Skólavarðan - 01.12.2009, Qupperneq 14
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009
RANNSóKN
14
Á síðastliðnum áratug hefur íslenskt sam-
félag orðið mun fjölbreyttara en áður með
vaxandi fjölda einstaklinga af erlendum upp-
runa sem hluta af landi og þjóð. Einstaklingar
frá öðrum löndum hafa sest að á Íslandi og
ættleiddum börnum fjölgar. Oft má heyra
vísað til Íslands sem fjölmenningarlegs sam-
félags og hve mikilvæg fjölmenning sé til að
auðga land og þjóð. Samhliða má þó heyra
raddir sem gagnrýna fjölmenningarlegar
áherslur. Þessar öru breytingar á samfélaginu
kalla á aukinn skilning á hvaða merkingu
ólíkir einstaklingar leggja í fjölmenningarlegt
samfélag og hvernig þeir skilja fordóma og
virðingu.
Verkefnið Fordómar og virðing í íslensku sam-
félagi fékk styrk frá Þróunarsjóði innflytjenda-
mála fyrir árið 2009 til að kanna hugmyndir
um fordóma og fjölmenningarlegt samfélag á
Íslandi. Í því tilliti eru skoðaðar deilurnar sem
urðu haustið 2007 um endurútgáfu bókarinnar
Negrastrákarnir og rannsakað hvernig þær
endurspegla hugmyndir um virðingu, for-
dóma og umburðarlyndi í íslensku samfélagi.
Í takt við áherslur fræðimanna síðastliðin ár1
er í verkefninu litið á kynþáttafordóma í
tengslum við aðra fordóma, svo sem tengda
kynhneigð, kyni og trúarbrögðum. Hvernig
skilgreina einstaklingar fordóma? Þarf eða á
að taka tillit til ákveðinna hópa, til dæmis
hvað varðar grín, orðanotkun og myndbirt-
ingar, í samfélagi sem kallar sig fjölmenningar-
legt? Í hverju á virðing fyrir ólíkri menningu að
felast? Hvenær á hugtakið pólitísk rétthugsun
við og hvenær ekki? Hafa kynþáttafordómar
verið hluti af íslenskum veruleika eða eru þeir
eitthvað nýtt?
Rannsóknin felur í sér textagreiningu og við-
töl. Megin gagnasöfnun fór fram árið 2009
eins og fyrr var sagt en einhverjum hluta
gagna var þó safnað í lok árs 2008. Greindur
var texti blaðagreina, sjónvarpsefnis og blogg-
skrifa frá þeim tíma sem umræður um endur-
útgáfu bókarinnar stóðu sem hæst. Mikil
umræða um útgáfuna fór fram í bloggheimum
og er hún skoðuð sérstaklega í rannsókninni.
Alls hefur verið safnað 101 bloggfærslu sem
og athugasemdum við færslurnar. Fræðimenn
hafa bent á að bloggfærslur fela í sér víð-
tækar samræður við samfélagið þar sem ein-
staklingar skapa og kynna sjálfsmynd sína.2 Í
þeim umræðum sem spunnust á blogginu
spurðu margir hvort bókin ætti heima í fjöl-
menningarlegu samfélagi nútímans. Aðrir
töldu að bókin fæli ekki sér neina fordóma og
höfðu sumir þeirra áhyggjur af að hér væri
um tilraun til ritskoðunar að ræða.
Viðtöl hafa verið tekin við fjölbreyttan hóp
einstaklinga, bæði þá sem fæddir eru og
uppaldir á Íslandi og fólk af erlendum uppruna
með fjölþættan bakgrunn. Tekin eru rýnihópa-
viðtöl og einstaklingsviðtöl. Við afmörkun á
rýnihópum var haft í huga að um er að ræða
barnabók, enda mátti sjá á blogginu að um-
Fordómar og virðing í íslensku samfélagi
Megininntak: Að kanna hugmyndir um fordóma
og fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi.
Leikskólakennarar og grunnskólakennarar sitja í rýnihópum
ásamt starfsfólki í bókabúðum og fólki af erlendum uppruna.
Niðurstöður verða birtar í síðari hluta greinarinnar.
Fyrri hluti
Bókin Negrastrákarnir
og fjölbreytileiki á Íslandi
Nýjar raNNsókNir
Kristín Loftsdóttir