Skólavarðan - 01.09.2012, Page 31

Skólavarðan - 01.09.2012, Page 31
31 Skólavarðan 1. tbl. 2012sAmRæÐAn „Ef skólinn á að auka hæfni einstaklingsins til að „takast á við áskoranir daglegs lífs“ eða „efl a skilning hans á eiginleikum sínum“ er það brýnast verkefna að þróa kennsluhætti frá gömlum mötunar- aðferðum í átt að sjálfstæðari vinnu nemenda. Skólinn þarf að þróast frá félags- og fræðslumiðstöðvarforminu yfi r í það að vera vinnustaður nemendanna. Kennslufræðin hafa boðað það lengi að kennarinn er ekki lengur fræðari heldur verkstjóri. Skólarnir þurfa að taka mið af þessu með því að breyta námsaðstöðu og treysta nemendum fyrir viðameiri verkefnum sem reyna á hæfni þeirra og auka frumkvæði.“ „Háleit markmið nýrrar Aðalnámskrár leikskóla eru í sjálfu sér góð og göfug. Það er hins vegar fráleitt að ætla að gjörbylta öllu skólastarfi í leikskólum með innleiðingu nýrra grunnþátta án þess að veita aukið fjármagn í skólana og gefa þeim nauðsynlegan tíma. Starfsfólk leikskóla, sérstaklega sameinaðra leikskóla, hefur um langt skeið starfað undir miklu álagi án nokkurrar umbunar og það er hreint ekki á það bætandi.“ „Brýnustu verkefni skólanna á næstu árum eru óþrjótandi og tæplega öll fyrirséð. Þó er klárt að skólafólk þarf að leggja áherslu á grunngildin, svo sem vináttu, kurteisi, réttlæti og skynsemi, því ekkert hjálpar manneskjunni betur að skilja sjálfa sig og greiða sér leið í fl ókinni veröld. Það þarf að leggja áherslu á þekkingarleitina umfram þekkinguna sjálfa, námið frekar en kennsluna. Skólastarf þarf aukin heldur að lúta sama aðalmarkmiði og hlýtur að vera í lífi nu sjálfu, þ.e. að njóta þess, og lífsins verður ekki notið í námi án þess að leika, skapa og brosa.“ „Tónlistarnám er einstaklingsmiðað nám og því mikilvægt að horfa til fjölbreytileika nemendahópsins. Spyrja þarf hvernig best sé hægt að mæta þörfum hvers og eins í því skyni að auka gæði námsins enn frekar. Fjölbreytni og sveigjanleiki í kennsluháttum og námsmatsleiðum eru þar mikilvæg atriði. Það er spennandi verkefni fyrir okkur sem störfum við tónlistar- kennslu að þróa þátt sköpunar í náminu og gera nemendur virkari í öllu námsferlinu. Mikilvægt er að efl a kennaramenntun og auka áherslu á rannsóknir og þróunarstarf.“ „Ný námskrá gerir ráð fyrir að nám stuðli að fjölbreytilegri hæfni nemenda í fl óknu og síbreytilegu nútímasamfélagi en byggi ekki einungis á einstefnumiðlun þekkingar. Sjónarhornið er á hæfni nem- andans að námi loknu og það er knýjandi að breyta kennsluháttum í samræmi við það. Námskráin nýja kallar á fjölbreytilegri leiðir í námsmati þar sem árangur nemenda verður metinn út frá hæfnivið- miðum og námið verður mun verkefnamiðaðra. Launakjör kennara þurfa að vera í takti við þessa þróun og endurspegla breyttar áherslur í kennarastarfi nu.“ „Verkefni grunnskólanna á næstu árum eru fjölmörg og áhugaverð. Brýnt er að sinna enn frekar áhersluþáttum, svo sem að efl a félagsfærni nemenda, sjálfsvitund og gagnrýna hugsun. Það er mikilvægt að haga skólastarfi nu þannig að nemendur verði áhugasamir í náminu, þeir verði virkir þátttakendur, læri að vinna saman og tjá sig á fjölbreyttan hátt. Nútíminn er fl ókinn og sam- félagið tekur örum breytingum. Við þurfum því að huga vel að því að nemendur okkar fái haldbæra menntun sem gerir þá að þroskaðri einstaklingum, umhyggjusömum og skapandi.“ Halla Kjartansdóttir, kennslustjóri í Mennta- skólanum við Sund Ásmundur Kristberg Örnólfsson, aðstoðarleikskólastjóri á Ægisborg Þröstur Geir Árnason, framhaldsskólakennari í Verzlunarskóla Íslands Sóley Halla Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri Heiðarskóla Elín Anna Ísaksdóttir tónlistarskólakennari í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar Anna Metta Norðdahl, leikskólakennari Sólhlíð

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.