Frón - 01.01.1943, Síða 41

Frón - 01.01.1943, Síða 41
Sigríður 35 Syngur yfir sundi sár og þungur kliSur. Pei! þei! þei! í blundi þér er búinn friöur! Hann sér, hvernig öldurnar vaggast og rísa á breiðu sundinu, heyrir brimniðinn við ströndina þungan og sáran. Skipið bíður ferðamannsins, sem situr við vögguna og kveður barnið sitt, drenginn sinn litla, sem á að sofa. Engjaslátturinn hefst, og Pórir fer á milli. Hann rekur hestana yfir mýrarnar og sigar og hóar. I3aS er sterkur ilmur af fjalldrapa í börðunum, og flóarnir eru hvítir af fífu. Hestarnir verða leirugir og rauðir af rauðamýri; þeir svitna og blása í sólskininu. Stundum er kalt. Pá hneppir I5órir treyjunni betur aS sér og reynir aS hraSa sér. En hann má ekki fara of hratt, þá getur snarazt af. Stundum er önnur sátan of létt, svo hann veröur aS setja stein í hana. Stundum hallast á, svo hann veit ekki sitt rjúkandi ráS, því reipin losna, og hann verSur aS fara af baki hvað eftir annað og hanga í sátunum. Stundum snarast önnur sátan af, og hann verSur aS velta hinni af líka, því hann hefir ekki krafta á aS setja upp. Hundurinn geltir, hestarnir hneggja; úti í lyngmónum ropar karrinn, og lóan kveSur bi uppi í háa lofti. Og heima á túninu bætist kapall viS kapal af brúnu mýrarheyi. Pau borSa miSdegismatinn í einhverri lautinni. l3au skiptast á um hnífana og borSa grautinn úr fötunni og lokinu, flýta sér aS vefja mataráhöldin saman og leggjast niður meS klúta yfir andlitunum, og láta líSa í brjóstiS á sér augnabliks stund, en I5órir verSur aS hafa andvara á sér, því hestarnir mega ekki velta sér. Kveldin eru hljóS og kyrrlát. Fjöllin virSast hærri eftir því sem skuggarnir lengjast, og fólkiö verður undarlega ókunnuglegt að sjá tilsýndar. Tóftin fyllist af heyi, sígur og fyllist á ný. Hrífurnar og orfin verSa manni næstum samgróin, og hestarnir verSa beztu vinir manns. Helga og SigríSur mjólka úti á hlaSinu. TaS syngur í fötunum, þegar mjólkin streymir niður í þær. SigríSur skolar sokkaplögg í læknum og slær þeim viS stein, syngjnndi. Svo gægist nóttin hálfbjört inn um opna gluggana, og andardrátturinn verSur djúpur af svefninum. SigríSur er falleg! HáriS, augun, hendurnar, allt er þaS fallegt, 3*

x

Frón

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.