Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 21
21
Þegar ég sá auglýsingu frá ritnefnd Iðjuþjálfans um greinar varðandi
nýjungar innan fagsins og nýjan
vettvang þess fannst mér tilvalið að
miðla til ykkar því sem ég hef verið að
vinna að í mínu starfi. Ég hef starfað
sem iðjuþjálfi hjá Öldrunarheimilum
Akureyrar (ÖA) frá því í byrjun árs 2005.
Þar hef ég fengið tækifæri til að taka þátt
í spennandi og viðamiklu þróunarstarfi
við að breyta stofnun í heimili og
innleiða Edenhugmyndafræðina. Þessi
grein mín mun þó ekki fjalla um þann
hluta starfs míns heldur hvernig ég
fékk tækifæri til að kynnast og nota
hugmyndafræði Lífsneistans (The Spark
of Life Philosophy) sem er sniðin að
þörfum fólks með heilabilun og allra
sem koma að þeirra málum. Höfundur
þeirrar hugmyndafræði er Jane Verity,
iðjuþjálfi, fjölskylduráðgjafi og Masters
Practitioner NLP. Jane er stofnandi og
framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins
Dementia Care Australia (DCA) sem
sér um að veita ráðgjöf og fræðslu fyrir
fólk með heilabilun, aðstandendur,
starfsfólk og fagfólk. Starfsmenn DCA
eru sex og nánasta samstarfskona Jane
heitir Hilary Lee en hún er iðjuþjálfi,
ráðgjafi og sérfræðingur í Skapandi
listum (Creative Arts). Hilary skrifaði
meistararitgerð sína um rannsókn sem
hún gerði á klúbbastarfi Lífsneistans (The
Spark of Life Club Program).
Heildræn nálgun
Í umönnun fólks með heilabilun er
hugmyndafræði Lífsneistans innleidd sem
heildræn nálgun sem skiptist þannig:
Klúbbastarf fyrir fólk með heilabilun;
fræðsla fyrir Ljósbera sem er sérvalinn
hópur starfsfólks (The Torchbearers
Program); fræðsla fyrir alla sem
tengjast ýmiskonar stofnunum og
félagasamtökum (Education Program).
Klúbbastarf Lífsneistans er meðferð
byggð á hópíhlutun (þemaíhlutun).
Áhersla er lögð á að mæta félagslegum,
tilfinningalegum, menningarlegum og
andlegum þörfum fólks með heilabilun.
Dagskráin er byggð upp fyrir fólk á
mismunandi stigum heilabilunar og
einnig er hægt að nota hana fyrir fólk
sem er rúmliggjandi eða orðið mjög
lasburða. Klúbbastarfið hlaut alþjóðlega
viðurkenningu árið 2009, „The
2009 IAHSA Excellence in Ageing
Services Award“, fyrir framúrskarandi
uppbyggingu og árangur. Hægt er að
lesa um kúbbastarfið og meistararitgerð
Hilary Lee á heimasíðu DCA
(www.dementiacareaustralia.com).
Hlutverk Ljósberanna er að viðhalda
lífsneistanum á vinnustaðnum með
því að hvetja og styðja samstarfsfólk á
skapandi hátt og beina sjónum að hinu
jákvæða. Fræðsludagskráin felur í sér
fræðslu og stuðning við að innleiða
hugmyndafræðina og virkja alla til
þátttöku, bæði stjórnendur, starfsfólk,
aðstandendur, sjálfboðaliða og alla þá
sem koma að heimilinu/stofnuninni
(Lee, H., Verity, J. 2011).
Hvers vegna ætti að nota
hugmyndafræði Lífsneistans?
Hver kannast ekki við að hafa komið
inn á öldrunarheimili eða séð myndir
þaðan, þar sem fólk situr álútt og
horfir í gaupnir sér? Blikið í augunum
er horfið; brosið, ánægjan, lífslöngunin
- allt er horfið, ekkert lengur til að lifa
fyrir. Þetta þarf ekki að vera bundið
við öldrunarheimili því fólk úti í
samfélaginu er víða einmana og óvirkt
þannig að smám saman slokknar á
lífsneistanum hjá því. Þegar við förum á
góða tónleika, sjáum fallegar myndir og
muni eða fylgjumst með barnabörnum
okkar í skemmtilegum leik framkallar
það bros hjá okkur, ánægju og vellíðan.
Á sama hátt nýtur fólk með heilabilun
tónlistar, að horfa á og handfjatla
fallega hluti, fylgjast með börnum að
Að endurvekja lífsneistann hjá
fólki með heilabilun
Iðjuþjálfun og hugmyndafræði Lífsneistans
Hrefna Brynja Gísladóttir, iðjuþjálfi hjá
Öldrunarheimilum Akureyrar