Skólavarðan - 01.12.2009, Síða 24

Skólavarðan - 01.12.2009, Síða 24
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 200924 FRéTTIR Úrslit í landskeppni eTwinning skólaárið 2008-09 voru kynnt á Písa í Lækjargötu þann 16. október síðastliðinn. Veitt voru verðlaun í flokkum leik-, grunn- og fram- haldsskóla. Verðlaunin voru öflug stafræn myndbandsupptökuvél sem Katrín Jakobs- dóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti. eTwinning er áætlun ESB um raf- rænt samstarf skóla í Evrópu. Land- skrifstofa eTwinning er Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins. Nánari upplýsingar á heima- síðu landskrifstofunnar: www.etwinning.is Verðlaunaverkefnin og umsögn dómnefndar: Bakki (Reykjavík), Rakel G. Magnúsdóttir: Through the children's eyes Þetta er spennandi og einfalt verkefni þar sem mörg börn eru virkir þátttakendur. Verkefnahugmynd er góð og vel útfærð. Verkefnið ýtir undir skapandi starf og sýnir hvernig börn geta skynjað heiminn og skrásett með aðstoð stafrænnar ljósmyndatækni. Verkefnið fellur vel að útikennslu og náttúru- skoðun. Þetta er samvinnuverkefni nokkurra landa og börn sem tóku þátt gátu því skyggnst inn í heim barna í öðrum löndum í gegnum sjónarhorn þeirra, sérstaklega hvað varðar árstíðir og umhverfi. Þetta er gott dæmi um verkefni sem myndar samfellu milli skólastiga og verkefni sem er unnið í samstarfi við foreldra. Flataskóli (Garðabæ), Kolbrún Svala Hjaltadóttir: Schoolovision Stórt evrópskt verkefni sem skólar úr mörgum löndum Evrópu taka þátt í, einn úr hverju landi. Verkefnið tvinnar saman tækni og listir, tengist dægurmenningu og líkir í sumu eftir söngvakeppni Evrópulanda, Evrovision, með söngkeppni þar sem úrslit ráðast gegnum kosningu og rauntímatengsl eru við aðra skóla. Hvert land sendir inn upptöku á einu söngatriði þar sem myndmál er einnig mikið notað og veitir gjarnan innsýn í viðkomandi skóla. Verkefnið er til þess fallið að virkja marga nemendur og auka samkennd innan skóla, það tengist landafræðikennslu og veitir innsýn í mismunandi hefðir og menningarheima þegar nemendur skoða upptökur af dans- og söngatriðum hinna þátttökulandanna. Verzlunarskóli Íslands, Hilda Torres: Are we so different? ¿y tú cómo vives? Viðamikið og flott verkefni og ljóst að þátttakendur hafa lagt mikla alúð og vinnu í það, bæði nemendur og kennarar. Nemendur í þátttökulöndunum tveim höfðu mismunandi markmið að hluta, íslensku nemendurnir voru fyrst og fremst að læra spænsku en þeir spænsku lærðu ensku og dálitla íslensku. Áhugavert var að sjá hvernig tókst að leysa þetta og vinna með mismunandi tungumál. Dæmi um skemmtilega notkun á upplýsingatækni eru hljóðupptökur á vefsvæðinu voxopop. Unnið var með þemu sem greinilega féllu að áhugasviði nemenda og hefur það eflaust aukið áhuga þeirra á náminu. Augljóslega hefur lifandi og skemmtilegt tungumálanám átt sér stað í þessu verkefni. Guðmundur Ingi Markússon Höfundur er verkefnisstjóri hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. „Ég heiti Katrín Birna Þráinsdóttir og bý á Hornafirði. Þar er ég með verkstæðið BjarmaBerg og sérhæfi mig í að gera við blásturshljóðfæri og hljóðfærakassa. Ég hef starfað sem tónlistarskólakennari við Tónskóla A-Skaftafellssýslu frá árinu 2003 þar sem ég kenni á tréblásturshljóðfæri og hef sinnt hljóðfæraviðgerðum samhliða kennslu undanfarin þrjú ár. Einnig hef ég sótt og sæki nám í blásturshljóðfæraviðgerðum til Wales í Bretlandi og Bandaríkjanna. Ég hef fengist við ýmiss konar handverk í gegnum tíðina enda alltaf haft mikinn áhuga á að búa til og gera við hluti. Mest hef ég unnið með leður, steina og hreindýrahorn en einnig gert við reiðtygi. Verkstæðið er á heimili mínu þar sem ég hef komið upp vinnuaðstöðu. Varahluti fyrir viðgerðirnar flyt ég inn frá Bretlandi og Bandaríkjunum og hef byggt upp lager varahluta fyrir algengustu hljóðfærin. Þar sem hljóðfæri eru verðmæt tel ég fulla ástæðu til að bjóða upp á viðhalds- og viðgerðarþjónustu til að lengja líftíma þeirra og auðvelda nemendum tónlistarnám. Ég legg áherslu á að viðgerðarferlið sé eins stutt og kostur er og því er mikilvægt að viðskiptavinir kanni verkefnastöðu BjarmaBergs áður en hljóðfæri eru send af stað. Við flutning hljóðfæra mæli ég með að þau séu send með póstinum, Tóna- stöðin í Skipholti er með móttöku á hljóðfærum fyrir mig og þangað er því hægt að fara með þau og sækja að viðgerð lokinni. Nánari upplýsingar er að finna á www.bjarmaberg.is og í síma 6151231. Kær kveðja, Katrín Birna.“ Verðlaun í landskeppni eTwinning skólaárið 2008-2009 Versló, Flataskóli og Bakki fengu verðlaun Kennari gerir við hljóðfæri Skólavarðan fékk Katrínu Birnu Þráinsdóttur til að kynna sig og viðgerðaverkstæðið sitt en svona verkstæði eru ekki á hverju strái. Katrín Birna að störfum á verkstæðinu.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.