Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 4

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 4
4 Kjaramál okkar hafa verið ofarlega á baugi síðustu mánuði. Ansi góð þátttaka var í kjarakönnun Maskínu og var kynningarfundur okkar á niðurstöðunum mjög vel sóttur. Ég vil þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari rafrænu kjarakönnun BHM og mættu á fundinn, en markmið könnunarinnar, sem framkvæmd verður árlega, er að veita yfirsýn yfir launakjör háskólamenntaðra og fylgjast með þróun launa þeirra, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Einnig að leggja grunn að upplýsingaveitu til félagsmanna um launakjör og launasamanburð og veita aðildarfélögunum mikilvægar upplýsingar til að byggja á við gerð samninga um kaup og kjör. Eins og flestir vita eru kjarasamningar nú lausir og hefur BHM ákveðið að ganga til samninga sem ein heild. Kjarabaráttan er komin á fullt og það var einstaklega gaman að sjá hversu margir félagsmenn mættu á sameiginlegan kjarafund BHM félaganna sem var haldinn í Háskólabíói 6. febrúar síðastliðinn. Alls mættu um 900 manns og samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun með dynjandi lófataki: „Sameiginlegur kjarafundur BHM haldinn í Háskólabíói þann 6. febrúar 2014 lýsir fullum stuðningi við áherslur samninganefnda BHM í yfirstandandi kjaraviðræðum. Fundurinn hvetur viðsemjendur til þess að virða og meta menntun og leiðrétta þá rýrnun sem orðið hefur á kjörum háskólamenntaðra undanfarin ár. Fundurinn beinir því til stjórnvalda að setja þekkingu í forgang á íslenskum vinnumarkaði, leiðrétta laun félagsmanna BHM og þannig stuðla að hagsæld til framtíðar.“ Og baráttan heldur áfram! Við þurfum að vera sýnileg í almennri umræðu og ræða málin saman. Einnig er mikilvægt að taka þátt í vinnustaðaheimsóknum Bandalags háskólamanna sem hafa verið farnar síðustu vikur, en sendinefnd BHM hefur mætt á vinnustaði og hitt félagsmenn. Einnig vil ég hvetja ykkur til að birta pistla og greinar um ykkar mikilvægu störf á sem flestum miðlum. Því það leikur enginn vafi á því að sérþekking iðjuþjálfa kemur að gagni við að auka færni þannig að fólk öðlist aukið sjálfstæði og lífsfyllingu. Það er einfaldlega kominn tími til að allir viti hvað iðuþjálfar gera og geta gert. Kæru félagsmenn Pistill formanns Ósk Sigurðardóttir Iðjuþjálfi á BUGL Eirberg ehf. Stórhöfða 25 eirberg@eirberg.is Sími 569 3100 eirberg.is Nýjar vörur frá Protac Vörurnar frá Protac eru fylltar plastkúlum. Hreyfanleiki kúlnanna veitir stöðugan þrýsting á vöðva og liðamót, sem senda boð til miðtauga- kerfis. Eykur líkamsvitund, einbeitingu, veitir öryggi og vellíðan. Hannað samkvæmt kenningum A. Jean Ayres iðjuþjálfa og sálfræð- ingi um samspil skynsviða (sensory integration). Hentar börnum og fullorðnum og hægt að nota í markvissri þjálfun m.a. í leikskólum, skólum, á hjúkrunarheimilum og á endurhæfingarstöðvum. Ábreiða og sessur lánaðar til prufu. Fagleg ráðgjöf Skynörvun og vellíðan GroundMe – fótapúði Protac KneedMe – kjöltupúði, veitir öryggi og ró, hentar m.a. við fótaóeirð Protac – ábreiða Protac MyFit – kúluvesti með þyngd, örvar bak og bolvöðva Protac Sensit – kúlustóll – fellur vel að líkamanum, örvar skynjun og veitir öryggiskennd

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.