Frón - 01.01.1943, Side 18
12
Sigfús Blöndal
en ég mun hafa farið úr stjórninni, vegna próflesturs aðallega.
5. febr. er haldið 5 ára afmæli félagsins með samsæti á Vatnsenda.
Var þá settur á stofn »afmælissjóSur« félagsins. Árni Pálsson,
síSar prófessor, mun hafa átt góSan þátt í því. Líka var þaS ár
talaS um aS reisa Jónasi Hallgrímssyni minnisvarSa, og minnir
mig aS bréf frá Eiríki Magnússyni, bókaverSi í Cambridge, til
Finns Jónssonar, hafi komiS því máli á staS. Á fundi 2. apríl
lagSi Bogi MelsteS fram bækling sinn: önnur uppgjöf
Islendinga, eSa hvaS? og sé ég aS síSar á árinu, 5. nóv.,
er rætt um aS félagiS greiSi aS einhverju leyti prentunarkostnaS
á því riti. Annars heldur GuSmundur Finnbogason fyrirlestur
3. maí um nýjan íslenzkan skáldskap, og 19. maí
er tekin mynd af öllum íslenzkum stúdentum, sem þá náSist í,
á GarSi.
Ég tók embættispróf þá um voriS, og í dagbókum mínum og
bréfum er ekki mikiS minnzt á stúdentafélagiS úr þessu. Ég sé
samt aS á fundi 19. júní er rætt um alþýSubækur og svo
um f r é 11 a þ r á S i n n. 30. ágúst held ég þar fyrirlestur um
T y r k j a r á n, og 12. sept. héldum viS skáldinu Matthíasi
Jochumssyni, sem þá dvaldi um hríS í Kaupmannahöfn, veglegt
samsæti á Hotel Alaska. Ágúst orti kvæSi honum til heiSurs, og
ég hélt ræSu og ýmsir aSrir; ég man aS gamla skáldinu líkaSi
þaS svo vel, aS hann drakk á eftir dús viS okkur Ágúst.
Ég hef þá lauslega fariS yfir helztu atriSin í sögu stúdenta-
félagsins hér á fyrstu fimm árum þess, einmitt meSan ég sjálfur
var stúdent og tók þátt í störfum þess. Svo komu nokkur ár þar
sem ég var hlaSinn störfum, — svo ferS mín til Englands, og
skömmu eftir aS ég kom hingaS aftur varS ég embættismaSur,
giftist og fékk þá mörgu aS sinna, sem dró mig frá samlífi viS
landa mína yfirleitt, miklu meira en ég hefSi óskaS, ekki sízt
eftir aS ég byrjaSi á orSabók minni áriS 1903. En mér þótti alltaf
vænt um félagiS, og ekki sízt hefur mér þótt vænt um þaS, aS
ég átti nokkurn þátt i því aS þaS komst á stofn á sínum tíma.
Minningin um þennan þátt úr æskulífi mínu er mér og verSur
kær, og ég er líka sannfærSur um aS þetta félag hefur veriS
ekki einungis gagnlegt fyrir íslenzka stúdenta hér aS ýmsu leyti,
heldur einnig hefur þaS vfirleitt veriS þjóSinni til gagns og sóma.