Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Page 19

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Page 19
19 Lokaþáttur tilverunnar Það er engin tilviljun að okkur líði vel eftir líkamlega áreynslu eða eftir að hafa notið matar í góðum félagsskap, glatt einhvern eða fundið fyrir kærleika og væntumþykju. Þessi iðja hefur beina tengingu við grunnþarfir okkar, það að lifa af, og er forrituð í heila okkar, sem hefur lítið breyst frá tímum hellisbúans. Forritið skiptist í fjóra þætti: líkamlegar, andlegar, félagslegar og tilfinningalegar þarfir (Rosenfeld, 1993, 2000). Forritið verkar þannig að í hvert skipti sem við stundum iðju sem hefur góð áhrif á þessa þætti, framleiðir heilinn hormón sem eykur vellíðan og eflir heilsu. Til að lifa af á tímum hellisbúans þurfti hreyfingu við öflun matar og svo þurfti að deila matnum, til þess að hópurinn héldi lífi. Þá varð að skapa hópnum öruggt umhverfi og hlúa að ungviðinu og þeim sem veikburða voru. Einnig þurfti að kenna smáfólkinu lífsleikni til að aðlagast samfélaginu og viðhalda þekkingu og færni sem kæmi næstu kynslóðum að notum.Fjölgun var jafn lífsnauðsynleg og að halda hópinn. Enda þurftu allir að hjálpast að; leggja sitt af mörkum, jafnvel þeir sem ekki gátu tekið fullan þátt í öllu, það sem nú er kallað að hafa skerta starfsgetu sökum fötlunar, veikinda eða elli. Allt gekk þetta af sjálfu sér, ómeðvitað, öðruvísi var ekki hægt að lifa af. Við höfum loksins áttað okkur á að lífsnauðsynlegt sé að fullnægja þessum þörfum, og það daglega (Borg, 2006). Við kunnum að vera of upptekin af einum þessara þátta og ráðum jafnvel alls ekki við einhvern þeirra, verðum óvirk, en lifum samt af. Samfélagið hefur á seinni tímum haft efni á því að láta það gott heita að einhver hluti fólks sé óvirkur; taki ekki þátt.Mikilvægi þessara daglegu athafna, sem eru beintengdar afkomu okkar, hefur fallið í skugga markaðs- og efnishyggju. Skyndilausnir í heilsugæslu og stefnan í heilbrigðismálum hefur að mestu einskorðast við líkamlega þáttinn en aðrir grunnþættir eru ekki síður mikilvægir ef viðhalda á heilsu og vellíðan, og fyrirbyggja heilsubrest. Framtíðarskipulag heil- brigðisþjónustunnar mun verða að byggja á heildarlausnum. Smám saman áttum við okkur á því að einmitt þessir þættir; hreyfing, öryggi, samvinna, lífsleikni og þekkingarleit eru okkur lífsnauðsynlegir. Það er ekki nóg að halda í okkur tórunni, t.d. með lyfjagjöfum.Geð rækt og valdefling eru nátengd hugtök. Geðrækt hefur áhrif á sjálfsskilning; hvernig við upplifum okkur sjálf. Geðorðin 10 - sem flestar sveitarstjórnir lögðu lið á sínum tíma með því að gefa þau út sem segla á ísskápa ­ eru einföld áminning; að hverju þurfi að huga, daglega, til að stunda geðrækt. Geðrækt þarf, eins og líkamsrækt, að stunda reglulega til að ná sem bestum árangri (Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2009a; Fríða Björnsdóttir, Guðrún Þórðardóttir og Guðbjörg Daníelsdóttir, 2010; Helga Björg Barðadóttir, 2009). Ef við hrey­ fum okkur ekki veslumst við smám saman upp, missum þrek og deyjum. Sama er uppi á teningnum ef við sin­ num ekki félagslegum, tilfinningale­ gum og andlegum þáttum. Þá missum við trúna á eigin áhrifamátt, máttinn sem gefur lífinu tilgang og virði til að lifa því (Blair, Hume og Creek, 2008; Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2007; Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2008; Elín Ebba Ásmundsdóttir og Sólrún Óladóttir, 2011; Rosenfeld, 1993, 2000). Valdefling tekur einnig til sjálfsskilnings, við búum í samfélagi með öðru fólki og höfum þar ákveðin réttindi og skyldur. Valdefling gerir öldruðum kleift að vera eftir sem áður virkir þátttakendur í samfélaginu. Þótt við áttum okkur e.t.v. ekki alltaf á því, þá þarfnast samfélagið fólks á öllum æviskeiðum. Fólk á að geta haft áhrif á samfélagið með því að starfa sjálft að verkefnum sem því eru mikilvæg og því og öðrum til hagsbóta. Með valdeflingu eru einstaklingar, sem þurfa á þjónustu að halda hvattir til að hafa áhrif á veitendur þjónustunnar, skipulag og stjórnun, á eðli þeirrar aðstoðar sem þeim býðst og hvernig þeir kjósa að lifa (Heilbrigðis- og tr yg ginga málaráðu­ neytið, 2005; WHO, 2005). Hugmyndafræði valdeflingar er notuð víða í þróunaraðstoð, stjórnmálum, skólum, á vinnustöðum og með fólki sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda (Chamberlin, 1997; Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2011; Hanna Björg Sigurjónsdóttir, 2006). Breytingar verða á lífi okkar þegar við eldumst svo hugmyndafræðin sem höfð er að leiðarljósi í uppbyggingu sam- félagsþjónustunnar skiptir sköpum. Börn, unglingar, fullorðnir og aldraðir þurfa að hafa tækifæri til að eiga, allavega stundum, samleið til að fá að læra hvert af öðru og koma betur til móts við tilfinningalegar, félagslegar og andlegar þarfir. Verkefni á efri árum eru næg fyrir einstaklinga sem vilja rækta sitt geð og Gæti valdefling og geðrækt breytt viðhorfum eldra fólks? Elín Ebba Ásmundsdóttir, iðjuþjálfi/dósent í Háskólanum á Akureyri og framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs Eitt er víst að öll munum við yfirgefa svæðið, þó að gátan um hvað taki við sé enn óráðin. Fastus býður uppá fjölbreytt úrval hjálpartækja fyrir börn og fullorðna, s.s. hjólastóla og sessur, rafmagnshjólastóla, göngugrindur, vinnustóla, bað- og salernishjálpartæki, rafskutlur og smáhjálpartæki til daglegs lífs. Sérhæft fagfólk leggur metnað sinn í að finna lausnir og aðstoða við val á vörum. Komdu og skoðaðu úrvalið. Við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig. Fastus ehf. Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is F A S TU S _H _1 1. 03 .1 3 Veit á vandaða lausn Hjólastólar og sessur fyrir börn

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.