Skólavarðan - 01.04.2007, Síða 20

Skólavarðan - 01.04.2007, Síða 20
20 KJARAMÁL, ÁRSFUNDIR SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 7. ÁRG. 2007 Í þetta sinn ætla ég að fjalla um sí- og endurmenntun grunnskólakennara, þ.e.a.s. 150 klst. sem ætlaðar eru til endurmenntunar og undirbúnings. Í kjarasamningi grein 2.1.6.4 segir: „Endurmenntun kennara skal vera í samræmi við endurmenntunaráætlun skólans og þær áherslur sem eru á hverjum tíma í umbótastarfi skóla. Skólastjóri getur ákveðið að einstakir kennarar eða kennarahópar sæki skil- greinda endurmenntun. Kennari skil- greinir þörf sína fyrir endurmenntun og kynnir skólastjóra sem ákveður hvernig staðið er að þessum málum með þarfir nemenda, kennara og heildarmarkmið skólans í huga. Með sveigjanlegu upphafi og lokum skólastarfs má skapa svigrúm til að kennarar geti sótt endurmennt- un í auknum mæli á starfstíma skóla. Endurmenntun/undirbúningur utan starfstíma skóla skal vera í samræmi við endurmenntunaráætlun skóla og undir verkstjórn skólastjóra.“ Öll endurmenntun er háð samþykki skólastjóra og er hverjum skóla skylt að gera áætlun um símenntun/endur- menntun og tíminn sem í hana er varið eru samningsbundnar 150 klst. á ári. Þær skulu nýtast m.a. til námskeiða, fræðslufunda og undirbúnings og skal endurmenntunaráætlunin kynnt kenn- urum og er æskilegt að því sé lokið í mars fyrir komandi skólaár svo að kenn- arar geti skipulagt orlof sitt út frá því. Starfstími kennara skal rúmast frá 15. ágúst til 15. júní og í kjarasamningi gr. 1.3.6. segir: „Námskeið sem skipulögð eru af fræðsluyfirvöldum sveitarfélaga skulu að öðru jöfnu ekki haldin í júlímánuði.“ Einstaklingsbundin endurmenntun með samþykki skólastjóra er hluti af endur- menntunaráætlun skóla og leggst við sameiginlega endurmenntun sem skóla- stjóri ákveður fyrir kennarahópinn. Skólastjóri ákvarðar endanlega endur- menntunardaga kennara utan starfstíma skóla en þó í samráði við kennarann. Helstu þættir símenntunar kennara eru annars vegar það sem er nauðsynlegt fyrir skólann og hins vegar það sem kennarinn telur nauðsynlegt fyrir sig. Kennarinn á að gera skólastjóra grein fyrir þeim þáttum sem hann hefur hugsanlega áhuga fyrir, hvort heldur er til að halda sér við eða bæta við nýrri þekkingu sem nýtist í starfinu. Kennara ber skylda til að sækja námskeið samkvæmt sí- og endurmenntunaráætlun skóla, enda sé hún gerð samkvæmt ákvæðum kjarasamningsins og á að vera kennurum að kostnaðarlausu. Skólastjóri ákveður í samráði við hvern kennara hvernig 150 tímarnir skiptast milli undir- búnings og endurmenntunar og ekkert í kjarasamningi tekur á því hversu margir tímar eigi fara í endurmenntun og hversu margir í undirbúning og það getur einnig verið breytilegt frá ári til árs. Undirbúningurinn gæti t.d. verið hugsað- ur fyrir komandi skólaár og væri þá á forræði kennara hvenær hann væri unn- inn. Náist ekki samkomulag milli kennara og skólastjóra er endanleg ákvörðun í hendi skólastjóra. Ef um ágreining varðandi tímafjölda er að ræða getur kennarinn rætt við trúnaðarmann og/eða sent erindi til Félags grunnskólakennara. Endurmenntun á starfstíma skóla Almennt er endurmenntun ætlaður tími utan við skipulagðan starfsramma skóla- ársins þ.e. 15. júní til 15. ágúst en hún má einnig fara fram á starfstíma skóla en er þá háð samkomulagi við viðkomandi kennara og skilgreind í sí- og endurmenntunaráætlun skólans. Ef endurmenntun er flutt á starfstíma skóla reiknast 33% álag á virkum dögum en 45% um helgar og fækkar þá tímum í samræmi við það. Þetta þýðir að 1 klst. af þessum 150 klst. er 1,33 á starfstíma skóla og því gengur kennarinn hraðar á þá tíma sem varið er í endurmenntun á starfstíma skóla en utan hans. Útreikningur Skipting þessara þessara 150 klst. getur verið mismunandi milli skóla, kennara og milli ára. Það er ýmislegt sem hefur áhrif á hversu margir tímar þetta eru fyrir hvern og einn. Þar sem endurmenntunardagar skerða aldrei samningsbundinn orlofsrétt þá skiptir orlofsréttur viðkomandi kenn- ara máli, þ.e.a.s. hvort hann hefur 24 daga, 27 daga eða 30 daga orlofsrétt. Í meðalári þurfa þeir sem eru yngri en 30 ára (24 daga orlofsréttur) að skila 150 tímum, 30-38 ára (27 daga orlofsréttur) að skila 126 tímum og 38 ára og eldri (30 daga orlofsréttur) skila 102 tímum. Annað sem hefur áhrif er t.d. dagafjöldi utan starfstíma skóla, hlaupár og einnig hefur það áhrif ef skólar taka vetrarfrí. Séu tímar endurmenntunaráætlunar fleiri en kennara eru ætlaðir m.v. aldur og með samþykki skólastjóra, ber að greiða þá tíma sem umfram eru í yfirvinnu. Ef þið hafið einhverjar spurningar um þetta eða annað er ykkur velkomið að hringja til mín í síma 595 1111 eða senda mér tölvupóst á netfangið ingibjorg@ki.is Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ Fjórði ársfundur Kennarasambands Ís- lands og ársfundur skólamálaráðs sam- bandsins verða báðir haldnir á Hótel Sögu föstudaginn 28. apríl nk. Öðruvísi fyrirkomulag er á ársfundi KÍ þetta árið en vanalega að því leyti að honum honum er slitið á hádegi en fulltrúar sitja áfram og taka þátt í ársfundi skólamálaráðs KÍ eftir hádegi. Á þeim hluta ársfundarins verður meðal annars farið yfir tíu punkta samkomulagið og sagt frá ferlinu, þeirri vinnu sem er að baki og hvað er framundan. Fyrir hádegi er auk hefbundinna ársfundarstarfa rætt um vinnuumhverfismál og ýmis mál sem tengjast kjarasamningum. Um hlutverk ársfundar segir í lögum Kennarasambandsins: Eigi sjaldnar er einu sinni á ári, þau ár sem ekki er haldið þing Kennarasambandsins, skal stjórn boða til ársfundar Kennara- sambands Íslands. Á ársfundi eiga seturétt stjórn Kennarasambands Íslands, stjórnir aðildarfélaga Kennarasambandsins ásamt formönnum þingkjörinna nefnda og þing- kjörnum skoðunarmönnum reikninga. Á ársfundi skal leggja fram reikninga Kennarasambandsins fyrir næstliðið ár, skýrslu yfir starfsemi Kennarasambandsins og þingkjörinna nefnda ásamt því að ganga frá starfsáætlun fyrir komandi ár. Heimilt er stjórn að vísa öðrum málum til umfjöllunar á ársfundi. Ferðakostnað vegna ársfunda greiðir viðkomandi félag/nefnd en uppihalds-og fundarkostnaður að öðru leyti greiðist af Kennarasambandi Íslands. Endurmenntun – grunnskólakennarar Ingibjörg Úlfarsdóttir launafulltrúi KÍ Tíu punkta samkomulagið til umræðu á ársfundi þann 28. apríl nk. Lj ó sm y n : S te in u n n J ó n sd ó tt ir

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.