Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 6
6
Skólavarðan 1. tbl. 2012
Texti og myndir: GG
Grunnþættirnir sjö á gólfið
Ný námskrá boðar hún breytingar? var yfirskrift ágústráðstefnu
Samtaka áhugafólks um skólaþróun (SÁS) 2012. Hún fjallaði um nýja
aðalnámskrá fyrir grunnskóla og var haldin í Ingunnarskóla 14. ágúst
sl. í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Rúmlega
fjögur hundruð kennarar og aðrir starfsmenn grunnskóla flykktust á
ráðstefnuna og komust færri að en vildu. Stjórnendur ráðstefnunnar
sögðu að áhuginn fyrir ráðstefnunni hefði farið langt fram úr vonum
þeirra og óneitanlega væri ánægjulegt að finna fyrir þeim lifandi áhuga
sem ríkti þar. Helgi Grímsson, formaður SÁS, setti ráðstefnuna en
Ólafur H. Jóhannsson stjórnaði ráðstefnunni og flutti inngangsorð en
síðan tóku frummælendur við.
Aðalnámskrá grunnskóla 2011 er um margt byltingarkennd og
boðar margvíslegar nýjungar og breytingar á skólastarfi á öllum
skólastigum á nýrri öld. Þar segir m.a. í öðrum kafla sem fjallar um
almenna menntun: „Almenn menntun byggist á fjölbreyttu námi á
meginsviðum menningar okkar, umhverfis og samfélags. Stefnt er að
almennri menntun í heildstæðu skólastarfi og námi á námssviðum, í
námsgreinum og námsáföngum. Skilgreining á grunnþáttum er tilraun
til að kortleggja þau meginsvið almennrar menntunar sem skólastarfið
stefnir að.“
Í sjöunda kafla segir m.a. að áhersla sé lögð á að allir nemendur eigi
rétt á að stunda nám við sitt hæfi. Tækifærin eigi að vera jöfn óháð
atgervi og aðstæðum hvers og eins. Þar stendur líka að skólinn eigi að
vera griðastaður barna þar sem þau finni til öryggis, fái tækifæri til að
þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar. Mikilvægt sé að
halda við eðlislægri forvitni barnsins þar sem hún sé ein mikilvægasta
forsenda alls náms. Leikurinn sé leið ungra barna til að læra á heiminn
og læra um heiminn. Miklu skipti að leiknum sem námsaðferð sé gert
hátt undir höfði í grunnskóla og sú áhersla einskorðist ekki við yngstu
nemendurna. Í þessum rétti felist einnig að bernsku- og æskuárin hafi
tilgang í sjálfu sér en séu ekki eingöngu undirbúningur fyrir frekara
nám og störf. Hér er háleitum markmiðum lýst og nýja námskráin
boðar margar spennandi nýjungar og nýja sýn á kennslu og námsmat
til framtíðar en sú spurning brennur á mörgum kennurum hvort
námskráin nýja sé raunhæf eða hvort hún birti draumsýn sem ekki sé
framkvæmanleg í skólunum sem flestir berjast við niðurskurð og þurfi
að hagræða í hvívetna. Víða í skólum séu hópar stórir og kennarar meta
það svo að þeir séu undir miklu álagi. Ráðstefnunni í Ingunnarskóla var
m.a. annars ætlað að varpa ljósi á spurningar eins og þessa.
Fulltrúar þeirra starfshópa sem samið hafa kafla um einstök
námssvið fjölluðu um grunnþættina, læsi, sjálfbærni, heilbrigði
og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun, og sýndu
með dæmum hvernig mætti útfæra þá í kennslunni. Hér á eftir fara
stuttir útdrættir úr máli þeirra. Síðasti frummælandinn, Þóra Björk
Jónsdóttir, fjallaði um nýja sýn námskrárinnar á námsmat. Að loknum
framsöguerindum gafst gestum ráðstefnunnar færi á að dýpka skilning
sinn með þátttöku í málstofum þar sem þeir gátu rakið garnirnar úr
námskrárhöfundunum.
Ágústráðstefna
Samtaka áhugafólks um skólaþróun
Á fimmta hundrað skólamanna fjölmenntu á ráðstefnu
um nýja aðalnámskrá grunnskóla.
RáÐstEfnuR