Skólavarðan - 01.09.2012, Page 38
38
Skólavarðan 1. tbl. 2012námsKRáRnAR
Texti: Haraldur Bjarnason
Myndir: JS
Fjögur hundruð og fimmtíu þátttakendur voru á málþingi sem haldið
var í Flensborgarskóla föstudaginn 31. ágúst sl. undir yfirskriftinni
„Lærum hvert af öðru - Virkjum grunnþættina.“ Nýútkomnar
aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla voru þar
lagðar til grundvallar og málþingið haldið í tilefni af útkomu þeirra.
Með útgáfu nýrra aðalnámskráa er brotið blað í íslensku skólastarfi.
Áherslan er færð á nemandann og hæfni hans til að takast á við
áskoranir daglegs lífs, starfsumhverfis og næsta skólastigs. Nám í skóla
felur ekki einungis í sér aukna þekkingu, leikni og hæfni í mismunandi
námsgreinum heldur stuðlar jafnframt að alhliða þroska allra nemenda
og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi. Liður í því er innleiðing
grunnþátta sem eru: læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og
mannréttindi, jafnrétti og sköpun.
Lærum hvert af öðru,
virkjum grunnþættina
Fjölsótt málþing í Flensborgarskóla.
Börn úr leikskólanum
Klömbrum.