Skólavarðan - 01.08.2001, Side 17
samstarf skipulagt (til dæmis innan greina,
árganga)? Hverjir sitja í kennararáði,
hvernig fara kennarafundir fram, hverjir
eru fagstjórar, árgangastjórar...?
• Hvernig eru nýir kennarar studdir í
starfi?
• Hvernig er félagsstarfi kennara háttað
og hvert er hlutverk skólastjóra hvað það
varðar?
• Hvernig er staðið að endur-
menntun?
• Hvernig er forfallakennsla
skipulögð?
Námsgögn og kennsla:
• Hvernig eru teknar ákvarðanir um inn-
tak kennslunnar og námsgögn?
• Hvaða framboð er á valgreinum svo og
tómstunda- og félagsstarfi á vegum skól-
ans? Hverjir sjá um skipulag og er úrbóta
þörf?
• Hvernig starfar skólasafnið og hvernig
er unnið með upplýsingalæsi?
• Hvernig er staða upplýsingatækni í
skólanum, nýting hennar í kennslu?
Samskipti:
• Hvernig er upplýsingum miðlað frá
stjórn til starfsmanna og nemenda og er
það daglega?
• Hversu virk er skólanefndin?
• Hvernig eru samskipti við þá sem
standa utan skólans og hvaða samskiptaað-
ferðir eru notaðar?
• Hvaða viðburðir tengja skólann við
samfélagið?
• Kynntu þér hverjir starfa í foreldraráði
og eru virkir í foreldrafélagi, einnig hverjar
áherslurnar eru.
keg
Ráð undir r i f i hver ju
19
Heyrst hefur að fjölmargir krakkar, ekki síst strákar, hafi
fyrst fengist til að opna bók og kynnst undraheimi hins
ritaða orðs í gegnum Harry Potter. En hvað tekur svo
við? Hér eru nokkrar góðar bækur sem eru ýmist fáan-
legar á ensku eða íslensku. Enskan þvælist ekki fyrir
hörðustu Harry Potter aðdáendum. Þeir eru svo spenntir
að þeir geta ekki beðið eftir nýjustu bókinni í íslenskri
þýðingu og eru fyrir vikið farnir að lesa heilu doðrant-
ana á máli Engilsaxa.
1. Artemis Fowl eftir Ioin Colfer. Þessi bók fæst hjá
Bóksölu stúdenta og kostar 1250 krónur. Framhald og
bíómynd eru á leiðinni og aðdáendur segja að Harry
Potter sé eins og mömmustrákur í samanburðinum. Fyr-
ir tíu ára og eldri.
2. Holes eftir Louis Sachar. Spennandi og drepfyndin en um leið átakanleg bók fyr-
ir tíu ára og eldri. Aðalpersónan heitir Stanley Yelnats...og nafnið er ekki það eina
sem má lesa jafnt aftur á bak og áfram í lífi og örlögum Stanleys og fjölskyldu hans.
3. Gyllti áttavitinn eftir Philip Pullman. Fyrsta bókin í syrpu, sumir segja að næstu
tvær séu enn betri þótt undirrituð skilji ekki hvernig það er hægt. Frábærar ævintýra-
bækur sem ná ekki síður til fullorðinna en barna. Settar í flokk með Narníubókunum
(C.S. Lewis) og Hringadróttinssögu Tolkiens en eru samt allt öðruvísi. Sumum finnst
byrjunin á fyrstu bókinni fráhrindandi, látið það ekki fæla ykkur frá að halda áfram.
Fyrir níu ára og eldri.
4. Illa byrjar það - úr bálki hrakfalla eftir hinn dularfulla Lemony Snicket (dulnefni).
Fyrsta bókin hefur verið þýdd. Saga sem byrjar illa og fer verr. Svolítið í anda Roald
Dahl, fyndin, kuldaleg og minnir krakka á að fullorðnir standa ekki alltaf með þeim.
Illa byrjar það er hins vegar mjög stutt bók og byggð upp eins og smásaga, þ.a.l.
ekkert í líkingu við að lesa heila og margslungna skáldsögu og ætti ekki að hafa
væntingar til hennar sem slíkrar. Þetta er atvikssaga (anecdote) en athyglisverð sem
slík. Fyrir níu ára og eldri.
5. The Dark is Rising eftir Susan Cooper. Fimm bóka flokkur, þar af heitir ein
bókanna sama nafni og flokkurinn en sú fyrsta heitir Over Sea, Under Stone. Þessar
bækur eru ekki nýjar af nálinni en að sögn þeirra sem til þekkja væru þær mun fræg-
ari en Harry Potter ef þær hefðu verið markaðssettar þó ekki væri nema að einum tí-
unda á við hann. Og það hljóta að vera meðmæli. Höfundur sækir í írskar og velskar
þjóðsagnir og vefur sögu sem mér skilst að haldi lesendum rækilega föngnum. Fyrir
tíu ára og eldri.
6. The Redwall Series eftir Brian Jacques, röð, tólfta bókin kom út í janúar á þessu
ári. Sökktu þér ofan í þennan heim og þú munt ekki iðrast þess, segja gagnrýnendur.
Þessar bækur eru að mati lesenda ævintýri eins og þau gerast best, spennandi, dul-
arfull, óvænt og skemmtileg. Fyrir níu ára og eldri.
7. The Prydain Series eftir Lloyd Alexander. Fyrsta bókin í röðinni heitir The Book
of Three. Þessar bækur eru nokkurra áratuga gamlar en standa alltaf fyrir sínu og
hafa nýlega verið endurútgefnar. Gagnrýnandi sem las þær þrettán ára gamall og
aftur nú í ár, 35 ára að aldri, segir að þetta hafi verið bækurnar sem komu honum á
bragðið að lesa, bækur sem lifa í huga, hjarta og sál, bækur sem gleymast aldrei.
8. First Test eftir Tamora Pierce. Fyrsta bókin í flokki fjögurra um stúlku sem langar
að verða riddari. Fyrir níu til tólf ára, góð miðaldalesning að mati þeirra sem til
þekkja. Pierce hefur skrifað fleiri bókaflokka sem njóta talsverðra vinsælda.
keg
Hvað er eiginlega hægt að lesa á
eftir Harry Potter?
Fleira gagnlegt á vefnum:
1. Í samráði við National College for
School Leadership (NCSL) í Bretlandi
hefur BBC útbúið gagnvirka efnið
Perspectives on Leadership sem hægt er
að nálgast á slóðinni http://www.
ncslonline. gov.uk/index.cfm?pageID=314
Skólastjórnendur geta lesið sér til og
leyst gagnvirk verkefni um hvernig
stjórnendur þeir eru, hvað er árangursrík
stjórnun og kynnt sér kenningar um
stjórnun.
2. Bandarísk síða með yfirskriftina
Leadership sem inniheldur mikið af hag-
nýtum greinum um stjórnun, http://www.
ncrel.org/sdrs/areas/le0cont.htm
3. Danmarks Skolelederforening,
www.dsnet.dk, gefur út tímaritið Forum
for Skoleledelse sem kemur út tíu sinn-
um á ári. Efni úr blaðinu er ekki birt á
vefnum en hins vegar ýmsar fréttir og
fleira gagnlegt fyrir skólastjórnendur, þar
er einnig hægt að panta áskrift að þessu
ágæta blaði.
4. Samband danskra sveitarfélaga,
Kommunernes Landsforening, heldur úti
öflugri heimasíðu og þar er m.a. hægt að
sækja bæklinginn Kompetenceudvikling
for skoleledere. Slóðin er
http://www.kl.dk /18171/
Þessi ráð eru að mestu fengin af heimasíðu PDOnline: Tools for Teachers sem er
fagsíða fyrir kennara og skólastjóra á vegum sjónvarpsstöðvarinnar TVOntario í
Kanada. Slóðin er www.2. tvo.org/pdonline
Bækur