of human
occupation: theory and application. Baltimore:
Lippincott Williams & Wilkins.
Kielhofner, G. (2007). Model of human
occupation: theory and application. Baltimore:
Lippincott Williams & Wilkins.
Stein, F. og Cutler, S. K. (2002). Psychosocial
occupational therapy: A holistic approach (2.
útg.). Australia: Delmar Thomson Learning.
Átak fyrir atvinnu leitendur
í Hlutverkasetri
■ Guðrún Helga Ólafsdóttir
iðjuþjálfi
Hlutverkasetur
www.hlutverkasetur.is
■ Kristín G. Sigursteinsdóttir
iðjuþjálfi
Hlutverkasetur
www.hlutverkasetur.is