Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Blaðsíða 16
16
Það var á mánudegi í marsmánuði árið 2009 að Bergljót kíkir við í
bankanum eftir vinnu en hún starfaði
í Oddeyrarskóla á Akureyri og hafði
gert í 15 ár. Á meðan Bergljót bíður
í röðinni í bankanum finnur hún að
vinstri fótur hennar byrjar að dofna og
dofinn skríður upp eftir líkama hennar
vinstra megin. Bergljót lætur ekki á
neinu bera heldur tyllir sér á stól, hringir
í manninn sinn og biður hann um að
sækja sig, það sé ekki allt með felldu.
Þau aka beint á sjúkrahúsið og Bergljót
er drifin í myndatöku þar sem kemur í
ljós heilablæðing í hægri hluta heilans.
Á meðan á öllu þessu
stóð missti Bergljót
aldrei meðvitund og gat
talað við sína nánustu,
þó gaf talmálið sig í
einhvern tíma þegar
líða fór á kvöldið en var
komið aftur næsta dag.
Aftur á móti lamaðist
Bergljót vinstra megin. Bergljót dvaldi
á sjúkrahúsinu í um 3 vikur og fór þá
á Kristnes í endurhæfingu. Þar hófst
ýmiss konar þjálfun, nánast frá því hún
mætti á svæðið. Byrjað var að þjálfa hana
í að sitja og halda jafnvægi sem reyndist
þrautin þyngri til að byrja með en kom
svo jafnt og þétt. Bergljót vissi síðan
ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar inn
á stofuna til hennar þrammaði vaskur
iðjuþjálfi einungis örfáum dögum eftir
komu hennar í Kristnes og sagðist
ætla að kenna henni að klæða sig! Það
fannst Bergljótu ansi hæpið að gæti
gengið því hún mátti hafa sig alla við
að halda jafnvægi uppisitjandi og var
sífellt að velta, hvað þá að fara að klæða
sig. En viti menn, þjálfunin skilaði sér
miklu betur en Bergljót hafði ímyndað
sér og var hún fljót að tileinka sér þær
aðferðir sem iðjuþjálfinn kenndi henni.
Þetta var fyrsta reynsla Bergljótar af
starfi iðjuþjálfa og síðan þá hefur hún
kynnst þeim nokkrum og verið í góðu
samstarfi við þá æ síðan. Ýmislegt fleira
tóku Bergljót og iðjuþjálfar hennar
sér fyrir hendur þetta ár sem Bergljót
var í endurhæfingunni í Kristnesi.
Iðjuþjálfinn útbjó t.d. fatla fyrir lömuðu
höndina. Einnig voru sturtuferðir
æfðar, að fara inn í og út úr bíl og
eldhúsþjálfun svo eitthvað sé nefnt eða
eins og Bergljót segir:
Iðjuþjálfarnir kenndu mér öll þessi trix til að
takast á við daglegu athafnirnar og svo var
það mitt að tileinka mér þær. Það er nefnilega
svolítið mikil ögrun að vera bara með einari/
aðra höndina en ég segi oft: við „einar“ erum
soldið góð saman! En svo var það handverkið...
ég hló nú dátt til að byrja með þegar ýmiss
konar handverk var kynnt fyrir mér þar sem
ég hef aldrei verið sterk á því sviði. Hins vegar
var ég ekki lengi að sjá tilganginn með því en
það er þessi virkni sem iðjuþjálfarnir eru svo
klárir í, þ.e. að maður taki þátt og sé virkur í
daglegum athöfnum. Svo eru þeir sérfræðingar
í að horfa á hlutina í lausnum.
Tveimur mánuðum eftir bankaferðina
örlagaríku fór Bergljót í heilaþræðingu
þar sem sérfræðingar reyndu að
komast til botns í því hvað olli
heilablæðingunni, t.d. hvort það sæjust
æðaflækjur í höfðinu. Ekkert slíkt sást
og var niðurstaðan sú að það hefði
einungis verið ein æð sem fór í sundur.
Bergljót fékk engan fyrirvara á þessum
Þeir hugsa og
framkvæma í lausnum!
Frásögn Bergljótar Álfhildar
Sigurðardóttur af veikindum
sínum sem hafa umbylt
lífi hennar og reynsla af
þjónustu iðjuþjálfa í kjölfar
þeirra.
Iðjuþjálfarnir kenndu
mér öll þessi trix til að
takast á við daglegu
athafnirnar og svo var
það mitt að tileinka
mér þær.