Skólavarðan - 01.12.2009, Blaðsíða 5
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009
GESTASKRIF: KRISTLAUG MARíA SIGURÐARdóTTIR
5
Á hverju ári frá því að börnin mín byrjuðu í
skóla hérlendis hafa rithöfundar komið í
skólann til þeirra að kynna störf sín og verk ef
svo ber undir. Skáld í skólum er þessi dagskrá
kölluð og er skipulögð af Höfundamiðstöð
Rithöfundasambands Íslands. Þetta hafa
verið ánægjulegar heimsóknir og börnin alltaf
komið uppnumin heim og sagt mér frá og
glaðst yfir góðum degi. Þannig að ég veit frá
fyrstu hendi að svona heimsóknir skipta máli
fyrir skólanema og gefa þeim sýn inn í heim
rithöfunda.
Nú veit ég ekki hvort aðrir listamenn, nema
þá kannski leikarar með leiksýningar sem
eru gerðar sérstaklega fyrir skólana, stundi
það að heimsækja skóla og kynna vinnu sína
og verk. En mér finnst æskilegt að þeir geri
það. Eins væri bráðsnjallt að vísindamenn
kæmu reglulega að kynna nýjustu tækni og
vísindi og vektu þannig nýsköpunaráhuga hjá
grunnskólabörnum.
Ég las viðtal við rithöfund um daginn sem
sagði frá því að sökum „ástandsins“ væri ekki
lengur um það að ræða að rithöfundum væri
boðið í skólana og lesa upp og kynna verk
sín, skólarnir hefðu ekki efni á því lengur.
Þetta þóttu mér skelfileg tíðindi, bæði fyrir
grunnskólabörn landsins og svo auðvitað líka
fyrir rithöfundana sem njóta þessara funda
ekki síður en skólakrakkarnir sjálfir.
Skólaheimsóknir og listamannalaun
Ég varð auðvitað hugsi yfir þessu og datt þá
í hug að núna væri lag að tengja saman ferðir
listamanna í skóla við úthlutun listamannalauna
þannig að þeir listamenn sem eru á launum frá
hinu opinbera séu aðgengilegir fyrir skólana,
án endurgjalds. Þannig væri hægt að bjóða
rithöfundum og öðrum listamönnum að koma
og eiga stefnumót við yngstu borgarana,
bæði leikskóla- og grunnskólabörn, og skapa
þannig brú á milli listamanna og skóla.
Það má ímynda sér að inni í listamanna-
launum í eitt ár væru til dæmis innifaldar
tólf kennslustundir til skóla, sem er þá ein
kennslustund á mánuði í þetta eina ár. Eða
að hver listamaður sem fengi listamannalaun
þyrfti að fara í eina skólaheimsókn á tímabilinu
og væri um að ræða skóla langt frá heimili
listamannsins yrði ferða- og gistikostnaður
greiddur.
Einhverjum kann að þykja þessar hugmyndir
barnalegar og illframkvæmanlegar, öðrum
ekki. Mér finnst þetta vera alger snilld og
auðvelt að framkvæma þar sem skólamál
og menningarmál falla undir sama ráðuneyti
og því lítið mál að samræma og samhæfa
og sjá til þess að það komi að minnsta kosti
einn listamaður í heimsókn í hvern leik- og
grunnskóla á landinu á hverju ári.
Eins má sjá fyrir sér að fleiri sjóðir á vegum
mennta- og menningarráðuneytisins, eða aðrir
opinberir sjóðir sem úthluta stærri styrkjum,
gætu verið með svona tengingu inn í skóla.
Með beinni tengingu milli listamanna og skóla
Heimsóknir listamanna í skóla
Gestaskrifarinn okkar, Kristlaug María Sigurðardóttir (Kikka), hefur skrifað margt
fleira um dagana og er meðal annars höfundur söngleikjanna Ávaxtakörfunnar og
Hafsins bláa, leikritsins Vodkakúrinn, bíómyndarinnar Didda og dauði kötturinn
og bókanna um Jón Ólaf jólasvein en önnur bókin um þennan unga keflvíska
jólasvein er nýkomin út. Hún heitir Jón Ólafur með dauðann á hælunum!
Í stað þess að hætta að fara í
skólana út af fjárskorti eigum
við einmitt að fara oftar
þangað, rithöfundar og aðrir
listamenn eiga að gera innrás
í skólana, taka þá yfir í stutta
stund og lesa, spjalla og eiga
stund með skólafólki, sjálfum
sér og öðrum til ánægju.
Lj
ós
m
yn
d
ar
i:
Á
rn
i
To
rf
as
on