Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 13
13
Það var í lok ágúst 1998 sem hópur ungmeyja byrjaði nám sitt í
iðjuþjálfunarfræðum við Háskólann á
Akureyri (HA). Í boði voru sæti fyrir
15 til að komast áfram í gegnum hin
svokölluðu „clausus“ próf og því var
eftirvæntingin mikil. Í byrjun janúar
kom í ljós hverjar komust áfram og
byrjuðum við 13 ungar glæsimeyjar
samferð okkar í gegnum námið. Við
urðum fljótt þekktar undir nafninu
„annar hópurinn“ þar sem við vorum
annar hópurinn til að hefja nám í
iðjuþjálfun. Fljótt kom þó í ljós að
við urðum einnig leiðandi, bæði í
okkar námi og starfi. Fyrstu önnina
stunduðum við námið í Þingvallastræti
en fluttumst svo í framtíðarhúsnæði
HA á Sólborg þar sem við fengum að
fylgjast með uppbyggingu staðarins og
tókum m.a.s. beinan þátt í henni. Við
tókum okkur til og stofnuðum fyrstu og
einu sjoppuna sem hefur verið rekin af
nemendum á Sólborg. Sjoppan okkar
fékk nafnið „Sollan“ og var hún rekin
af miklum metnaði. Einnig gáfum við
út blaðið Iðjuþjálfaneminn, enda hafði
„fyrsti hópurinn“ lagt línurnar og því
ekkert annað að gera en að bretta upp
ermarnar og gefa út blað. Þar að auki
seldum við áprentaða stuttermaboli
og héldum kökubasar til að safna
smá pening. Eftir annað árið urðu
smávægilegar breytingar á hópnum,
þrjár stúlkur hættu og tvær bættust við.
Í öðrum útskriftarhópnum í iðjuþjálfun
frá Háskólanum á Akureyri 2002 voru:
Antonía María Gestsdóttir, Álfheiður
Karlsdóttir, Ásbjörg Magnúsdóttir,
Bergdís Ösp Bjarkadóttir, Erla
Björnsdóttir, Hafdís Hrönn
Pétursdóttir, Harpa Gunnlaugsdóttir,
Inga Dís Árnadóttir, Jóhanna Mjöll
Björnsdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir,
Svanhildur Pála Pétursdóttir og
Valdís Guðbrandsdóttir. Þar sem
sjoppurekstur, bolasala og útgáfa
blaðsins gekk mjög vel var ákveðið að
fara í útskriftarferð til Rímíni og njóta
þess að vera saman áður en leiðir okkar
myndu skilja. Þetta var yndisleg ferð
og gerði okkur enn sterkari sem hóp.
Það var svo þann 15. júní 2002 sem við
útskrifuðumst formlega sem iðjuþjálfar.
Það var mikil eftirvænting að útskrifast
frá HA en einnig bar á kvíða, bæði
yfir því að leiðir okkar myndu skilja
Annar útskriftarárgangur
iðjuþjálfa frá HA
Útskrift 15. Júní 2002. Útskriftahópurinn ásamt Kristjönu Fenger, Guðrúnu Pálmadóttur og Snæfríði Egilsson