Skólavarðan - 01.12.2009, Side 28

Skólavarðan - 01.12.2009, Side 28
SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 9. ÁRG. 2009 MENNTAMÁL Á ÞjóÐFUNdI 28 Menntamál voru í fyrsta sæti af þeim níu meginþemum sem þjóðfundurinn 2009 valdi laugardaginn 14. nóvember sl. til að vísa veginn til framtíðar. Önnur þemu voru þessi: Umhverfismál, fjölskyldan, velferð, atvinnulíf, sjálfbærni, jafnrétti og stjórnsýsla. Átján þemasetningar um framtíðarsýn í menntamálum voru settar fram á fundinum. Þemasetningarnar átján: 1 Við viljum metnaðarfulla menntastefnu sem byggist á jafnrétti til náms óháð efnahag. Jafnframt þarf aukna áherslu á einstaklingsmiðað nám, verknám og góð tengsl skólastarfsins við íþróttahreyf- inguna. 2 Að stjórnsýsla grunn-, framhalds- og háskóla auki áherslu á nýsköpun og verkmenntun. Leggja áherslu á gjald- frjálsar skólamáltíðir, skólabúninga og útrýmingu eineltis. 3 Byggjum sjálfstætt og gagnrýnið þekk- ingarþjóðfélag þar sem allir hafa jafnan rétt til fjölbreytts, skapandi, bóklegs og verklegs náms alla ævi. 4 Við viljum menntun fyrir alla óháð efnahag, öflugt menntakerfi með öflugri stoðþjón- ustu, þar sem siðfræði er rauður þráður gegnum allt kerfið. 5 Menntun mótist af lýðræðislegri skapandi og gagnrýnni hugsun og varðveislu menningararfleifðar, jafnhliða því að efla rannsóknir og vísindi. 6 Menntakerfi sem byggist á jafnrétti, fjöl- breytni og nýsköpun, sem styrkir einstak- linginn með krafti og frumkvæði svo hæfileikar allra njóti sín. 7 Allir hafi jafnan rétt til góðrar menntunar með tilliti til hæfni einstaklingsins. Ríku- legt menningarsamfélag með verndun íslenskrar tungu að leiðarljósi. 8 Öllum skal tryggt jafnrétti til náms við hæfi. þar sem eineltisofbeldi er útrýmt. Sérstök áhersla á fjármálalæsi, gagnrýna hugsun og siðfræði. 9 Allir hafi jafnan rétt til góðrar menntunar með áherslu á tengingu við atvinnulífið og umhverfismennt og aukna fræðslu um gangverk þjóðfélagsins. 10 Við búum í þekkingarsamfélagi þar sem nýsköpun ríkir og allir hafa aðgang að námi, einstaklingurinn fær að njóta sín og áhersla lögð á sköpunargleði. 11 Framúrskarandi menntakerfi með jafnrétti til náms og tilliti til ólíkra sérþarfa, áherslu á fjölbreytt námsefni, m.a. siðfræði og forvarnir gegn tölvufíkn, árangursmat kennara tekið upp. 12 Ókeypis, vel skipulagt menntakerfi sem byggir á jafnræði og virðingu þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni og sköpun. 13 Sjálfstæð, vel menntuð og siðmenntuð þjóð sem veitir öllum jöfn tækifæri til menntunar og styður verkmenntun. 14 Börnin eru framtíð þjóðarinnar. Aukum gæði og valkosti menntunar, menningar �������������������������������������������������������������� ���������� ���������� ����������� ��������������� ���������� �������������� Menntun í fyrsta sæti á þjóðfundi KENNARAFÉLAG REyKJAVÍKUR FAGNAR ÁHERSLU ÞJÓÐFUNDAR Á MENNTUN Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur hefur ályktað um þá niðurstöðu þjóðfundarins að setja menntamál í fyrsta sæti í framtíðarsýn þjóðarinnar. Ályktunin er svohljóðandi: Stjórn Kennarafélags Reykjavíkur fagnar áherslum þjóðfundarins á gildi menntunar við gerð framtíðarsýnar fyrir íslensku þjóðina. Stjórn Kennarafélags Reykjavikur styður heilshugar að góð og fjölbreytt menntun sem byggist á jafnræði fyrir alla sé framtíðarstefna lands og þjóðar. Góð menntun eykur lífsgæði til framtíðar. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum föstudaginn 20. nóvember sl. að fela stýrihópi sóknaráætlunar fyrir Ísland að vinna með Mauraþúfunni, aðstandendum þjóðfundarins sem haldinn var 14. nóvember sl., að því að niðurstöður fundarins endurspeglist í sóknaráætluninni. og lista. Allir hafa sama rétt til náms, óháð fjárhag. Aukum markvissar forvarnir. 15 Ísland er alþjóðlega samkeppnishæft þekkingarsamfélag þar sem menntun er í forgangi og allir hafa tryggan aðgang að fjölbreyttu einstaklingsmiðuðu námi, s.s. iðnmenntun og rannsóknatengdu háskóla- námi byggðu á beinu lýðræði. 16 Á Íslandi ríki jafnrétti til náms, virðing verkmenntunar aukin, skapandi hugsun efld og gæði menntunar tryggð. 17 Tryggja jafnt aðgengi að góðu og öflugu menntakerfi þar sem áhersla er lögð á félagslega færni ásamt fjölbreyttum náms- tækifærum fyrir hvern einstakling. 18 Þekkingarsamfélag með gott menntakerfi sem býður upp á jöfn tækifæri til mennt- unar.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.