Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Side 23

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Side 23
23 Klúbbfélagi sem gat lítið tjáð sig rifjar upp ljóð sér og öðrum klúbbfélögum til mikillar ánægju. Sjúkrahúsið á Akureyri ÖRYGGI | SAMVINNA | FRAMSÆKNI Sjálfsbjörg endurhæfing Bjargi Akureyri 1.5 Iðjuþjálfi eflir skjólstæðinga sína til að auka eigin færni, virðir sjálfsákvörðunarrétt þeirra og upplýsir þá um valkostina sem koma til greina við lausn á færnivanda. Siðaregla nr. 1.5 fjallar um þætti sem eru hluti af daglegu starfi okkar iðjuþjálfa. Að efla, upplýsa, og virða. Alla daga sinnum við skjólstæðingum með færnivanda. Okkar hlutverk er að efla skjólstæðinginn og hvetja með það í huga að hann nái meiri færni en áður í sínu daglega lífi. En hlutverk okkar er einnig að upplýsa og fræða um lausnir og valkosti sem eru í stöðunni. Það er mikilvægt til að gefa skjólstæðingnum færi á að taka upplýstar ákvarðanir um líf sitt. Við eigum Umfjöllun um siðareglur að virða sjálfsákvörðunarrétt skjólstæðingsins þrátt fyrir að við höfum aðra sýn á málin en hann. Oft er þetta eins konar línudans, að vera bæði í því hlutverki að hvetja til dáða og um leið að sýna ákvörðun skjólstæðingsins virðingu. Í samskiptum fagmanns og skjólstæðings er það jú fagmaðurinn sem á að hafa þekkinguna og ráðin sem skjólstæðingurinn getur farið eftir, eða hvað? Það er mikilvægt að skoða stöðugt nálgun sína og siðareglurnar geta verið vegvísir á þeirri leið. Það er í samskiptum við skjólstæðinginn sem ekki síst reynir á fagmennskuna og hvort okkur tekst það sem okkur er ætlað. Guðrún Áslaug Einarsdóttir iðjuþjálfi og guðfræðingur. sönginn úr samverustundinni. Hvernig er hægt að fá réttindi til að nota Klúbbastarf Lífsneistans? Til þess þarf að sækja þriggja daga viðurkennt námskeið um hugmyndafræði og klúbbastarf Lífsneistans. Námskeiðin eru fyrir fólk sem starfar í heilbrigðis- og félagsmálum, aðstandendur fólks með heilabilun, aðra umönnunaraðila og alla þá sem áhuga hafa á að kynnast Lífsneistanum. Á námskeiðinu er farið yfir hvernig hægt er að endurvekja lífsneistann hjá fólki með heilabilun, fylgja innsæinu, vinna með krefjandi hegðun og skipuleggja klúbbastarfið. Einnig er kennt hvernig hægt er að endurvekja hæfileika sem „liggja í dvala“ og þar með auðveldað endurheimt (rementia) sem vísar til þess sem gerist þegar félagslegt og tilfinningalegt umhverfi fólks með heilabilun er styðjandi og skilningsríkt. Hugtakið rementia var fyrst notað af prófessor Tom Kitwood, höfundi Einstaklingsmiðaðrar nálgunar. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum varðandi námskeið um hugmyndafræði og klúbbastarf Lífsneistans vinsamlegast hafið samband við mig á netfanginu hrefna@akureyri.is eða í gsm 895-1174. Heimilidir: Lee, H., Verity J. (2011). “Re-igniting the Spark of Life­ a philosophy and whole systems approach”. Journal of Dementia Care. September/October 2011 (Vol 19 No 5). www.dementiacareaustralia.com

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.