Skólavarðan - 01.12.2009, Síða 26

Skólavarðan - 01.12.2009, Síða 26
KENNARAR í HjÁLPARSTöRFUM SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 200926 UNDAC (United Nations Disaster Assess- ment and Coordination Team) er hamfara- matsteymi sérfræðinga sem starfar innan Sameinuðu þjóðanna. Það samhæfir aðgerðir alþjóðasamfélagsins í kjölfar hamfara, setur upp og rekur samhæfingastöðvar, tryggir samvinnu við stjórnvöld og stjórnendur skaðalands, metur umfang hamfara og stjórnar komu og brottför erlendra hjálpar- liða. Á viðbragðslista UNDAC eru tvö hundruð manns víðs vegar að úr heiminum og þeir verða að vera tilbúnir til að fara með skömmum fyrirvara hvert á land sem er. Einn þessara er Ólafur Loftsson formaður Félags grunnskólakennara. Ólafur hefur verið í Hjálparsveit skáta í Reykjavík frá átján ára aldri og þegar honum bauðst þátttaka í UNDAC var erfitt að víkjast undan. „Eftir að hafa borið málið undir fjölskylduna, stjórn Kennarasambandsins og aðra samstarfsmenn og fengið grænt ljós alls staðar, þá varð þetta að veruleika,“ segir Ólafur. „Þetta virkar þannig að ég verð að gefa kost á mér einu sinni á ári hið minnsta og dvelja í eina til þrjár vikur á skaðasvæði. Það sem þeim hjá UNDAC þótti fengur í var að ég þekki til stjórnsýslu og samningatækni auk bakgrunnsins í björgunarstarfinu.“ Ólafur var ráðinn til starfans og fær að launum einn bandaríkjadal annað hvort ár þar sem hann getur ekki, lögum samkvæmt, verið starfsmaður Sameinuðu þjóðanna ef hann þiggur engin laun. „Ég fékk að vita að ég hefði verið valinn í þetta á tuttugu ára brúðkaupsafmæli okkar hjóna,“ segir Ólafur. En af hverju gaf hann kost á sér? „Þetta er snúin spurning,“ segir Ólafur og brosir. „Eru ekki allir í einhverju? Þetta var bara eðilegt framhald á því sem ég hafði fengist við, ég var búinn að taka þátt í mjög mörgum útköllum hérna heima. Svo er það nú líka bara þannig að það þýðir ekki að vera stöðugt að þiggja frá öðrum og tíma svo aldrei að gefa neitt. Loks spilar ævintýramennska örugglega eitthvað inn í þetta líka.“ Nýverið fór Ólafur í fyrstu ferðina sem UNDAC-liði til Filippseyja þegar von var á fellibylnum Lupit, en sem betur fer sveigði sá skaðræðisgripur af leið og hélt á brott frá Filippseyjum. Nokkrir fellibylir voru þó búnir að ganga yfir landið og í flóðunum sem þeim fylgdu létust á annað þúsund manns. „Þegar jarðskjálftar verða,“ segir Ólafur, „þá þarf viðbragðshraði hjálparliða að vera enn meiri en til dæmis í flóðum. Ástæðan er sú að flestallir eða allir sem láta lífið í flóðum gera það á fyrstu mínútunum en eftir jarðskjálfta geta margir verið enn á lífi, grafnir í rústum. Þar sem Lupit lét til allra heilla varla sjá sig þá fór teymið mitt beint í að aðstoða við mat á þörf fyrir neyðaraðstoð vegna flóðanna. Það tekur allt að hálft ár að koma samfélaginu á réttan kjöl eftir þessar gífurlegu hörmungar,“ segir Ólafur. „Filippseyjar eru fjölmennt land og tíu miljónir manna eða fleiri hafa orðið fyrir skaða af völdum fellibylja sem fóru yfir landið á nokkurra vikna tímabili.“ keg Eru ekki allir í einhverju? Hér sést ferill fellibylsins Lupit. Jeepknee. Mjög algengt faratæki í Manila sem dregur nafn sitt af því að það er svo þröngt um fótleggina að hnén rekast í. Fundað um næstu skref fyrir utan OSOCC, en það er skammstöfun fyrir samhæfingarmiðstöðvarnar (On-Site Operations Coordination Centre). Ólafur nýlentur heima eftir sautján tíma flug frá Manila. Lj ós m yn d ir : Ó la fu r Lo ft ss on UNDAC hópurinn frá Sameinuðu þjóðunum ásamt aðstoðarmönnum. Skóli á flóðasvæðinu. Skipulagsfundur með fulltrúum frá stofnunum UN og hjálparstofnunum. Hluti af búnaði UNDAC liða sem UN leggur til.

x

Skólavarðan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.