Skólavarðan - 01.04.2009, Blaðsíða 10

Skólavarðan - 01.04.2009, Blaðsíða 10
10 SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009 er því ljóst að reykvískir grunnskólakennarar eiga að geta verið öruggir með störf nema þeir séu leiðbeinendur sem sannanlega eru með samning til eins árs eða kennarar sem hafa ráðið sig til starfa í grunnskólum Reykjavíkur á þeim forsendum að vera í for- föllum fyrir einhvern annan.“ úR MINNISBLAÐI FRÁ MANNAuÐSSKRIF- STOFu REyKJAVÍKuR 20. APRÍL „Ljóst er að aðgerðir sem leiða til aukinnar hagræðingar, svo sem vegna breytinga á þjónustustigi, opnunartíma stofnana og annars sem til þessa má jafna, geta í ein- hverjum tilfellum leitt til ofmönnunar og því kallað á niðurlagningu starfa. Í slíkum tilfellum ber engu að síður að tryggja að fastráðnu starfsfólki verði ekki sagt upp störfum heldur verði ávallt leitað leiða til að finna viðkomandi önnur sambærileg störf, innan fagsviðs eða annars staðar hjá borginni. Hagræðingaraðgerðir og skipulagsbreytingar eiga því ekki að leiða til uppsagnar fastráðinna starfsmanna. Hvað varðar starfsmenn með tímabundna ráðningu, þá eru að sjálfsögðu einnig mögu- leikar á að leita að og finna önnur störf fyrir þá þegar þeirra starfstíma lýkur.“ úR BRéFI SEM FG SENDI öLLuM GRuNN- SKÓLAKENNuRuM 20. APRÍL „Hópur 2: Þeir sem réðu sig til kennslu í fyrsta sinn eða voru að ráða sig aftur til starfa eftir hlé og voru EKKI að leysa annan kennara af tímabundið. Hafi einhver kennari sem þessar aðstæður eiga við um fengið tilkynningu um að hann geti ekki átt von á endurráðningu mælum við eindregið með eftirfarandi: Fyllið út meðfylgjandi bréf nr. 2 í viðhengi og afhendið skólastjóra. Prentið út tvö eintök, afhendið annað og fáið undirskrift fyrir móttöku bréfsins. Þetta er gert til að undirstrika að tilkynning um að starfskrafta þinna sé ekki óskað næsta vetur er ekki nægjanleg. Á milli aðila ætti að vera ótímabundinn ráðningarsamningur og ef ætlunin er ekki að nýta starfskrafta þína næsta skólaár, t.d. vegna „ástandsins“ þarf vinnuveitandinn/skólastjóri að segja ráðningarsamningnum upp. Um það gilda reglur um uppsagnir sbr. viðauka hér að aftan. Útfylling og afhending þessa bréfs er eingöngu í varúðarskyni til að tryggja rétt þeirra sem í hlut eiga. Þessi hópur á ekki rétt á biðlaunum, komi til uppsagnar á ráðningarsamningi, enda er hann að ráða sig til starfa sl. haust í fyrsta skipti eða koma til starfa eftir hlé.“ MIÐLuM uPPLýSINGuM Félagsmenn KÍ eru hvattir til að hafa samband við Kennarasambandið og láta vita um allar aðgerðir og hugmyndir um niðurskurð á leik-, grunn-, tónlistar- og framhaldsskólastigi. Elna Katrín Jónsdóttir varaformaður KÍ hefur ennfremur lagt það til að aðildarfélög Kennarasambandsins miðli á milli sín bréfum og öðrum gögnum sem innihalda upplýsingar er geta verið fróðlegar og gagnlegar fyrir heildina. ENGAR VIÐRÆÐuR OG TÆPLEGA SAM- RÆÐuR Á fundi stjórnar og kjararáðs KÍ þann 17. apríl sl. sem vitnað er til framar í greininni sögðu formenn aðildarfélaga frá stöðu mála í sínum félögum. Hér er stutt samantekt á upplýsingum þeirra. Félag grunnskólakennara – Ólafur Loftsson Enn eru engar formlegar viðræður við LN í gangi. Hugmynd um launalaust leyfi settu sveitarstjórnarmenn á Akureyri fram upp á eigin spýtur. Eru sveitarstjórnir að fara á taugum? Ef á að ræða um svona mál verða sveitarstjórnir að vita hver hefur umboð til þess. Er LN kannski að reyna að kaupa sér tíma? Skólastjórafélag Íslands – Kristinn Breið- fjörð Guðmundsson Leikskólinn og grunnskólinn hittu fulltrúa Reykjavíkur á kynningarfundi fyrr á árinu. Svo var óformlegur spjallfundur með LN. Við höfum síðan tekist á við nokkur sveitar- félög og haft betur, það er ekkert til sem heitir hlutastjórnun í FL og SÍ. Við höfum ásamt leikskólakennurum verið í sambandi við aðila SÍS um launakjör stjórnenda í samreknum skólum. Við höfum líka haft afskipti af auglýstum stöðum og spurt hvaða upplýsingar umsækjendum hafi verið Kennari í grunnskóla í Reykjavík: „Við erum í sorg. Búið er að segja upp lausráðnum kennurum, ungu fólki með mikla atorku og hugmyndir. Svo er búið að flytja fleiri kennara hreppaflutningum. Þeim hefur verið holað niður í öðrum skólum sem voru undirmannaðir. Engu skiptir þótt ekkert okkar sem eftir sitjum búi að sérþekkingunni sem hvarf með þeim.“ ATvINNUöRYGGI KENNARA – HEILL NEMENDA

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.