Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Page 30
30 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009
Suðurlands. Ég fór að brjóta heilann
um það hvernig ég gæti tengt þessa
annars ólíku vettvanga saman. Niður
staðan varð sú að einn úr röðum vist
manna á Sogni tók að sér að teikna
myndir á léreft sem íbúarnir á öldr
unardeildunum á HSU máluðu. Þetta
þótti takast vel, ekki síst í ljósi þess að
teiknarinn fékk nú hlutverk sem hann
tók alvarlega og lagði metnað sinn í að
skila vel. Verkefnið gaf honum tilgang
til að mæta í iðjuþjálfunina og sú
staðreynd að vinna hans var mikils
metin og eftirsótt gaf honum byr undir
báða vængi.
Eins og áður hefur komið fram er
íhlutunin á Sogni einstaklingsmiðuð og
er því mikilvægt að hægt sé að bjóða
upp á verkefni/iðju við hæfi hvers og
eins, þar sem styrkleikarnir fá að njóta
sín. Um þessar mundir eru skjól
stæðingarnir, að eigin frumkvæði, að
vinna við að gera upp/gera við tölvur
sem dæmdar hafa verið ónýtar. Hug
myndin er að gefa tölvurnar áfram til
þeirra sem gætu nýtt sér þær. Einn af
skjólstæðingunum hefur veg og vanda
af þessu verkefni enda liggur mesta
tölvuþekkingin hjá honum. Hann
leiðbeinir og deilir út verkefnum til
hinna. Tölvurnar höfum við fengið frá
Sorpu á Selfossi og Hveragerði auk þess
sem skólar og fyrirtæki hafa sent okkur
gömlu tölvurnar sínar þegar endurnýjun
á sér stað. Nú þegar hafa tíu tölvur
verið afhentar til Geðhjálpar sem svo
gefur þær áfram til skjólstæðinga sinna.
Með hækkandi sól og hlýnandi veðri
fluttist iðjuþjálfunin að mestu út í garð.
Þar eru mörg verkefni sem þarf að inna
af hendi og hafa strákarnir skipt með
sér verkum. Þeir hafa tekið að sér að
mála starfsmannabústaðinn að utan, sjá
um að slá garðinn og einn hefur yfir
umsjá með gróðurhúsinu. Snemma í
vor settu þeir niður kartöflur þannig að
nú bíða allir spenntir eftir upp sker
unni.
Ég hef starfað á Sogni í tæpt ár og
það hefur verið bæði viðburðaríkt og
lærdómsríkt. Ég hef nýtt þetta ár til að
þreifa fyrir mér, til að átta mig betur á
því hvernig iðjuþjálfun gæti best komið
að notum á stofnun eins og Sogni. Ég
hef komist að því að veganestið sem ég
hafði með mér frá Kleppi er ómetanlegt
og hefur meðal annars sparað mér
mikla vinnu. Ég komst líka að því að
hér er starf iðjuþjálfans í stuttu máli
fólgið í því að vekja áhuga hjá skjól
stæð ing unum, finna styrkleika þeirra
og aðstoða þá við að koma auga á og
efla þessa styrkleika.
Mikið hefur verið rætt um stað
setningu Sogns og hvort ekki væri
tímabært að flytja stofnunina nær
geðdeildum LSH þar sem meðal annars
sérfræðiþekkingin liggur. Ég er, eftir að
hafa starfað hér í þetta eina ár, sannfærð
um ágæti núverandi staðsetningar.
Nálægðin við náttúruna og fjarlægðin
frá ys og þys borgarinnar hefur sína
kosti. Það að geta farið út á góð viðris
dögum og tekið til hendinni við hin
ýmsu störf sem mörg hver krefjast bæði
líkamlegrar og andlegrar áreynslu er
góður kostur. Hér hafa vistmenn
ræktað eigið grænmeti og sumarblóm
mörg undanfarin sumur og nú stendur
til að setja upp hænsnakofa með
nokkrum íslenskum hænum sem þarf
að sinna. Á Sogni eiga þrír kettir
heimili sem una hag sínum vel í
sambýli við skjól stæðinga og starfsfólk.
Það hefur verið sýnt fram á að gæludýr
hafa góð áhrif á andlega líðan fólks,
kisurnar á Sogni eru þar engin undan
tekning og með það í huga fögnum við
komu íslensku hænunnar á Sogn.
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ
HÁSKÓLANS Á AKUREYRI
www.unak.is eða sími 460 8000
HJÚKRUNARFRÆÐI
Markmið námsins er að búa nemendur undir að gegna almennum hjúkrunarstörfum svo og
-
-
-
-
■ Myndir frá Sogni eru birtar með leyfi Stefáns Karlssonar
ljósmyndara á Fréttablaðinu