Skólavarðan - 01.12.2009, Blaðsíða 18
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009
SAMREKSTUR
18
Samrekstur leik-, grunn-
og tónlistarskóla
Með nýjum lögum frá 2008 var heimilað í 45.
gr. grunnskólalaga og 28. gr. leikskólalaga
að samreka leik-, grunn- og tónlistarskóla.
SÍ og FL fóru strax haustið 2008 fram á
viðræður við LN (launanefnd sveitarfélaga)
um kjör stjórnenda samrekins skóla.
Viðræður fóru ekki í gang fyrr en í mars
sl. og var þá rætt um að annars vegar yrði
gert samkomulag í samstarfsnefndum LN
og félaganna um kjör stjórnenda og hins
vegar yrðu gefnar út leiðbeiningar fyrir
rekstraraðila vegna samreksturs leik-, grunn-
og tónlistarskóla.Málinu var ekki lokið fyrir
sumarleyfi en var tekið upp aftur strax að
þeim loknum.
Samkomulag var undirritað 20. ágúst
Rétt er að taka fram að hér er um að ræða
samhljóða samkomulag sem gert er í
samstarfsnefnd LN og SÍ annars vegar og LN
og FL hins vegar.Samkomulagið var undirritað
20. ágúst sl. og staðfesti stjórn SÍ það fyrir sitt
leyti á fundi 24. ágúst, jafnframt lágu þá fyrir
áðurnefndar leiðbeiningar fyrir rekstraraðila
sem Samband ísl. sveitarfélaga gefur út í sínu
nafni.Samkomulagið var síðan staðfest ásamt
leiðbeiningunum á fundi LN29. sept. sl. en
gildistími er frá 1. ágúst 2009.
Um skólastjóra segir í samkomulaginu að
ákveði sveitarstjórn að reka saman grunnskóla
og leikskóla skuli laun skólastjóra, sem er
félagsmaður í SÍ, hækka sem hér segir:
Fjöldi leikskólabarnaLaunaflokkar
1-30 3
31 og fleiri 4
Ákveði sveitarstjórn að reka saman grunn-
skóla og tónlistarskóla skal skólastjóri raðast
tveimur launaflokkum ofar en ella.
Eini munurinn á félögum er að bil milli
launaflokka hjá SÍ er helmingi meira en hjá FL
og fékk FL því tvöfalt fleiri launaflokka.
Við lögðum mikla áherslu á að tekið yrði
á kennsluskyldu stjórnenda í samreknum
skólum og vildum að aðilar semdu um hana
heima í héraði. Því var alfarið hafnað en að
lokum fengum við þó inn svohljóðandi setn-
ingu sem opnar á þetta: „Sveitarstjórn er
heimilt að minnka kennsluskyldu skólastjóra
í samreknum skólum til samræmis við aukið
stjórnunarumfang.“
Við vildum fá inn sérstaka grein um laun
og kennsluskyldu annarra stjórnenda en það
tókst því miður ekki. Það verður að viður-
kennast að mjög erfitt er að ætla að taka
miðlægt á því þar sem skipulag á samrekstri
er sjálfsagt eins misjafnt og skólarnir eru
margir.Því lögðum við til að þetta yrði gert
með launaflokkum sem rynnu til skólans
og mynduðu pott, svipað og gert er vegna
lengdrar viðveru.
Þetta var ekki samþykkt en að lokum
fengum við þó inn grein um aðra stjórn-
endur sem er heimildarákvæði um að kjör
þeirra megi endurskoða: „Sveitarstjórn getur
veitt skólastjóra heimild til að endurskoða
grunnröðun launa og verkefni þess millistjórn-
anda sem sannarlega hefur auknum starfs-
skyldum að gegna vegna samreksturs skóla.“
Einnig var ákveðið að setja inn í
samkomulagið svohljóðandi endurskoðunará
kvæði:„Samstarfsnefnd skal afla upplýsinga
um framkvæmd samreksturs skóla og taka
samkomulagið til endurskoðunar fyrir 30.
nóvember 2010.“
Nokkur sveitarfélög hófu samrekstur
Á síðasta skólaári ruku nokkur sveitarfélög til
og ákváðu að samreka leik-, grunn- og tón-
listarskóla. Mjög handahófskennt var hvernig
menn undirbjuggu þennan samrekstur.
Stærsti hvatinn hefur sjálfsagt verið að menn
töldu að með þessu mætti spara í rekstri, en
fræðimenn telja víst mjög hæpið að hafa það
sem aðalmarkmið við sameiningu stofnana.
Þessi handahófskenndu vinnubrögð höfðu að
sjálfsögðu í för með sér ýmsa árekstra sem
hægt hefði verið að komast hjá ef vandað
hefði verið til undirbúnings.
Samhliða því að semja um kjör stjórnenda í
samreknum skólum voru unnar leiðbeiningar
fyrir rekstraraðila um samrekstur leik-, grunn-
og tónlistarskóla.
Leiðbeiningar eru til en það þarf
að fara eftir þeim
Samband íslenskra sveitarfélaga gerði síðan
leiðbeiningarnar að sínum og gaf þær út í sínu
nafni. Ég tel þessar leiðbeiningar vera eitt það
besta sem kom út úr samningaviðræðunum,
Jón Ingi Einarsson framkvæmdastjóri Skólastjórafélags Íslands
segir frá samrekstri skóla á grundvelli lagagreina í nýlegum lögum.
Nú þegar hefur samrekstur komist til framkvæmda í nokkrum
sveitarfélögum en undirbúningur hefur verið mjög handahófskenndur
og leiðbeiningum um hvernig skuli staðið að málum ekki fylgt.