Frón - 01.01.1943, Blaðsíða 50
44
Guðmundur Arnlaugsson
sennilega fjölmennasta félag Færeyinga í Höfn og nær því til
margra Færeyinga er lítiS sjá landa sína annars. Pað hefur gefið
út færeyska söngbók. Færeyingar hafa einnig söfnuS, er þeir
kenna viS Ólaf helga og nefna St. Ólafs færeyska kirkjuliS. Á
vegum hans eru haldnar færeyskar messur einu sinni í mánuSi.
1 þessu sambandi má geta þess aS Færeyingar eiga sérstakan
grafreit í einum kirkjugarSi Kaupmannahafnar. I5au félög
Færeyinga er nánast svara til aSalfélaga íslendinga í Höfn eru
Færeyingafélag og færeyska stúdentafélagiS. Færeyingafélag
hefur svipaS starfssviS og íslendingafélagiS, en hefur einlægt
lagt mikla áherzlu á erindaflutning og þjóSernisstarfsemi jafn-
framt hreinum skemmtiatriSum. ÞaS hefur sérstaka bókadeild er
gefur út bækur á færeysku. MeSal annars má nefna Jól uttan-
lendis, jólarit Færeyinga erlendis, sem keypt er af hverjum
Færeying. Færeyska stúdentafélagiS hefur líka bókaútgáfu og
stendur þar framar íslenzka stúdentafélaginu, sem á síSasta
mannsaldri hefur ekki gefiS út nema eina bók, söngbók sína.
Færeyska stúdentafélagiS hefur meSal annars gefiS út ljóS höfuS-
skálds Færeyinga, J. H. O. Djurhuuss. íþróttafélög eiga Færeying-
ar tvö, og standa bæSi meS miklum blóma. Stundar annaS þeirra
almennar íþróttir, knattspyrnu, handknattleik og reiptog, en hitt,
róSrarfélagiS, iSkar róSra eins og nafn þess bendir til. í stríSs-
byrjun átti róSrarfélagiS einn bát, smíSaSan í Færeyjum og meS
færeysku lagi. í fyrra sumar létu þeir smíSa annan eins í FriSriks-
höfn og reru honum til Hafnar, svo aS nú geta Færeyingar háS
kappróSra á færeyskum bátum. Þeir hafa líka fengiS sér naust
fyrir bátana í sumar.
SíSan sambandiS viS Færeyjar slitnaSi hefur þeim félögum
sem hér á undan voru nefnd vaxiS fiskur um hrygg, og auk þess
hafa Færeyingar tekiS upp margs konar nýbreytni í félagsmálum
sínum. Má þar fyrst nefna blaS þeirra, sem heitir Búgvin og
kemur út hálfsmánaSarlega og flytur færeyskar fréttir og greinar
um færeysk mál. Pá má geta lesstofunnar þar sem Færeyingar
geta hitzt á kvöldin og spjallaS saman eSa lesiS færeyskar bók-
menntir, því aS þar er gott safn færeyskra bóka, BæSi lesstofan
og blaSiS hafa tvímælalaust haft hina mestu þýSingu fyrir
félagslíf Færeyinga, svo aS nú geta þeir alls ekki hugsaS til þess
aS komast af án þeirra. Ekki veit ég hve mikiS landar almennt
þekkja til færeyskrar listar, enda er hún ung ennþá, en á síSasta
áratug hafa komiS fram nokkrir ungir færeyskir listamenn-