Skólavarðan - 01.12.2009, Blaðsíða 3
FoRMANNSPISTILL
Formaður og varaformaður KÍ og formenn aðildarfélaga KÍ skiptast á um að skrifa
formannspistla í Skólavörðuna. Félögin á bak við formannspistlana eru: Félag
framhaldsskólakennara (FF), Félag grunnskólakennara (FG), Félag leikskólakennara
(FL), Félag stjórnenda í framhaldsskólum (FS), Félag tónlistarskólakennara (FT),
Skólastjórafélag Íslands (SÍ).
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009
Ólafur Loftsson
formaður Félags grunnskólakennara
3
Ansi er orðið þreytt að hlusta á suma af forystumönnum sveitarfélaga
tala um að þeir ætli að standa vörð um störfin og grunnþjónustuna.
Á sama tíma eru þeir ófáanlegir til að skilgreina hvað er grunnþjónusta
og hvað ekki. Þeir fáu sem hætta sér út á þá braut tala út og suður um
málin. Hvernig er hægt að skera niður kennslumagn í skólum, setja á
yfirvinnubann, sameina bekki, fækka fólki, hætta með viðbótarstund,
segja upp öllum lausráðnum, hætta að endurnýja tæki og tól, fækka í
hópi stjórnenda og um leið: auka gæði og þjónustu? Hvers konar della
er þetta?
Hvers vegna ákveða sveitarstjórnarmenn ekki hvaða málaflokka
þeir ætla að setja í forgang og setja þá svo í forgang? Ég sé ekki betur
en stefnan sé sú að skera alls staðar niður, skerða alla þjónustu og
minnka gæði í allri þjónustu sveitarfélaga – og þannig missa allt
niðrum sig alls staðar. Með öðrum orðum: Þjónusta versnar á öllum
sviðum og enginn stendur vörð um grunnþjónustuna. Ég er samt
nokkuð viss um að flestir eru sammála um að við viljum standa vörð
um heilbrigðisþjónustu, lögreglu, slökkvi- og sjúkralið og menntakerfi
svo að helstu málaflokkar séu nefndir.
Allt Kennarasambandinu að kenna
Eitt af þreyttustu rökum sumra forsvarsmanna sveitarfélaga er að
kenna kjarasamningum kennara um það sem aflaga fer í skólastarfi.
Það nýjasta er að ekki sé hægt að stytta skólaárið vegna þess að það
sé bundið í kjarasamninga kennara! Kennarar séu svo ósveigjanlegir.
Með nýsamþykktum grunnskólalögum á Alþingi var ákveðið að binda
í lög að nemendadagar eigi að vera 180. Sveitarfélögin hafa skrifað
undir stöðugleikasáttmála þar sem meðal annars kemur fram að:
Forsendur stéttarfélaga á opinberum vinnumarkaði fyrir gerð kjarasamn-
inga eru að ekki verði gripið til lagasetninga eða annarra stjórnvaldsaðgerða
sem hafa bein áhrif á innihald kjarasamninga eða kollvarpa með öðrum
hætti þeim grunni sem kjarasamningar byggjast á.
Félög Kennarasambandsins hafa samkvæmt þessu skuldbundið
sig til að fara ekki fram á frekari launakröfur en koma fram í stöðug-
leikasáttmálanum og við hljótum að krefjast þess að sveitarfélögin
standi við sinn hluta. Ef það er Kennarasambandinu að kenna að við
stöndum vörð um hagsmuni nemenda og heimila í landinu þá er ég
stoltur af að eiga hlutdeild í því. Það ættu fleiri að skipa sér í þá sveit.
Ekki vildi ég vera sveitarstjórnarmaður í næstu kosningum og bera
ábyrgð á því að hafa ekki haft dug í mér til að standa vörð um menntun
barnanna okkar.
Það er óumdeilt að til lengri tíma litið er öflugt og sterkt menntakerfi
hornsteinn uppbyggingar í landinu. Hagfræðingar eru sammála um að
á krepputímum er niðurskurður til menntamála eitt af því vitlausasta
sem hægt er að gera. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor benti á
í fyrirlestri á síðasta þingi Kennarasambandsins að „góð lífskjör og
mikil og góð menntun haldast í hendur“. Við getum ekki leyft okkur
að láta ákveðna árganga nemenda fara á mis við þessi tækifæri. Við
höfum hreinlega ekki efni á því.
Meinið það sem þið segið
Eitt að því sem kom út úr Þjóðfundinum var sú eindregna skoðun
fundarmanna að það eigi að standa vörð um menntun barnanna okkar.
Menntamál voru í fyrsta sæti af níu meginþemum sem valin voru af
fundarmönnum inn í framtíðina. Ég skora á sveitarstjórnarmenn að
1) hætta að þykjast en gera það í raun og taka eindregna afstöðu með
menntun barnanna og 2) horfast í augu við það að frekari niðurskurður
setur skólastarf í enn meira uppnám með tilheyrandi afleiðingum fyrir
nemendur. Ef það er einbeittur vilji sveitarstjórnarmanna að skera enn
frekar niður í skólastarfinu eiga þeir að segja það. Berum orðum.
Niðurskurður þýðir sjálfkrafa skert þjónusta og minni gæði –
punktur. Hann þýðir að þeir árgangar nemenda sem í lenda verða fyrir
óbætanlegum missi. Segið það sem meinið og meinið það sem þið
segið. Hættið að fela ykkur á bak við „störfin og grunnþjónustuna“.
P.s.
Ég horfi út um gluggann minn á skrifstofu Kennarasambandsins á vélar
og menn leggja veg vegna Hlíðarfótarlóðar þar sem samgöngumiðstöð
átti að vera. Þessi vegstubbur kostar í ár 450.000.000 krónur!
Forgangs-verkefni?
Ólafur Loftsson
Ef það er Kennarasambandinu að kenna að við
stöndum vörð um hagsmuni nemenda og heimila
í landinu þá er ég stoltur af að eiga hlutdeild í
því. Það ættu fleiri að skipa sér í þá sveit.
Það er „nebblega“ það!