Skólavarðan - 01.04.2009, Blaðsíða 23
SKÓLAVARÐAN 3.TBL. 9. ÁRG. 2009
23
NÁMSGöGN
andstæður. Sjálfsagt er að styðjast við þær
báðar í kennslu erlendra tungumála.
Að lesa út frá réttu getustigi
Mikilvægt er að velja lesefni eftir getustigi
nemandans eða rétt neðan við það. Nem-
andinn á að geta lesið textann án erfiðleika,
þekkt orðin og getað hlutað tungumálið
niður í búta eða form. Með því að lesa hraðar
geta nemendur flokkað saman einstök orð
og geta þannig betur séð formgerð tungu-
málsins. Sérhvert form samsvarar fremur
hugmynd en einstaka orði. Með því að lesa
hraðar er nemandinn því að lesa hugmyndir
fremur en orð á prenti. Skilningur eykst og
minnið vex því heilinn man betur hugmyndir
en orð. Hugmyndir láta nemendur gleyma
því að þeir eru að lesa erlent tungumál, þeir
finna fyrir ánægju og öryggi með lestrinum.
En hvað er rétt getustig nemenda? Ef
óvissa ríkir skal velja auðveldari LB fremur
en þær sem erfiðari eru. Ef nemandi einsetur
sér að þekkja orðin í textanum, þróa með sér
leshraða og fimi, þá þarf hann að:
• Þekkja vel 98-99% orða á blaðsíðu.
• Geta lesið 80-100 eða fleiri orð á
mínútu.
• Geta lesið án þess að taka mörg hlé.
• Hafa mjög góðan skilning á sögunni.
Aðeins lesandinn sjálfur getur sagt til
um það hvort hann sé að lesa út frá réttu
getustigi. Ekkert er í sjálfu sér rangt við
það að nemandi vilji glíma við erfiðari texta
en getustig leyfir ef hann hefur sett sér
persónulegt markmið með lestrinum og
nýtur hans. Þó er mikilvægt að kennarinn
sé á varðbergi og greini hvort þyngd texta
og getustig nemenda fari saman. Kennari
getur greint þetta á eftirfarandi háttarlagi
nemenda, þeir:
• Nota fingur eða penna sem lesstikur.
• Nota stöðugt orðabækur.
• Virðast áhugalausir um lesturinn.
• Rita orðaþýðingar í bókina.
• Fletta blaðsíðum hægt (kennarar geta
tímamælt þetta í laumi).
• Sýna svipbrigði sem benda til að þeim
þyki lesturinn erfiður.
Að kynna léttlestrarbækur fyrir nemendum
Mikilvægt er að kennarinn skilji vel hlutverk
LB, notkun þeirra og leggi sig í líma við
að skila þessu til nemenda. Algeng mistök
kennara eru þau að þeir vænta þess að
lestur eigi sér stað og þróist af sjálfu sér.
Of oft gerist það að nemendur sýna áhuga í
upphafi en hann dvínar þegar fram í sækir.
Ástæða þessa er lítill skilningur kennara og
nemenda á því hvað þurfi til að leggja grunn
að lestri alla ævi. Lestur kemur að innan og til
að rækta þá tilfinningu hjá nemendum þarf
að setja upp árangursríka lesáætlun fyrir þá
með réttum LB. Kennarinn þarf jafnframt að
sannfæra nemendur um að hefja lesturinn
og viðhalda honum.
Andstæða lestrar á LB er lestur óbreytts
texta (authentic text) sem birtir nemand-
anum erlenda tungumálið eins og það er
í raun og veru. Fæstir nemendur geta nýtt
sér slíkan texta í byrjun, hann er þeim of
erfiður.
Hversu mikið á að lesa og hvers vegna?
Í stuttu máli er svarið við þessari spurningu:
Ein LB á viku. Það getur tekið tíma að ná
þessu markmiði en um leið og gæta þarf
þess að fara ekki of geyst verður að hyggja
að því að án umtalsverðs lestrar eykst ekki
skilningur nemenda. Að læra að lesa erlent
tungumál tekur tíma.
Hvenær eru nemendur tilbúnir að lesa létt-
lestrarbækur?
Nemendur verða að hafa grunnorðaforða
(100-200 orð) og þekkja hann á prenti áður
en þeir byrja á LB. Orðaforði í námsbókum
byrjenda endurspeglast í auðveldustu LB.
Byrjendur ættu því að hefja lestur á þessum
bókum, ná upp góðum leshraða, áður en
þeir feta sig upp erfiðleikastigann. Mikilvægt
er því að innlima LB sem fyrst í námskrána
og tengja texta við talmál (svo sem með
notkun geisladiska).
Kennarar ættu að hafa í huga
Marga þætti þarf að hafa í huga við val á
LB, hvort sem kennari eða nemandi velur
efnið. Kennarinn lítur á þætti eins og aldur,
áhugasvið, erfiðleikastig, álit annarra kenn-
ara eða nemenda o.fl. LB eiga að:
• Endurspegla hvernig nota eigi þær í
kennslu.
• Vera í takt við menningarlegan bak-
grunn nemandans og orðaforða.
• Vekja áhuga nemandans.
• Vera auðveldar aflestar og skiljanlegar.
• Búa yfir hæfilegum fjölda mynda sem
styðja viðkomandi texta.
• Hafa hæfilega margar fyrirsagnir og
kafla til að brjóta upp textann.
Þrátt fyrir þetta ættu kennarar ekki endilega
að hafna bókum sem:
• Eru of léttar, fjalla um efni sem eru
algeng eða vekja virkilega áhuga nem-
andans.
• Falla ekki að ítrustu málvísindakröfum
kennarans.
• Eru nemendum framandi.
Nemendur ættu að hafa í huga
Í fyrsta sæti er að bók sé læsileg og ánægju-
leg aflestrar. Að þessu er gott að gæta:
• Heiti bókarinnar og kápu til að átta sig á
tegund, sögusviði o.fl.
• Lesa baksíðu til að átta sig á inntaki
bókarinnar.
• Lesa efnisyfirlit eða renna yfir kaflaheiti
til að giska á um hvað bókun fjallar.
• Skoða og nýta sér myndmál.
Óskar Sigurðsson MA
Höfundur er vöru- og verkefnastjóri hjá A4
Skólavörubúðinni.