Skólavarðan - 01.01.2003, Síða 17
Dagvinnulaun leikskólakennara
lægri en annarra kennara
Á ráðstefnunni kynnti Oddur Jakobsson
fulltrúi Félags framhaldsskólakennara í
Kjararáði yfirlit byggt á gögnum frá KOS
um launaþróun hjá þremur hópum kennara
sem starfa í framhaldsskólum, grunnskól-
um og leikskólum Reykjavíkurborgar.
Ekki liggja fyrir sambærilegar upplýsingar
hjá KOS um launaþróun tónlistarskóla-
kennara. Í yfirlitinu kemur fram að meðal-
dagvinnulaun leikskólakennara eru talsvert
lægri en grunnskólakennara og framhalds-
skólakennara.
Þegar þróun dagvinnulauna frá nóvem-
ber 2000 til nóvember 2002 hjá þessum
þremur hópum er skoðuð kemur í ljós að
mánaðarleg meðal dagvinnulaun leikskóla-
kennara eru kr. 56.881 lægri en framhalds-
skólakennara og kr. 29.881 lægri en
grunnskólakennara.
Í nóvember 2002 voru meðal dag-
vinnulaun þessara hópa sem hér segir:
• Framhaldsskólakennarar kr. 222.181
• Grunnskólakennarar kr. 205.229
• Leikskólakennarar kr. 175.300
Til samanburðar voru meðal dag-
vinnulaun sömu hópa í desember 2000:
• Framhaldsskólakennarar kr. 135.195
• Grunnskólakennarar kr. 139.373
• Leikskólakennarar kr. 121.328
Af þessu má ráða að leikskólakennarar
muni í næstu kjarasamningum leggja mikla
áherslu á hækkun grunnlauna og að þeir fái
sömu laun og aðrir kennarar með sam-
bærilega menntun.
Meðaldagvinnulaunin 215.000 kr. í
lok samningstímans
Eins og fyrr segir ná upplýsingar KOS
ekki til launaþróunar tónlistarskólakenn-
ara, en í kynningu á kjarasamningi FT á
ráðstefnu Kjararáðs voru gefin dæmi um
laun tónlistarskólakennara. Þar kom fram
að grunnlaun byrjanda, 27 ára með BA
próf eða samsvarandi og 6 launaflokka úr
potti, eru kr. 155.146 á mánuði.
Meðalkennarinn, sem er 43 ára, meða 2
ára framhaldsnám og 6 launaflokka úr
potti, hefur kr. 198.033 í grunnlaun.
Meðaldagvinnulaun tónlistarskólakenn-
ara voru um kr. 123.000 fyrir samninga, en
verða tæplega 215.00 krónur á mánuði í
lok samningstímans.
Hlutur dagvinnulauna hefur aukist
hjá framhaldsskólakennurum
Hlutur dagvinnulauna í heildarlaunum
framhaldsskólakennara hefur aukist á
samningstímanum, en við gerð núgildandi
kjarasamnings framhaldsskóla settu samn-
ingsaðilar sér það markmið að auka hlut
dagvinnulauna. Samkvæmt yfirlitinu um
launaþróun eru dagvinnulaun framhalds-
skólakennara nú rösk 70% af heildarlaun-
um þeirra. Hlutur dagvinnulauna er milli
80 og 90% hjá grunnskólakennurum og
leikskólakennurum.
Dagvinnulaun framhaldsskólakennara
fyrstu 11 mánuði ársins 2002 voru að með-
altali kr. 221.320 á mánuði en heildarlaun
að meðaltali kr. 297.455.
Á sama tímabili voru dagvinnulaun
grunnskólakennara að meðaltali kr. 203.992
en heildarlaun kr. 238.136.
Dagvinnulaun leikskólakennara voru
kr. 167.712 að meðaltali en heildarlaun
kr. 192.576.
Helgi E. Helgason
Kjararáðstefna
19