Frón - 01.01.1943, Page 7
Til lesenda Fróns
Síðan sambandið við ísland var rofið hafa þeir íslendingar
sem dvelja á meginlandi Evrópu hvorki átt kost að lesa
nýjar íslenzkar bókmenntir né birta frumsamið íslenzkt lesmál
fyrir löndum sinum. Umræður um íslenzk menningarmál og
önnur þau framtíðarmál þjóðarinnar, sem yfirleitt er hægt að
ræða á þessum tímum, hafa aðeins getað farið fram í tiltölulega
fámennum hópum íslendinga á einstaka stöðum, Eins og skýrt
var frá í boðsbréfi því sem stjórn Félags íslenzkra stúdenta í
Kaupmannahöfn sendi út um stofnun þessa tímarits, er Fróni
ætlað að ráða nokkra bót á þessu meini. Aukin félagsstarfsemi
og félagsáhugi meðal íslendinga í Kaupmamrahöfn og annars-
staðar, þar sem flestir þeirra eru saman komnir, fengu hvata-
mönnum þessa fyrirtækis þeirrar sannfæringar, að slíku tímariti
myndi verða vel tekið, og undirtektir manna undir boðsbréfið
hafa sýnt að sú ályktun var rétt.
Til þess að koma fyrirætlunum sínum i framkvæmd verður
Frón að treysta á áhuga og góðvild þeirra íslendinga sem náð
verður til. Pað er nauðsynlegt skilyrði þess að efni tímaritsins
geti orðið svo fjölbreytt sem æskilegt er, að hægt verði að fá
sem flesta ritfæra menn til að leggja eitthvað af mörkum.
Stúdentafélagið hefur fengið styrk til útgáfunnar úr ríkissjóði
íslands og hefur sett sér það markmið að gera tímaritið sem bezt
úr garði og selja það sem ódýrast. Verður því ekki fé aflögum
til að greiða ritlaun fyrir efni það sem birt verður í Fróni, þótt
æskilegast væri. En hér verða allir íslendingar erlendis að hjálpast
að, og þess skal minnzt með þökkum, að þeir sem í þetta hefti
rita og aðrir, sem lofað hafa Fróni stuðningi síðarmeir, hafa allir
verið fúsir til að inna af hendi þá sjálfboðavinnu sem hér þarf
á að halda. Svo mun og vera um fleiri sem enn hefur ekki náðst
til. En lesendur Fróns geta hins vegar bezt sýnt þessum mönnum
viðurkenningu á starfi þeirra með því að auka útbreiðslu Fróns
1