Skólavarðan - 01.04.2009, Blaðsíða 19
RAFIÐNIR
19
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009
hvað námið sé erfitt. Þeir hafa fengið þær
upplýsingar hjá ráðgjöfum í grunnskóla
að nám í rafiðngreinum sé svo auðvelt að
það henti flestum sem ekki hafi áhuga á
menntaskólaleiðinni. Svo lenda þessi grey
í erfiðum fögum eins og rafmagnsfræði
og stærðfræði og komast að því að leið-
beiningarnar sem þau fengu frá ráðgjafa
sínum voru rangar. Það er mjög brýnt
að starfsmenn grunnskóla kynni sér fög
iðn- og verkmenntaskóla því röng ráð-gjöf
getur kostað unglingana töluvert basl og
leiðindi og leitt þau í öngstræti á fram-
haldsskólastiginu.
Of greindur í iðnnám?
Iðnaður er öllum þjóðum mikilvægur og
skiptir góð menntun á því sviði miklu máli.
Það skiptir líka máli að iðnmenntun taki
framförum og að skólar séu í takt við tímann.
Það er þörf á heiðarlegri og opinni umræði
um iðnnám. Virðing fyrir því hefur ekki
risið hátt undanfarin ár og virðist sem það
sé talið lélegur námskostur. Einn nemandi
Raftækniskólans fékk skýr viðbrögð þegar
hann tilkynnti fjölskyldu sinni að hann
ætlaði að hefja iðnnám. „Þú ert of greindur
til að fara í iðnskóla!“ var sagt. Í þessu liggur
sú meining að iðnnám sé bara fyrir síður
greinda nema. Það er sem betur fer ekki
almennt álit fólks.
Þjóðfélag án iðnmenntunar gengur ekki upp
Á það má benda að rannsóknir hafa sýnt
að nám í rafiðnfögum er mjög arðbært sé
reiknað út frá námstíma og tekjumögu-
leikum og kemur fast á hæla lækna- og verk-
fræðináms. Iðnaður er einn af hornsteinum
þjóðfélagsins og verksmiðjum eins og járn-
blendi og álverum er haldið gangandi af
iðnaðarmönnum, svo að ekki sé minnst á
hátækniiðnaðinn. Án iðnmenntunar gæti
þjóðfélagið ekki gengið. Rafiðnnemar sækja
gjarnan í framhaldsnám og fer mikill fjöldi
þeirra í framhaldsnám bæði hérlendis og
erlendis. Það er góður kostur fyrir nema í
rafmagnsverkfræði að hafa góðan faglegan
grunn í rafiðnfagi. Það er enginn vafi á að
í rafiðnaði og rafeindatækni eru gríðarlega
mörg tækifæri til atvinnusköpunar. Sprota-
fyrirtæki sem risið hafa hátt sýna það og
sanna að Íslendingar hafa mikla möguleika
á að hasla sér völl í hátækniiðnaði. Fyrirtæki
eins og Marel og Stjörnu-Oddi hafa náð langt
á sínu sviði og grundvallast þeirra starfs-
svið á raftækni. Komandi kynslóðir íslenskra
rafiðnaðarmanna eiga mikla möguleika á
að hasla sér völl í annars háþróuðu tækni-
umhverfi.
Valdemar Gísli Valdemarsson
Höfundur er skólastjóri Raftækniskólans.
Evrópumerkið/European Label árið 2009
Evrópumerkið er viðurkenning fyrir nýbreytniverkefni í tungumálanámi og
tungumálakennslu á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og menntamálaráðuney-
tisins. Evrópumerkið er veitt annað hvert ár og er ráðgert
að viðurkenningin verði veitt á Evrópskum tungumáladegi 26. september nk.
Umsóknarfrestur um Evrópumerkið í ár er til 30. júní nk. Umsóknum er hægt að skila rafrænt
til Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins á slóðinni: http://www.ask.hi.is/page/evropumerki2009
Eftirfarandi evrópsk forgangssvið verða árið 2009:
Tungumál og fjölmenning1.
Tungumál og viðskipti2.
Forgangssviðin eru ekki bindandi
Á meðfylgjandi slóð má sjá þau verkefni sem hafa verið styrkt http://www.ask.hi.is/page/evropumerki
Nánari upplýsingar gefur Ragnhildur Zoega á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, sími 525 5813.
Netfang: rz@hi.is. www.ask.hi.is