Frón - 01.01.1943, Side 53

Frón - 01.01.1943, Side 53
Félagsmál íslendinga erlendis 47 sniSið, þaö getur verið í öllum formum, allt frá upplestri og lausu hjali um efniÖ til bundinna kennslustunda eÖa fyrirlestrafunda þar sem þátttakendur hafa búið sig undir heima. Pað þarf engin stór félög að baki svona flokkum, þá er hægt aö stofna hvar sem fáeinir landar eru samankomnir. Bezt er sennilega að hafa 4—10 meðlimi, og þyrfti þá einn þeirra að geta verið leiðbeinandi. íslenzkum bókum hafa menn víðast aðgang að á söfnum og eiga oftast nokkuð sjálfir, svo að sú hlið málsins ætti ekki að valda mjög miklum erfiðleikum, enda væri sennilega ávallt hægt að útvega bækur að láni með góðri samvinnu landa í milli. Leshringa- starfsemi gerir nokkrar kröfur til þátttakenda, en ekki ætti það að hamla neinum landa ef hugur fylgir máli. I5ær vinsældir er kvöldvökurnar hafa hlotið sýna að hér er jarðvegur fvrir starfsemi sem þessa, það þarf aðeins einhverja til að ríða á vaðið. Æskileg- ast væri að félög íslendinga beittu sér fyrir stofnun slíkra flokka þar sem þau ná til og styrktu þá eftir megni. Mér virðast helztu félög íslendinga í Höfn tæpast hafa verið nægilega vakandi í menningar og þjóðernismálum okkar, en ekki veit ég hvort sú gagnrýni á erindi til félagsskapar íslendinga annarsstaðar á meginlandi Evrópu. Islendingafélagið hefur látið sér nægja að vera skemmtanafélag og Stúdentafélagið hefur verið of innilokað og miðað við stúdenta eingöngu. Ég minntist í upp- hafi á þær breytingar er á þessu hafa orðið síðan stríðið hófst. Þær eru allrar virðingar verðar og lofa góðu um framtíðina, sér- staklega kvöldvökustarfsemin. En það þarf meira til ef vel á að vera, og þá eins alveg sérstaklega. Eað þarf að leggja niður allan ríg og úlfúð milli einstakra manna og félaga. Menn verða að dæma eftir málefnum en ekki persónum og láta sér skiljast að til að fá nokkru áorkað er fyrst og fremst nauðsynlegt að standa saman. Á umræðufundi um þessi mál í félagi Hafnarstúdenta lét Jón Leifs svo um mælt í framsöguræðu, að íslenzkt þjóðerni hefði aldrei verið í meiri hættu en nú. Pótt ekki sé tekið svo djúpt í árinni, ætti engum að blandast hugur um að erfiðir tímar cru framundan og full þörf á virku samstarfi allra íslendinga hér á meginlandinu. Félagslíf íslendinga erlendis á sér glæsilega sögu, sem okkur Hafnarbúum ber sérstaklega að minnast. Um langan aldur var Höfn andleg höfuðborg íslands. Par var miðstöð sjálfstæðis- baráttunnar, þaðan komu sterkustu menningarstraumarnir heim til Islands. Pað voru ungir íslendingar í Höfn sem héldu úti

x

Frón

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.