Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 39

Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 39
39 Skólavarðan 1. tbl. 2012námsKRáRnAR Það voru Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands sem stóðu fyrir málþinginu í samvinnu við Flensborg. Málþinginu var varpað beint út á netið og þannig var hægt að fylgjast með því um allt land. Nemendur í fjölmiðlun við Flensborgarskóla áttu veg og vanda að útsendingunni undir stjórn kennara síns, Halldórs Árna Sveinssonar. Upptökur frá málþinginu má nálgast á fréttavef Flensborgar, gaflari.is. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra setti málþingið og flutti inngangsorð. Að því loknu tóku við fjögur inngangserindi um innleiðingu grunnþátta málþingsins og kölluðust þau kveikjur á dagskránni. Málstofurnar að loknum kveikjum voru fjórtán talsins og höfðu þessar yfirskriftir: 1. Jafnrétti í skólastarfi 2. Lýðræði og mannréttindi í skólastarfi 3. Heilbrigði og velferð í skólastarfi 4. Sköpun í skólastarfi 5. Sjálfbærni í skólastarfi 6. Læsi í skólastarfi 7. Þáttur nemenda 8. Þáttur stjórnenda 9. Áhrif á námsmat 10. Grunnþættir á yngra stigi og í leikskólum 11. Grunnþættir á unglingastigi og í framhaldsskólum 12. Grunnþættir í leikskólastarfi 13. Grunnþættir í grunnskólastarfi 14. Grunnþættir í framhaldsskólastarfi Námskrárnar eru grundvöllur fyrir samræðu Katrín Jakobsdóttir lýsti yfir ánægju sinni með að þessu málþingi hefði verið hleypt af stað og ekki síst hversu vel það væri sótt. Hún þakkaði gott samstarf við Samband íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Ekki síst sagðist hún þakka starfsmönnum og nemendum Flensborgar fyrir góðan undirbúning og vel væri við hæfi að halda málþingið í Flensborg sem ætti merkilegan stað í menntasögu landsins sem einn elsti skóli þess. Upphaflega sem barnaskóli, síðan gagnfræða- og alþýðuskóli. Þar hefði líka verið stofnað til kennarafræðslu árið 1891. Nýjasta tækni væri notuð við þetta málþing og nemendur fjölmiðladeildar í Flensborg vörpuðu inngangserindum á netið og hún bauð velkomna þátttakendur í málþinginu víða um land. „Almenn menntun var eitt af þremur atriðum sem Jón Sigurðsson forseti sagði grundvöll fyrir sjálfstæði Íslands og það hefur auðvitað gífurlega mikið breyst síðan Jón var að alast upp,“ sagði Katrín og bætti við að nýju námskrárnar væru grundvöllur fyrir samræðu um starfið í skólunum og hún væri jafnframt mikilvægur grunnur til að byggja ofan á þær. Því væri þetta málþing og málstofurnar sem því fylgdu góð byrjun. Hún talaði um sjálfbærni og hversu víðtækt það hugtak væri. „Sjálfbærni ætti að hafa í huga í öllu skólastarfi. Sjálfbær þróun snýr ekki bara að umhverfismálum. Hún snýr líka að menntamálum og samfélagsmálum,“ sagði Katrín. Hún sagði að menntun væri lykillinn að öllu í samfélaginu og nýju námskrárnar hefðu vakið það mikla athygli að horft væri til þeirra á hinum Norðurlöndunum. Þurfum að komast út úr kössunum Fyrsta kveikjan var í umsjá Ragnhildar Jónsdóttur fræðslustjóra Hornafjarðar. Hún varpaði á skjáinn landakorti með ör sem sýndi hvar Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Sjálfbærni ætti að hafa í huga í öllu skólastarfi. Sjálfbær þróun snýr ekki bara að umhverfismálum. Hún snýr líka að menntamálum og samfélagsmálum. „Menntun er lykill að öllu í samfélaginu.“

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.