Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 27

Iðjuþjálfinn - 01.06.2014, Síða 27
27 Gæfusporin er eitt af endur­hæfingarúrræðum Starfsendur- hæfingar Norðurlands (SN) og var upphaflega sett á laggirnar árið 2011 í tengslum við doktorsverkefni Sigrúnar Sigurðardóttur hjúkrunar fræðings og lektors við Háskólann á Akureyri. Verkefnið snerist um að þróa þverfaglegt meðferðarúrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis í æsku. Um var að ræða uppbyggingar­ og þróunarverkefni sem hlaut styrk frá Starfsendurhæfingarsjóði VIRK, en reksturinn var í höndum SN. Tólf konur á aldrinum 23­53 ára voru þátttakendur í verkefninu og áttu allar sögu um kynferðislegt ofbeldi í æsku (Sigrún Sigurðardóttir 2011). Tilgangur verkefnisins var því að byggja upp og þróa meðferðarúrræði fyrir fullorðna þolendur slíkra áfalla sem höfðu átt við flókin vandamál að stríða vegna ofbeldisins og ekki náð að vinna úr þeim. Einnig átti verkefnið að stuðla að meiri fjölbreytni og framboði á úrræðum í starfsendurhæfingu. Markmið verkefnisins var m.a. að auka lífsgæði, bæta félagslega, sálræna og andlega líðan og koma fólki út á vinnumarkað á ný (Sigrún Sigurðardóttir 2011). Meistararitgerð Sigrúnar snerist um að kanna heilsufar og líðan kvenna sem höfðu orðið fyrir sálrænum áföllum í æsku, eins og kynferðislegri misnotkun og öðru ofbeldi. Sigrún tók 14 viðtöl við sjö konur á aldrinum 30­65 ára sem áttu slíka sögu og höfðu allar leitað sér aðstoðar innan heilbrigðiskerfisins. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að sálræn áföll í æsku, eins og ofbeldi og kynferðisleg misnotkun, hafa mjög alvarlegar afleiðingar sem birtast í ýmsum myndum. Má þar nefna upplifun kvennanna af áfallinu, þar sem þær ýmist lokuðu á sára reynslu, upplifðu ,,sálarmorð“ eða fóru út úr líkamanum. Þær lýstu allar mikilli líkamlegri og andlegri vanlíðan sem börn og unglingar og voru berskjaldaðar fyrir endurteknu ofbeldi. Á fullorðinsárum upplifðu þær útbreidda verki, vefjagigt og móðurlífsvandamál auk geðrænna vandamála sem hafa þjakað þær allt lífið með kvíða, þunglyndi, sjálfsvígshugsunum og sjálfsvígstilraunum. Einnig áttu þær í erfiðleikum með að tengjast maka og börnum varðandi tengslamyndun, traust og snertingu. Konurnar höfðu allar þróað með sér og lifðu við mikla vanlíðan og vonleysi þegar rannsóknin var gerð (Sigrún Sigurðardóttir 2007). Gæfusporin voru keyrð í þriðja sinn hjá SN haustið 2013 og var það í fyrsta skipti sem undirrituð sá um utanumhald og útfærslu á því. Að þessu sinni voru þátttakendur níu konur á aldrinum 25­58 ára. Um var að ræða 14 vikna endurhæfingu þar sem unnið var markvisst með áföll vegna kynferðislegrar misnotkunar í æsku, sem og önnur áföll sem konurnar höfðu gengið í gegnum. Það er reynsla þeirra sérfræðinga sem vinna hjá SN að sálræn áföll sem skjólstæðingar hafa orðið fyrir á lífsleiðinni koma oftar en ekki fram í líkamlegum kvillum. Vinnan fólst því að miklu leyti í því að hjálpa konunum að tengja saman líkama og sál. Það þýðir m.a. að vinna úr sálrænum áföllum, að ná betri öndun, losa um vöðvaspennu, öðlast betri sjálfsmynd og ná betri líkamlegri heilsu. Í Gæfusporunum fór fram fjölþætt ráðgjöf, stuðningur, aðhald og hvatning alla virka daga og var tímasókn 4-6 Iðjuþjálfun og Gæfusporin hjá Starfsendurhæfingu Norðurlands Olga Ásrún Stefánsdóttir, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðarfræðingur.

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.