Frón - 01.01.1943, Page 25
Frá síðustu starfsárum Félags íslenzkra stúdenta
19
vitanlega haft meS höndum félagsmál í þrengri skilningi, hags-
munamál stúdenta og ýmiskonar mannfagnaö. FélagiS hefur alltaf
leitazt viS aS halda fram rétti stúdenta í öllum málum sem snertu
styrkveitingar, bæSi íslenzka ríkisins og SáttmálasjóSs, gjaldeyris-
yfirfærslur og önnur fjármál sem stúdenta hafa varSaö. Þó aS ár-
angurinn hafi oft veriS minni en til var ætlazt, hefur félaginu
öSru hvoru tekizt aS fá ýmsar kjarabætur stúdentum til handa,
sem óvíst er hvort nokkuS hefSi orSiS úr, ef málunum hefSi ekki
veriS fylgt stöSugt af félagsins hálfu meS bréfaskriftum, viStölum
viS þingmenn og ráSherra o. s. frv. Breyting sú sem gerS var áriS
1935 á úthlutunarreglum SáttmálasjóSs um stúdentastyrki átti t. d.
rót sína aS rekja til langvinnrar umbótaviSleitni margra félags-
stjórna og nefnda, sem um máliS höfSu fjallaS. Pess ber aS geta,
aS í öllum fjárhagsmálum átti félagiS bæSi fyrr og síSar hinn
bezta og öruggasta stuSningsmann og formælanda þar sem Sveinn
Björnsson sendiherra var, enda vottuSu stúdentar honum þakkir
sínar meS því aS kjósa hann heiöursfélaga löngu áSur en þessi
saga hófst.
Ymiskonar félagsskapur hefur starfaS innan vébanda Stúdenta-
félagsins eSa í sambandi viS þaS á þessum árum, auk þeirra sem
nefndir hafa veriS, en flest þau félög hafa átt sammerkt í því
aS þau hafa veriS fremur skammlíf. Glímufélag var þannig stofnaS
1926 og lifSi í tvö ár meS allmiklum blóma framan af, sálaSist
svo úr áhugaleysi, en var endurreist 1932—33, án þess aS hin
síöari tilvera þess yrSi hinni fyrri fremri. Taflfélag starfaSi 1934—
35, en helztu taflmennirnir hurfu þá heim og félagiS dó. PaS var
þó reist upp frá dauSum 1941 og hefur síSan lifaS meS allmiklum
veg. Nemendur viS LandbúnaSarháskólann hafa síöustu árin liaft
félag meö sér til aS ræSa sín sérstöku áhugamál, og hafa þær
umræSur oftar en einu sinni orSiS eins konar undirbúningur undir
almenna Stúdentafélagsfundi, þar sem landbúnaSarstúdentar og
kandídatar hafa haft framsögu.
Um mannfagnaSi félagsins er þaS merkast aS segja, aS 1931
var sá gamli siSur endurreistur aS halda Porláksblót meS til-
hlýSiIegu borShaldi á íslenzkum mat, hangikjöti, laufabrauSi,
harSfiski, hákarli og öSru hnossgæti, aS ógleymdu brennivíni og
bjór. Hefur þessum siS veriS haldiS siSan aS mestu undan-
tekningarlaust, en síSan 1939 hefur þó skort þaS sem einkum
setti svip sinn á þessar veizlur. Annan mannfagnaS, svo sem
heimspekingabollur, skógarferSir o. s. frv. er ekki ástæSa til aS
2*