Skólavarðan - 01.04.2007, Blaðsíða 8
8
STÆRÐFRÆÐISAFN
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 7. ÁRG. 2007
Safnið var opnað árið 2002 og síðan
hefur aðsókn að því verið mjög góð,
gestir eru í kringum 150 þúsund á ári.
Hægt er að panta safnið undir afmæli
og fjölskylduferðir og eins geta kennarar
pantað kennslutíma á safninu. Safnið er
opið almenningi og mjög vel sótt allan
ársins hring af fólki á öllum aldri.
Safnið heldur úti heimasíðu, slóðin er:
www.mathematikum.de/
Ferðasafnið
Mathematikum ferðasafnið er hluti af
Mathematikum safninu, þar er að finna
muni sem hafa prýtt Mathematikum sem
og eintök sem finna má á safninu. Þetta
safn er hægt að panta og flytja á milli staða
eða milli landa ef því er að skipta. Hægt
er að panta 25 muni að eigin vali, að því
tilskildu að þeir séu hluti af ferðasafninu.
Þetta safn hefur farið út um allan heim
en einnig hefur verið vinsælt hjá skólum
innan Þýskalands að panta safnið og nýta
það til námskeiða og kennslu bæði fyrir
nemendur og kennara.
Stærðfræðiveisla í Mosfellsbæ
Sú hugmynd kviknaði í ferðinni að gaman
væri að fá ferðasafnið og dr. Beutelspacher
til Íslands og nú er sú hugmynd að verða að
veruleika. Mosfellsbær hefur ráðist í það
stórvirki að fá ferðasafnið hingað til lands
og verður það sett upp í íþróttamiðstöðinni
í Mosfellsbæ í ágúst 2007.
Boðið verður upp á námskeið fyrir
kennara, tvö tveggja daga námskeið, það
fyrra dagsett 13. og 16. ágúst og það síðara
14. og 17. ágúst, einnig verður námskeið
fyrir leikskólakennara 15. ágúst. Þá mun dr.
Beutelspacher verða með fyrirlestur sem
fyrirhugaður er 22. ágúst en sú dagsetning
gæti breyst. Fyrirlesturinn er í tengslum
við námskeiðin en verður vonandi opinn
fyrir aðra.
Í byrjun apríl verður kynning send í alla
skóla og skráningarferli kynnt.
Við stefnum einnig að því að vera með
„stærðfræðing í sófanum”, það er að segja
að fá einhvern stærðfræðilega þenkjandi
til að setjast niður með dr. Beutelspacher
og ræða stærðfræðileg viðfangsefni og
bjóða síðan upp á umræður í kjölfarið.
Ferðasafnið verður hluti af bæjarhátíðinni
Í túninu heima sem haldin verður 24. -26.
ágúst og þá verður safnið opið almenningi.
Safnið verður opið skólum og almenningi
frá 27. ágúst og þá geta kennarar pantað
tíma fyrir bekki eða hópa, en þeir kennarar
sem sækja námskeið ganga fyrir með sína
bekki á safnið.
Umsjón námskeiðanna og ferðasafnsins
er í höndum Guðbjargar Pálsdóttur lektors
við KHÍ, Guðlaugar Ó. Gunnarsdóttur og
Steinunnar Jónsdóttur stærðfræðikennara
Varmárskóla, Björns Þráins Þórðarsonar
sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs,
Sólborgar Öldu Pétursdóttur grunnskóla-
fulltrúa og Ástu Steinu Jónsdóttur deildar-
stjóra í Lágafellskóla.
Við höfum þá trú að verkleg viðfangs-
efni auki stærðfræðilega hæfni og gefi
nýja sýn og aukna möguleika í stærðfræði-
kennslu. Einkunnarorð Mathematikum
eru: „Stærðfræðin færir hamingju“ og við
gerum þau enn einu sinni að okkar.
Guðlaug Ósk Gunnarsdóttir og
Steinunn Jónsdóttir
Höfundar eru stærðfræðikennarar
Varmárskóla í Mosfellsbæ.
Mathematikum leggur áherslu á verklegar námsaðferðir og er
fyrsta stærðfræðisafnið í heiminum þar sem unnið er markvisst
með verkleg viðfangsefni.
Gullinsniðið, margslungið fyrirbæri.
Speglunin er alltaf skemmtileg og kemur
alltaf á óvart.
Helga og speglun, hvað er hún með marga fætur?
Þríhyrningar og þyngdaraflið.