Skólavarðan - 01.12.2009, Page 15

Skólavarðan - 01.12.2009, Page 15
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009 RANNSóKN, FRéTTIR 15 ræður snerust oft um fordóma í tengslum við börn og barnauppeldi. Foreldrar barna af erlendum uppruna óskuðu einnig sérstaklega eftir að bókin yrði ekki höfð aðgengileg á skóla- og leikskólabókasöfnum. Því var lögð áhersla á það í rannsókninni að tveir rýni- hópar (af fjórum) væru annars vegar skipaðir grunnskólakennurum og hins vegar leikskóla- kennurum. Aðrar rannsóknir mínar á fordómum og kyn- þáttahyggju hafa snúið að birtingarmyndum fjölmenningar í námsbókum og aðalnámskrá, sem og að skoða hugmyndir um litarhátt í eldri og nýrri námsbókum3. Það verður því áhugavert að tengja umræðuna hér við niður- stöður fyrri rannsókna. Þriðji rýnihópurinn samanstóð af starfsfólki bókaverslana sem sagði bæði sína persónulegu skoðun á bókinni og veitti upplýsingar um viðtökur hennar og umræður um hana í bókabúðum þegar hún var gefin út. Fjórði rýnihópurinn samanstóð svo af einstaklingum af erlendum uppruna, flestir frá Evrópu og Norður-Ameríku. Þeir fjölluðu bæði um hvernig umræðan um endur- útgáfuna kom þeim fyrir sjónir og reynslu sína af viðhorfi Íslendinga til fólks af erlendum uppruna. Einstaklingsviðtölin hafa verið afmörkuð við tvo hópa. Annars vegar einstaklinga frá ýmiss konar stofnunum og samtökum sem dýpka upplýsingar um útgáfu bókarinnar eða við- brögð við henni, svo sem bókaútgefendur, bókasafnsstarfsmenn og fulltrúar félagsam- taka sem berjast gegn fordómum. Hins vegar eru einstaklingar sem eiga börn með dökkan litarhátt eða eru sjálfir dökkir á hörund. Rannsóknin leitar því eftir að tengja viðhorf þessara einstaklinga af bókinni við upplifun þeirra af fjölmenningarlegu samfélagi á Íslandi. Tekin hafa verið fjórtán einstaklings- viðtöl sem kalla fram dýpri og persónulegri sýn á þau flóknu mál sem fjallað er um. Viðtöl við rýnihópa og einstaklinga eru í trúnaði og í miðlun niðurstaðna verður ekki hægt að greina við hvaða einstaklinga var rætt nema í tilfellum þar sem þeir óska eftir að koma fram sem fulltrúar samtaka eða hópa. Niðurstöður rannsóknarinnar verða settar í sögulegt samhengi við viðhorf Íslendinga til fjölbreytileika og er bókin sjálf kjörið tæki- færi til að skoða sögulegar breytingar og sam- fellu hugmynda um kynþætti. Vísan um negrastrákana er talin upprunnin árið 1864 og var viðfangsefnið þá indíánastrákar, hún hefur verið útgefin og staðfærð í ólíkum löndum á mismunandi tímum. Hér á landi var bókin myndskreytt af Guðmundi Thorsteins- syni, eða Mugg, og vísurnar þýddar af mági hans Gunnari Egilssyni. Hún kom fyrst út árið 1922 hér á landi og var endurútgefin margoft eftir það, kvæðin urðu vinsæl á jólaplötum og oft sungin á jólaskemmtunum í grunnskólum. Nokkrir viðmælendur í rýnihópum hafa einmitt rifjað upp kynni sín af bókinni í leikritum fyrr á tímum og að syngja lögin á jólaskemmtunum sem börn. Umræða um fjölmenningarlegt samfélag á Íslandi virðist oft vera einskorðuð við fólk af erlendum uppruna, rétt eins og fjölmenning snúi eingöngu að minnihlutahópum. Það er mikilvægt að leggja áherslu á að umræða um fjölmenningarlegt samfélag verður líka að snúa að þeim sem eru í meirihluta og fjöl- breytileika þess hóps. Rannsóknin reynir jafn- framt að bregðast við skorti á fræðilegum rannsóknum á fordómum í íslensku samhengi. Hún reynir að draga fram túlkun ólíkra hópa á fordómum og kortleggja sum af þeim mikil- vægu málefnum sem tekist er á um í íslensku samfélagi. Kristín Loftsdóttir Höfundur er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. 1 Harrison, F. V. 2002. “Unraveling “Race” for the Twentieth- First Century,” in Excotic No More: Anthropology on the Front Lines. Edited by J. MacClancy, pp. 145-166. Chicago and London: University of Chicago Press. 2 Havern, Vincent W. (2004) Threaded Identity in Cyberspace: Weblogs and Positioning in the Dialogical Self. Identity: An International Journal of Theory and Research, 4(4):321-335. 3 Til dæmis: Kristín Loftsdóttir. 2007. Hin mörgu andlit Íslands: Framandleiki og fjölmenning í námsbókum. Netla - veftímarit um uppeldi og menntun. Kristín Loftsdóttir. 2005. Menntaðar og villtar þjóðir: Afríka í texta íslenskra námsbóka. Uppeldi og menntun 14:71-101. Hvenær á hugtakið pólitísk rétthugsun við og hvenær ekki? Hafa kynþáttafordómar verið hluti af íslenskum veruleika eða eru þeir eitthvað nýtt? Stjórn KÍ ákvað á fundi sínum þann 20. nóvember sl. lækkun félagsgjalds til Kennarasambands Íslands. Þannig mun félagsgjald til KÍ lækka frá og með 1. janúar 2010 úr 1,55% af grunnlaunum niður í 1%. Ákvörðun gildir fram að næsta þingi KÍ sem haldið verður í apríl 2011. Þessi ákvörðun er tekin á grundvelli endurskoðaðrar fjárhagsáætlunar þar sem lagt var upp með að gæta ýtrasta aðhalds í rekstri. Fjárhagsleg staða félags- og vinnudeilusjóðs KÍ er sterk þar sem rekstur Kennara- sambandsins hefur verið með þeim hætti að hægt hefur verið að leggja fyrir fjármuni til að eiga fyrir óvæntum útgjöldum. Stjórn KÍ væntir þess að ákvörðunin komi sér vel fyrir félagsmenn þar sem hver króna skiptir miklu máli í rekstri heimila um þessar mundir. Ágætu félagsmenn Stjórn verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ hefur ákveðið að hækka eftirfarandi styrki. Hækkunin tekur gildi 1. janúar 2010. • A hluti – Starfsmenntunarstyrkur hækkar úr kr. 120.000 í kr. 145.000 á tveggja ára tímabili. Heimild til að bæta við við- miðunartölur vegna dýrari fargjalda á nám- skeið/ráðstefnur/kynnisferðir utan Evrópu hækkar úr kr. 15.000 í kr. 30.000. • C hluti – Hópstyrkir vegna náms- og kynnis- ferða skóla/stofnana hækkar úr kr. 70.000 í kr. 95.000. Bestu kveðjur, Bergþóra Þorsteinsdóttir, formaður Verkefna- og námsstyrkjasjóðs FG og SÍ Gjöld félagsmanna til KÍ lækka um þriðjung Hækkun styrkja FRÁ VERKEFNA- OG NÁMSSTyRKJASJÓÐI FG OG SÍ

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.