Skólavarðan - 01.01.2003, Qupperneq 16
Gildistími kjarasamnings grunnskólans
(þ.e. grunnskólakennara og skólastjóra) er
til 31. mars á næsta ári og er því um eitt ár
þangað til fyrsta viðræðuáætlun vegna
gerðar nýrra samninga þarf að liggja fyrir.
Síðan renna kjarasamningar annarra hópa
út hver af öðrum. Kjarasamningur fram-
haldsskólakennara 30. apríl, leikskólakenn-
ara 31. ágúst og tónlistarskólakennara 30.
september.
Segja má að ráðstefna Kjararáðs marki
upphaf undirbúnings fyrir næstu samn-
ingagerð og um leið upphaf að nýrri sókn
til enn betri kjara.
Í setningarávarpi sínu sagði Eiríkur Jóns-
son, formaður Kennarasambands Íslands,
að ef til vill fyndist mönnum ár langur
tími, en þeir sem þekktu til vinnu við und-
irbúning kröfugerðar og kjarasamninga
vissu að eitt ár væri fljótt að líða.
Kjarasamningar félaganna og launaþró-
un einstakra hópa voru kynnt á ráðstefnun-
ni.Tilgangurinn með henni var ekki síst sá
að bera saman kjarasamninga félaganna og
ræða ólíkt samningsumhverfi og áherslur
einstakra hópa, sem er forsenda þess að
samninganefndir geti tekið málefnalega
ákvörðun um hugsanlega samvinnu og
sameiginlegar áherslur í næstu kjarasamn-
ingum. Lagður var fram á ráðstefnunni ná-
kvæmur samanburður á efnisatriðum kjara-
samninga allra aðildarfélaga Kennarasam-
bandsins.
Það er einnig þýðingarmikið að leita út
fyrir múrana eftir nýjum hugmyndum í
kjarabaráttunni og upplýsingum um
reynslu annarra. Þess vegna voru fulltrúar
þriggja samstarfsaðila utan Kennarasam-
bandsins, Friðbert Traustason formaður
Sambands íslenskra bankamanna, Sjöfn
Ingólfsdóttir formaður Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar og Ína Hjálmarsdóttir
formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga,
fengnir til að fara nokkrum orðum um
samningamál félaga sinna.
Átta vinnuhópar störfuðu á þinginu og
fjölluðu um nokkrar lykilspurningar sem
tengjast næstu samningagerð, þ.á m.
áherslur varðandi launaliði, launasamsetn-
ingu og hugsanlegar sameiginlegar kröfur í
því sambandi, svo og áherslur varðandi
vinnutíma og sameiginleg réttindamál.
Samið verði um stórhækkun
grunnlauna
Vinnuhóparnir átta benda m.a. á
eftirfarandi atriði:
• Að leggja beri áherslu á stórhækkun
grunnlauna í næstu kjarasamningum
þannig að hægt sé að lifa sómasamlegu
lífi á þeim.
• Að ekki megi semja um launaliði til
langs tíma.
• Til greina komi að tvískipta samningum
þannig að samið verði um laun til styttri
tíma en um réttindamál til lengri tíma.
• Launasamsetning miðist við menntun,
starfsreynslu, ábyrgð og stjórnun.
• Draga eigi úr kennsluskyldu (einkum
grunnskólakennara og leikskólakennara)
og lengja undirbúningstíma.
• Leggja áherslu á nána samvinnu félag-
anna í réttindamálum, t.d. varðandi
sjúkrasjóð, orlofssjóð, viðbótar
lífeyrissparnað, tryggingamál, þ.m.t.
sjúkdómatryggingar.
• Staða trúnaðarmanna verði styrkt og
greitt fyrir störf þeirra.
• Leggja beri áherslu á að grunnskóla-
kennarar og skólastjórar geri tvo aðskilda
kjarasamninga.
• Skilgreina þurfi starfssvið og vinnutíma
skólastjóra grunnskóla.
• Skilgreina þurfi vinnutíma leikskólastjóra.
Kjararáðstefna
18
Kjararáð Kennarasambands Íslands
kallaði fulltrúa samninganefnda allra
aðildar-félaga sambandsins til ráð-
stefnu um samningamál föstudaginn
17. febrúar. Þetta er fyrsta ráðstefnan
sem haldin er á vegum Kjararáðs sem
er sameiginlegur vettvangur aðildar-
félaga Kennarasambandsins um
stefnumörkun í kjarasamningum.
Upphaf sóknar
til enn betri kjara
Þróun dagvinnulauna frá ágúst 1996 til nóvember 2002