Skólavarðan - 01.12.2009, Side 13

Skólavarðan - 01.12.2009, Side 13
VINNUVERNd SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009 13 Í vinnuumhverfisbólu desembermánaðar, sem er á www.ki.is í heild, er fjallað um streitu og aðgerðir á vinnustöðum til að koma í veg fyrir hana og styðja þá sem glíma við streitu. Talið er að um þriðjungur kennara líði af völdum streitu og/eða kulnunar í starfi. Í íslenskri rannsókn frá árinu 2006 sögðust 27% starfsmanna búa við vinnustreitu og 42% hafa of mikið að gera í vinnunni. Streita og vanlíðan starfsfólks hefur áhrif á vinnustaðinn í heild, gerir stjórnendum erfiðara um vik og hefur áhrif á einstaka starfsmenn, líðan þeirra og vinnuframlag. Of mikið álag getur leitt til aukinna fjar- vista, meiri starfsmannaveltu, verri árangurs, óánægju þeirra sem njóta þjónustu vinnu- staðarins, (ef skóli, þá nemenda og foreldra) og verri ímyndar. Fyrir starfsmann geta afleiðingar álags og streitu meðal annars verið einbeitingarskortur, verkkvíði, þreyta og svefntruflanir. Auk þess geta komið fram ýmis líkamleg einkenni eins og bak- og meltingar- vandamál, magasár, háþrýstingur og veikt ónæmiskerfi. Álags- og streitustjórnun þarf að vera á vinnustaðnum. Ekki má einblína á lausnir sem einstaklingur þarf að sinna heldur einnig hugsa um vinnustaðinn sjálfan og skipulag hans. Þannig má draga úr líkum á að starfsfólk upplifi streitu og álag í vinnunni. Metum stöðuna Fyrst af öllu þarf að átta sig á hvaða þættir í vinnuumhverfinu eða skipulaginu valda álagi og til þess má meðal annars nota vinnu- umhverfisvísi Vinnueftirlitsins um félagslegan og andlegan aðbúnað á vinnustað. Slóðin er vinnueftirlit.is/vinnueftirlit/upload/files/ vinnuumhverfisvisar_og_gatlistar/visafe01_ felagsl_andl_adbun.pdf Auk þess er hægt að spyrja starfsfólk um líðan í vinnu. Ekki er ráðlegt að spyrja beint hvort viðkomandi sé „stressaður“ heldur frekar að leita eftir þáttum í starfinu og vinnu- umhverfinu sem valda álagi. Biðja starfsfólk um að nefna jákvæða og neikvæða þætti vinnunnar, spyrja um álag, athafnafrelsi, sam- skipti, vinnutilhögun, stuðning og stjórnun ásamt samspili vinnu og einkalífs. Að lokum má fylgjast með veikindafjarvist- um, starfsmannaveltu, frammistöðu, slysum og mistökum og reyna að sjá og skýra mynstur og breytingar. Tökum á málinu Lýðheilsustöð mælir með eftirfarandi aðgerðum til að lágmarka streitu á vinnustöðum: Breytingar á skipulagi vinnunnar: Laga kröfur að fólkinu sem vinnur störfin. Sjá til þess að starfsfólk hafi næga þekkingu og færni. Veita starfsfólki meiri sjálfsstjórn. Veita starfsfólki stuðning, hvetja til samvinnu og meiri samskipta starfsfólks. Þjálfun í streitustjórnun: Bjóða upp á fræðslu um einkenni og afleiðingar streitu og hafa námskeið í slökun, tímastjórnun og markmiðasetningu. Styðja fólk til að stunda hreyfingu. Vinnuvistfræðilegir þættir: Bæta aðbúnað. Draga úr hávaða, tryggja gott inniloft, bæta búnað og draga úr óvæntum truflunum. Fræðsla og þjálfun stjórnenda um streitu og í leiðtoga- og samskiptafærni ásamt því hvernig megi leysa úr ágreiningi á árangurs- ríkan hátt. Þróun vinnustaðarins: Taka upp betri vinnu- ferla og stjórnunarhætti. Byggja upp vinnu- staðamenningu sem er vinsamleg, hvetjandi og styðjandi. Virkja starfsmenn í að finna leiðir til að ná þeim árangri sem stefnt er að. Sérstakar aðstæður Mikilvægt er að stjórnendur gefi starfsmönn- um sem glíma við sérstaklega mikið álag eða erfiðleika, í vinnu eða einkalífi, kost á að fá ráðgjöf hjá fagaðilum. Í slíkum tilfellum er meðal annars hægt að benda á Sjúkrasjóð KÍ sem styrkir kennara og stjórnendur til að sækja sér aðstoð ýmissa fagaðila. Sjá úthlutunarreglur sjóðsins á ki.is/lisalib/ getfile.aspx?itemid=7976 Hafa ber skýrt verklag um hvernig bregðast skuli við slíkum aðstæðum því of algengt er að starfsfólk fái mismikinn stuðning eftir því hvort álagið leiðir til andlegra eða líkamlegra veikinda. Starfsmaður sem fær brjósklos á í flestum tilfellum auðvelt með að fá greiningu á sínum vanda, veikindadaga og skilning frá vinnufélögum þegar hann kemur til baka. Því miður er slíkt ekki alltaf tilfellið þegar um er að ræða andlega kvilla svo sem þunglyndi. Forðast skal að mismuna fólki eftir sjúk- dómum en veita samskonar stuðning í öllum tilfellum. Sjá nánar á www.ki.is Streita og vanlíðan á vinnustað Of mikið álag getur leitt til aukinna fjarvista, meiri starfsmannaveltu, verri árangurs, óánægju þeirra sem njóta þjónustu vinnustaðarins og verri ímyndar. Fyrir starfsmann geta afleiðingar álags og streitu meðal annars verið einbeitingarskortur, verkkvíði, þreyta og svefntruflanir. Auk þess geta komið fram ýmis líkamleg einkenni eins og bak- og meltingarvandamál, magasár, háþrýstingur og veikt ónæmiskerfi.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.