Skólavarðan - 01.04.2009, Blaðsíða 17
17
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009
STAÐA TóNLISTARSKóLA
Í nýafstöðnum kjarasamningum samn-
inganefndar Launanefndar sveitarfélaga
og samninganefndar tónlistarskólakenn-
ara lagði Launanefndin fram sem megin-
markmið sitt í samningagerð aðila „að
standa vörð um atvinnuöryggi starfsmanna
sveitarfélaga“.
Með vísan í þetta meginmarkmið Launa-
nefndar sveitarfélaga vill Félag tónlistar-
skólakennara benda á mikilvægi þess, að
allir starfsmenn sveitarfélaga sitji við sama
borð hvað þessi mál varðar. Huga verður að
atvinnuöryggi tónlistarskólakennara jafnt og
annarra við þau vandasömu úrlausnarefni
sem sveitarfélög standa frammi fyrir um
þessar mundir.
Það er ljóst að þótt rekstur tónlistarskóla
falli ekki undir skyldubundin verkefni sveitar-
félaga þá gegna skólarnir lykilhlutverki sem
hluti af grunnþjónustu hver á sínum stað og
starfsemi þeirra teygir anga sína inn á mörg
svið.
• Tónlistarskólarnir gegna bæði mennta- og
menningarhlutverki í nærumhverfi sínu og
eru eitt öflugasta tækið sem sveitarfélög
hafa til að efla menningar- og listastarf-
semi í samfélaginu.
• Á vegum menntamálaráðuneytisins er
hafin rannsókn á eðli, umfangi og áhrif-
um listfræðslu á Íslandi. Niðurstöðurnar
verða m.a. hafðar til hliðsjónar við endur-
skoðun námskráa á öllum skólastigum.
Bæði hérlendis og erlendis er vaxandi
hljómgrunnur og skilningur á því gildi sem
tónlistarfræðsla hefur fyrir heildstæða og
góða menntun.
• Mikilvægi skapandi námsgreina, menn-
ingar og lista, sem hluti af okkar mennta-
kerfi fer vaxandi bæði í hinu stóra sam-
hengi og hinu smáa.
- Breyttar þarfir samfélaga á núlíðandi
öld kalla eftir auknu vægi skapandi
námsgreina í menntun.
- Fólk leitar í vaxandi mæli til lífsgæða
sem felast í listum og menningu - ekki
síst við aðstæður eins og þær sem nú
ríkja í þjóðfélaginu.
• Talað er um að 21. öldin verði öld skapandi
atvinnugreina en eins og Ágúst Einarsson
rektor við Háskólann á Bifröst hefur bent
á þá eiga skapandi atvinnugreinar rætur
í menningu og menningin á rætur sínar í
listum.
• Í þeirri þekkingu og reynslu sem tónlistar-
skólar búa yfir felast tækifæri til að þróa
hið almenna skólakerfi.
Við viljum enn fremur vekja athygli á að tón-
listarnám er langt ferli og samfella náms er
þar mjög mikilvæg. Það er brýnt að nem-
endur sem hafa lagt mikla vinnu, tíma og
kostnað í tónlistarnám sitt þurfi ekki að
hætta námi nú þótt tímabundið kreppi að.
Nú skiptir sköpum fyrir sveitarfélög að
skapa sér jákvæða ímynd sem laðar að bæði
fólk og fjármagn. Þættir eins og menning,
listir og menntun skipta miklu máli um
SéRHVER SKÓLI Á AÐ VERA TÓNLISTARSKÓLI
Mikilvægi skapandi námsgreina í skólastarfi fær nú aukna athygli á alþjóðavettvangi,
ekki síst vegna þess að UNESCO hefur sett listir í skólastarfi á stefnuskrá sína. Þá hefur
framkvæmdastjórn ESB ákveðið að 2009 verði ár sköpunar og Bretar hafa ýtt úr vör
verkefninu „Sérhver skóli á að vera tónlistarskóli“ og lagt því til 332 milljónir sterlingspunda.
Norrænir stjórnmálamenn hafa gert könnun á því hvaða áhrif skapandi námsgreinar, eins
og leiklist og dans, hafa á líðan og árangur nemenda í bóklegum greinum. Niðurstöðurnar
eru óyggjandi.
„Nemendurnir sýna meiri ábyrgð í námi og framsetning þeirra á námsefninu verður betri
þegar þeir eiga kost á að velja skapandi greinar. Þeir ná einnig betri árangri í móðurmáli
og stærðfræði og sést það greinilega í PISA könnunum,“ segir Mogens Jensen formaður
Menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs. „Markmiðið er ekki að allir nemendur
verði listamenn. List og menning eru verðmæti sem geta aukið vellíðan og gæði náms og
Norðurlönd standa sig nú þegar vel. En það er þörf á sameiginlegu átaki og samræmi milli
landanna sem getur bætt árangurinn enn frekar.“
Félag tónlistarskólakennara sendi eftirfarandi ályktun til borgarstjóra og borgarstjórnar Reykjavíkur í janúar sl.
hvernig sveitarfélögum tekst til við að laða
til sín og halda í hæfileikaríka einstaklinga.
Frjótt og gagnvirkt umhverfi, þar sem nýjar
hugmyndir verða til og ná að dafna, verður
ekki til án skapandi einstaklinga.
Við hvetjum sveitarfélög til að gæta þess
að ekki verði vegið að tónlistarskólanum og
því þýðingarmikla starfi sem hann stendur
fyrir.
Ályktun um stöðu tónlistarskólanna í landinu