Skólavarðan - 01.01.2003, Qupperneq 19
heiti okkar á þeim tíma, var inntökuskilyrði
próf frá húsmæðraskóla eða álíka grunn-
menntun í hannyrðum. Nú útskrifar Kenn-
araháskóli Íslands textílkennara en inn-
tökuskilyrði er aðeins grunnskólapróf í
textílmennt. Vekur það nokkra undrun því
að nokkrir fjölbrautaskólar og iðnskólar
bjóða upp á list- og verknámsbrautir.Vorið
2002 útskrifuðust nemendur með 30 ein-
ingar í faginu. Að baki hverri einingu hafa
undanfarin ár staðið 30 kennslustundir, nú
er aðeins greitt fyrir 20 kennslustundir en
heimilt er að hafa þær aðeins 16.
Vorið 2003 útskrifast enginn nemandi
með próf í textílmennt. Við sem kennum
textílmennt í grunnskólum velt-
um stundum fyrir okkur hvort
ekki þyrfti að vera meiri sam-
vinna og tengsl milli KHÍ og
grunnskólanna. Nú fyrir stuttu
komu fulltrúar frá Samtökum
iðnaðarins fram í fjölmiðlum og
lýstu yfir áhyggjum sínum af
verkmenntakennslu í landinu.
Töldu þeir ekki lengur hægt að
ráðast í stór verkefni nema flytja
inn verkmenntað fólk. Slíkur
væri orðinn skortur á iðnmennt-
uðu fólki á Íslandi.
Í ár verða engin námskeið
haldin á vegum Félags textílkennara því að
félagið hefur ekki fengið neina styrki til
námskeiðahalds þetta árið.
Engin námskeið verða heldur haldin á
vegum KHÍ því að nú er grunnskólunum
ætlað að sjá kennurum sínum fyrir sí-
menntun eða endurmenntun. Við marga
skóla er aðeins einn textílkennari starfandi
og er því viss hætta á faglegri einangrun.
Eðlilega vakna því spurningar sem þessar:
• Hvert sæki ég endurmenntun mína
í faginu?
• Verð ég að fara út fyrir landsteinana?
• Hver borgar?
• Á ég eitthvað inni í Vonarsjóðnum?
• Vill skólastjórinn minn vera svo al-
mennilegur að borga fyrir mig nám-
skeið? Enn reynir á vald skólastjórans
og viðhorf.
• Hvar stendur greinin í forgangs-
röðuninni?
• Verð ég ef til vill að borga úr eigin vasa?
Er einhver hissa þó að við textílkennarar
höfum áhyggjur af framtíð greinarinnar?
Hafa einhverjir fleiri áhyggjur? Snúum
bökum saman og höldum vörð um verk-
mennt í landinu.
Ingibjörg Valdimarsdóttir
Höfundur er textílkennari í
Álftamýrarskóla.
Text í lmennt
21
„Ný kynslóð, sem hefur fengið helmingi minni kennslu í textílmennt, er vaxin úr grasi og í ljós hefur komið að flókin og vandasöm verktækni
lærist ekki á þeim stutta tíma sem greininni er ætlaður í kennslu“, segir Ingibjörg Valdimarsdóttir meðal annars í grein sinni.
Þann 17. janúar var dregið úr innsendum lausnum í verðlauna-
krossgátu Skólavörðunnar. Eftirtaldir félagar í Kennarasam-
bandi Íslands fá heimsendan bókapakka innan tíðar:
1. verðlaun: Stefanía Björnsdóttir,
Hlíðarhjalla 72, 200 Kópavogi
2. - 3. verðlaun: Ingi Árnason, Skógarási 13, 110 Reykjavík
og Sigurður Sigurðsson,
Tjarnarlöndum 13, 700 Egilsstöðum.
Vinningshöfum er óskað til hamingju með sigurinn.
Verðlaunahafarnir veiddir upp úr hatti
Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir er sérlegur hattari í Kennarahúsinu og
sést hér fiska lausnir verðlaunahafanna upp úr kassa sem var
staðgengill hattsins að þessu sinni.