Frón - 01.01.1943, Blaðsíða 17
Stofnun Félags íslenzkra stúdenta
11
hann hélt á stúdentafundi, — hann notaði orðið »reynsla«,
hugsaði sig svo um, eins og liann væri að Ieita að betra orði,
og sagði svo með mikilli áherzlu: »Erfaring«! Við bjuggum til
einskonar orðabók dansk-íslenzka, sem lá frammi á
fundum, og gátu menn þar stungið upp á nýyrðum, sem vert væri
að innleiða í stað útlendra orða. Ég veit ekki hvað um þá bók
hefur orðið síðar, — hún lá frammi á fundum nokkur ár —, og
sízt af öllu grunaði mig þá, að það ætti fyrir mér að liggja að
verja 22 árum af bezta skeiði æfi minnar til að vinna að þvi að
smíða íslenzka orðabók. Ég sé annars að 1897 á janúarfundi talar
Helgi Jónsson um ræktun Islands. Á aðalfundinum 6.
febrúar var, að undirlagi próf. Júlíusar Lassens, sem þá var nýlega
orðinn Garðprófastur og var Islendingum mjög velviljaður, rætt
um breytingu á Garðstyrknum, þannig að íslenzkir
stúdentar skyídu framvegis fá hann þá fyrst er þeir hefðu staðizt
heimspekispróf, en ekki strax og þeir kæmu til háskólans; mælti
það helzt með þessu, að reynsla þótti fengin fyrir því, að sumir
kæmu hingað og slæptust og skemmtu sér hér eitt eða tvö ár
og færu svo heim aftur án prófs, en slíkt gramdist auðvitað
mörgum, Dönum ekki sízt, og ýmsir íslenzkir stúdentar voru
líka gramir yfir þessu. F*ó sýndi það sig á fundinum að flestir
voru þessu mótfallnir, og varð svo ekkert gert frekar í því máli.
27. febr. voru þeir kvaddir Oddur Gíslason, siðar bæjarfógeti,
Kristján Kristjánsson læknir og Helgi Jónsson, sem þá höfðu
lokið prófi. Ég sé að Finnur Jónsson hefur 3. apríl talað um
íslenzka sagnaritun. Um vorið er Haraldur Níelsson
kvaddur og nokkru síðar Sæmundur Bjarnhéðinsson og Stein-
grímur Jónsson. 9. júní er nýjum heimspekingum fagnað með
púnsi, og seint um sumarið, 29. ágúst, er nýjum stúdentum fagnað.
Dr. Valtýr Guðmundsson heldur 1 e i ð a r þ i n g 10. okt. og
varð þá mikið rifrildi út af miðlun hans. 14. okt. er haldinn
almennur stúdentafundur, sem þeir boða til Jón
Eorkelsson frá Reynivöllum (síðar málafærslumaður), Jón Svein-
björnsson (síðar konungsritari), Haraldur l’órarinsson (þá mál-
fræðingur, síðar prestur) og Karl Nikulásson (þá dýralækninga-
nemi, síðar kaupmaður og konsúll). 31. okt. talar Bogi Melsteð
í Stúdentatelaginu, og aftur 4. desember. Voru nú flestir stúdentar
hér mjög andvígir stefnu Dr. Valtýs. Fundarályktanir, sem við
gerðum, voru prentaðar í blöðum heima, og blöð þeirra Valtýinga,
einkum »ísafold«, jusu skömmunum yfir okkur.
Ágúst Bjarnason var endurkosinn formaður á aðalfundi 1898,