Skólavarðan - 01.04.2009, Síða 3
3
FORMANNSPISTILL
Formaður og varaformaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ skiptast á um að skrifa
formannspistla í Skólavörðuna. Félögin á bak við formannspistlana eru: Félag
framhaldsskólakennara (FF), Félag grunnskólakennara (FG), Félag leikskólakennara
(FL), Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félag tónlistarskólakennara (FT),
Skólastjórafélag Íslands (SÍ).
Tími nýrra hugmynda
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009
Er mig að dreyma eða er skáldskapurinn orðinn að veruleika?
Getur verið að við séum persónur og leikendur í glæpasögu Þráins
Bertelssonar Dauðans óvissi tími?
Fréttir og umræða í fjölmiðlum hafa verið með þeim hætti
síðasta misserið að lyginni er líkast. Frásagnir af fjármálagerningum
heima og erlendis eru slíkar að almenningur nær tæpast að skynja
né skilja þær til hlítar. Niðurstaðan er engu að síður ljós. Hrun
fjármálakerfisins er staðreynd og gjaldmiðillinn, íslenska krónan,
stendur vart í lappirnar. Þá eykst atvinnuleysi hröðum skrefum og
heimilin og fyrirtækin berjast í bökkum. Við lifum svo sannarlega
á óvissum tímum þó að ekki sé um líf og dauða að tefla í sama
skilningi og í áður nefndri bók Þráins.
Undanfarið hafa stjórnendur og starfsmenn sveitarfélaga leitað
leiða til að draga úr rekstrarkostnaði þar sem fyrirséð er að tekjur
dragist saman á yfirstandandi ári og því næsta. Þar sem fræðslumál
eru einn stærsti útgjaldaliður í rekstri sveitarfélaga er ljóst að
grunn- og leikskólar munu finna verulega fyrir þeim þrengingum
sem nú ganga yfir. Svipaða sögu er að segja af framhaldsskólanum;
þar verður hagrætt eins og kostur er. Þessi staða hefur skapað
andrúmsloft óöryggis, spennu og kvíða meðal starfsmanna á öllum
skólastigum. Stjórnendur eru undir miklu álagi vegna krafna um
lækkun rekstrarkostnaðar, jafnvel þótt einstök sveitarfélög hafi lýst
yfir vilja til að standa vörð um störfin. Þá bætti ekki úr skák að
dráttur varð á afgreiðslu fjárhagsáætlunar margra sveitarfélaga og
því ekki vitað lengi vel hve mikill niðurskurðurinn yrði. Þessi staða
hefur gert stjórnendum erfitt fyrir að skipuleggja næsta skólaár
ásamt því að upplýsa starfsfólk um hvað í vændum sé. Á sama tíma
koma fréttir frá ríkisstjórninni um að þar á bæ sé verið að finna
leiðir til að skapa fleiri störf fyrir æ stækkandi hóp atvinnulausra.
Hvernig stendur á þessu ósamræmi? Jú, ef grannt er skoðað kemur
í ljós að ríkistjórnin ætlar að auka framkvæmdir í samgöngum og
byggingu orku- og álvera um leið og þjónusta sveitarfélaga verður
skorin niður, þar á meðal í skólum. Á sama tíma benda ýmsir
fræðimenn á að aukin áhersla á menntun og rannsóknir sé í raun
besta leiðin út úr kreppunni og vísa þá til viðbragða Finna og Svía
við fyrri bankakreppu.
Undanfarið hafa komið upp mál þar sem sveitarfélög hafa leitað
leiða til að draga úr launakostnaði með því að semja við einstaka
starfsmenn um launalækkun í einhverju formi með skírskotun til
þess að allir verði að taka á sig auknar byrðar og vísa í því sambandi
til æðstu embættismanna ríkis og sveitarfélaga. Ljóst er að yfirvinnu
og starfstengdum hlunnindum má segja upp en ólöglegt er að greiða
laun undir umsömdum töxtum stéttarfélaga og breytir þar engu þótt
launamaður samþykki slíkt. Þá er ekki hægt að ráða skólastjóra og
aðstoðarskólastjóra leik- og grunnskóla í hlutastarf þar sem þeir eru
á fastlaunasamningi með óskilgreinda vinnuskyldu.
Kjarasamningar FG og SÍ renna út 31. maí n.k. Ljóst er að lítið
verður að sækja til viðsemjenda eins og staðan er. Yfirlýst var að
næstu samningar þessara aðila yrðu tímasettir um svipað leyti og
kjarasamningar annarra starfsmanna sveitarfélaga. Það ætti því að
vera eðlilegt að fresta samningum fram á haustið, m.a. til að sjá
hvernig þjóðarskútan kemst út úr mesta brimrótinu og hvaða stefnu
hún tekur, svo að notaðar séu líkingar úr sjómannamáli.
Ársfundur KÍ var haldinn föstudaginn 13. mars sl. Þar var farið
yfir starfsemi sambandsins á liðnu ári og hvernig verið er að vinna úr
þingsamþykktum frá þinginu í fyrra. Jafnframt var fjallað um málefni
líðandi stundar og þá ekki hvað síst efnahags- og menntamál. Af
máli framsögumanna og umræðum er ljóst að staðan er dökk en
engan veginn vonlaus og í raun björt ef litið er til aðeins fjarlægari
framtíðar; sérstaklega ef okkur auðnast að leggja áherslu á mikilvægi
góðrar menntunar og nýsköpunar. Framundan eru áskoranir og tími
nýrra hugmynda og lausna.
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson
Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson
Formaður SÍ.
Ljóst er að yfirvinnu og starfstengdum
hlunnindum má segja upp en ólöglegt er
að greiða laun undir umsömdum töxtum
stéttarfélaga og breytir þar engu þótt launa-
maður samþykki slíkt. Þá er ekki hægt að
ráða skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
leik- og grunnskóla í hlutastarf þar sem þeir
eru á fastlaunasamningi með óskilgreinda
vinnuskyldu.