Skólavarðan - 01.12.2009, Page 6

Skólavarðan - 01.12.2009, Page 6
6 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009 vinnur þjóðfélagið betur í að byggja sjálft sig upp að mínu mati og við öðlumst ríkara og gjöfulla samfélag. Þeir listamenn sem eru ekki á listamannalaunum geta farið í skólana líka á sínum eigin forsendum, vegna þess að þá langar til þess að lesa bækur, segja sögur, mála myndir, dansa ballett og spjalla og leika sér við börn og fullorðna án endurgjalds. Ég er eiginlega alveg viss um að það er ekki sá skóli eða leikskóli í landinu sem hefur ekki tíma aflögu frá strangri aðalnámsskrá til að taka á móti slíkum gestum. Rithöfundasambandið hefur staðið fyrir því að senda skáld í skóla um árabil með góðum árangri og eru þessar hugmyndir ekki settar upp gegn því framtaki, enda er það frábært. En það má kannski taka það til fyrirmyndar og skoða hvernig rithöfundar, gjarnan tveir saman, hafa sett saman dagskrá úr verkum sínum og flutt þau fyrir grunnskólabörn víða um landið. Ef til vill má taka þetta skapalón rithöfund- anna og búa til hópa listamanna; rithöfund og hönnuð eða tónlistarmann og myndlistarmann eða leikara, tónskáld og ballerínu, sem dæmi. Hóparnir færu svo saman og kynntu list sína í skólum og kynntust daglegu lífi í skólunum í leiðinni. Sjá ekki allir hvað þetta er frábært og gefandi fyrir alla aðila, eða eins og sagt er á góðri útlensku „win-win situation“? Að öllu gríni slepptu þá lifum við á tímum þar sem við þurfum að hugsa út fyrir kassann og finna lausnir frekar en að leggja árar í bát. Við upplifðum hrun á mörgum sviðum, ekki síst efnahagslega og siðferðislega en líka tilfinningalega, og nú er komið að því að byggja upp aftur. En í stað þess að hætta að fara í skólana út af fjárskorti eigum við einmitt að fara oftar þangað, rithöfundar og aðrir listamenn eiga að gera innrás í skólana, taka þá yfir í stutta stund og lesa, spjalla og eiga stund með skólafólki, sjálfum sér og öðrum til ánægju. Lyfta andanum á hærra plan án þess að hugsa um það hvað hlutirnir hefðu kostað ef það væri ennþá 2007. Þá komum við hjartanu og tilfinningum aftur í réttan takt, gott siðferði blómstrar og við byrjum sjálf á tiltektinni sem við erum öll að bíða eftir að stjórnvöld hefji, innan frá. Aðlögum stjórnvöld að okkur en ekki öfugt, þá lagast allt hitt af sjálfu sér og við verðum heilsteypt þjóð aftur. Einhvers staðar las ég eða heyrði að þegar maður á lítið þá eigi maður að gefa mikið. Þannig sé maður að segja alheiminum að það sé til nóg fyrir alla. Ég veit með vissu að það er nóg til af rithöfundum og öðrum listamönnum sem eru meira en til í að koma í skólana og eiga stund með nemendum, gefa tíma sinn. Ég tel að við sem störfum sem listamenn höfum ekki efni á því að gera það ekki. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Heimsókn í Heiðarskóla Ég sjálf var svo heppin um daginn að vera boðið að koma og hitta yngri bekki í Heiðar- skóla í Reykjanesbæ. Þetta var sérstakt að því leyti að ég var ekki að kynna nýju bókina mína heldur að ræða við nemendur um það hvernig það er að vera rithöfundur, segja þeim hvernig vinnudagurinn væri og svara spurningum. Fyrri daginn hitti ég krakka í 1. bekk og seinni daginn 2. bekk, 3ja bekk og að lokum fimmta bekk. Það er skemmst frá því að segja að þessar heimsóknir voru ein- staklega ánægjulegar fyrir mig. Krakkarnir voru að undirbúa dagskrá fyrir Dag íslenskrar tungu og voru þau yngri að vinna dagskrá úr Ávaxtakörfunni og þau eldri úr Diddu og dauða kettinum. Þau sungu, unnu leiklestra upp úr bókinni um Diddu og léku af bestu list. Ég var mjög ánægð með það sem þau voru að gera og þakklát fyrir að fá að koma og fylgjast með þeim í undirbúningnum. Seinni daginn þegar ég hafði hitt alla bekkina og var á leið út úr skólanum kom til mín ungur drengur sem ég hafði hitt í fyrsta bekk deginum áður. Hann tók í höndina á mér og horfði voteygður á mig. „Heyrðu Kikka, ég ætla bara segja þér að ég vil ekki vera eins og Immi ananas, ég ætla alltaf að vera góður við alla“. Svo labbaði stubburinn út og fór að leika sér við skólafélaga sína. Ég hins vegar stóð eftir á ganginum og horfði á eftir honum, orðin voteyg líka, og hugsaði með mér hvað það væru mikil forréttindi sem höfundur að fá að upplifa andartak sem þetta. Að ná til eins lesanda eða áhorfanda er gefandi og gerir skriftirnar, sem oft geta tekið á, þess virði. Jafnvel þó lesandinn sé aðeins sjö ára gamall. Eða kannski ég ætti heldur að skrifa: Sérstaklega vegna þess að lesandinn er bara sjö ára. Þegar ég gekk út úr Heiðarskóla skömmu síðar fór um mig einkennilegur sæluhrollur, ég hafði fengið bestu viðurkenningu sem rithöfundar fá, viðurkenningu lesanda. Ég vona að „ástandið“ verði ekki til þess að rit- höfundar og aðrir listamenn hætti að fara í skólaheimsóknir og eiga þar stund með nemendum og kennurum. Það væri mikill missir, bæði fyrir skólana og ekki síst rithöf- undana sjálfa. Þess vegna er ekki vitlaust að tengja listamenn við skólana í gegnum lista- mannalaunin, bara tímabundið, þar til við höfum komið okkur upp á lappirnar aftur. Kristlaug María Sigurðardóttir Höfundur er rithöfundur. Aðlögum stjórnvöld að okkur en ekki öfugt, þá lagast allt hitt af sjálfu sér og við verðum heilsteypt þjóð aftur. GESTASKRIF: KRISTLAUG MARíA SIGURÐARdóTTIR

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.