Skólavarðan - 01.08.2001, Síða 5
30 eininga viðbótarnám - ný leið fyrir kennara
Sífellt fleiri fagstéttir þurfa að takast á við erfiðar siðferðileg-
ar spurningar í starfi sínu. Þetta á ekki síst við um kennara.
Gerðar eru meiri kröfur um skipulega siðfræðikennslu bæði í
grunn- og framhaldsskólum og er nýrri námsgrein, lífsleikni,
m.a. ætlað að koma til móts við þær. Starfstengd siðfræði er
ný námsleið við heimspekiskor Háskóla Íslands þar sem eitt
meginmarkmiðið er að búa kennara undir að takast á við sið-
ferðileg álitamál í starfi sínu og kenna siðfræði. Í náminu
verður lögð áhersla á siðfræði heilbrigðisþjónustu, náttúru
og viðskipta auk siðfræði menntunar.
Starfstengd siðfræði er í umsjón Siðfræðistofnunar Há-
skóla Íslands og skipulögð í samvinnu við Kennaraháskólann
og Háskólann á Akureyri. Námið hefst í janúar 2002 og tekur
tvær annir. Lokaverkefni verður tengt vettvangsnámi og
unnið undir handleiðslu kennara við heimspekiskor. Í fram-
haldi af 30 eininga námi stendur til að bjóða upp á M.Paed
nám og almennt meistaranám í siðfræði og þá geta nem-
endur sem ljúka 30 eininga námi auðveldlega bætt meistara-
gráðu við síðar.
Markmið starfstengdrar siðfræði er einkum að kynna stúd-
entum kenningar í siðfræði, þjálfa þá í rökræðum og ákvörð-
unum um siðferðileg úrlausnarefni og kenna rannsóknarað-
ferðir í siðfræði. Á fyrra misseri, vormisseri, ljúka nemendur
15 einingum, úr þremur 5 eininga námskeiðum, en í boði
eru: Inngangur að siðfræði, þar sem farið er yfir helstu kenn-
ingar í siðfræði, Hagnýt siðfræði með áherslu á tengsl fræði-
legrar og hagnýtrar siðfræði og Málstofa um starfstengda
siðfræði þar sem lögð verður áhersla á raunhæf siðfræðileg
úrlausnarefni. Á síðara misseri, haustmisseri, ljúka nemend-
ur 10 einingum með vettvangsnámi og verkefni undir hand-
leiðslu kennara við heimspekiskor auk 5 eininga valnám-
skeiðs. Boðið er upp á fjölda valnámskeiða í samvinnu við
Kennaraháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri.
Sækja þarf sérstaklega um námið til Siðfræðistofnunar Há-
skóla Íslands og er umsóknarfrestur til 15. september. Um-
sækjendur verða að hafa lokið B.A., B.Sc. B.Ed. prófi eða
öðru sambærilegu háskólaprófi. Við mat á umsóknum er tek-
ið mið af einkunnum úr háskólanámi, starfsreynslu og með-
mælum. Allar frekari upplýsingar veitir Salvör Nordal, for-
stöðumaður Siðfræðistofnunar, í síma 525 4195 eða með
tölvupósti: salvorn@hi.is.
Starfstengd siðfræði
Frétt i r og smáefni
6
Í skýrslunni The Condition of Education 2001
sem gefin er út af tölfræðistofnun bandaríska menntamálaráðuneytisins kemur fram að nemendur úr
hópi nýbúa og þeir sem eiga foreldra, sem hafa ekki farið í háskólanám, ljúka síður háskólanámi en
nemendur þar sem a.m.k. annað foreldri er með háskólapróf. Einnig kemur fram að ef nemendur úr
fyrri hópunum tveim eru í krefjandi námsumhverfi á unglingsárum og jafnframt námi sem veitir góð-
an akademískan undirbúning aukast verulega líkur á að þeir fari í háskólanám og mjög dregur úr
brottfalli. Á heimasíðu tölfræðistofnunarinnar bandarísku er oft að finna áhugaverða umræðu, slóðin
er http://nces.ed.gov/index.html
Sá hluti vefsins sem hefur upplýsingar um árlegu skýrslurnar The Condition of Education er með
slóðina http://nces.ed.gov/programs/coe/
Söguvefur strik.is og Nýja bókafélagsins lofar góðu
Slóðin er http://www.strik.is/saga/ og í fyrstu er vefurinn „sniðinn að sögunámi á framhaldsskóla-
stigi en verður með tímanum almennur upplýsingavefur um Íslands- og mannkynssögu“, eins og
segir í kynningu. Á vefnum er spjall og tenglasafn auk ýmissa upplýsinga. Ef fer fram sem horfir ætti
vefurinn að geta nýst nemendum og áhugamönnum um sagnfræði sem víðtækur leitar- og námsvef-
ur, en það á eftir að koma í ljós enda fremur lítið af efni og tenglum enn sem komið er.
Samvinnunám nýtur vaxandi vinsælda um þessar mundir
en í stuttu máli gengur það út á að nemendur vinna í hópum, hver ein-
staklingur ber persónulega ábyrgð en hópurinn er jafnframt samábyrg-
ur fyrir árangrinum. Á heimasíðu Ingvars Sigurgeirssonar er bent á
ýmsar áhugaverðar tengingar um samvinnunám, slóðin er
http://www.khi.is/~ingvar/samvinna.htm Önnur góð slóð með
mörgum krækjum um samvinnunám:
http://www.atozteacherstuff.com/articles/ cooperative.shtml
Bókavefurinn Project
Gutenberg
er uppfullur af bókum sem hægt er að sækja sér ókeypis, gömlum bókum sem höfundarréttur hvílir
ekki lengur á. Biblían, Heimskringla (á ensku), Drakúla, Hamlet og Myndin af Dorian Gray, ef bókin er til
á ensku eru miklar líkur á að þú finnir hana á www.gutenberg.net
V e f a n e s t i - V e f a n e s t i