Frón - 01.01.1943, Page 62

Frón - 01.01.1943, Page 62
56 Orðabelgur Skotlands, þar sem hann bar saman þjóösögur og kreddur í Færeyjum og Skotlandi og fann margt yfriö líkt. Hann fékkst lika við skáldskap, en hagleiksmaður á bragsmíð gat hann naumast heitið. l5að má og vera að hann hafi ekki alls staðar losað sig til fullrar hlítar við það tómahljóðs orðskrúð sem lýð- skólamönnum þykir hætta til. En hitt er víst að hann var að eðlisfari skýrleiksmaður, eins og meðal annars mátti marka af því, að hann hafði tamið sér hreina og Ijósa rithönd þar sem trauðla varð villzt á neinum staf, og hann bjó yfir einbeittum vilja til menntunar með traustum innviðum. Hann lagði mikla stund á ensku og þó enn meiri á íslenzku. Hann keypti og las íslenzkar bækur, og það mun óhætt að fullyrða að fæstir þeirra manna sem starfað hafa að málsviðreisn Færeyinga hafa sótt sér slíkan styrk úr útnorðri. Málfar sitt og stíl á færeyska tungu lagaði hann svo eftir íslenzku að sumum þótti um of. Þegar ég kynntist honum, gat hann talað íslenzku ef svo bar undir, og hafði hann þó aldrei til Islands komið. En síðar buðu ungmenna- félögin honum þangað, og skal þess getið þeim til lofs og heiðurs. Um nokkurra ára skeið hélt Símun úti barnablaði sem hét Ungu Föroyar. Eitt tölublað þess, sem einhvern veginn hafði flækzt til Hafnarfjarðar, barst mér í hendur þegar ég var 11 eða 12 ára, og mér fannst mér þá heldur hafa vaxið fiskur um hrygg á skammri stundu, þegar ég komst að því að ég var læs á erlent tungumál sem ég hafði aldrei fyrr séð. Síðan hefur mér verið hlýtt til Simunar av Skarði, og þó enn meir eftir að ég kynntist honum sjálfum. Ég var einu sinni við skólauppsögn hjá Símuni og hafði orð á því við hann á eftir hve glaðlegur hefði verið söngurinn og fjörmikill. Já, svaraði hann, það er mikill munur hjá því sem áður var. l’egar ég var skólapiltur í Pórshöfn var stundum reynt til að syngja, en það fór allt í handaskolum, söngvarnir voru á annarlegu máli, og þá var eins og haft lægi á hverri tungu. Símun var í tölu þeirra manna sem mest höfðu gert til að leysa haftið. J. H. Mót ístendinga á Jótlandi og Fjóni. Undanfarin ár hafa um 100 íslendingar dvalið víðsvegar á Jótlandi, en félagslíf meðal þeirra hefir ekkert verið annað en heimsóknir, enda er dreifbýlið allri fundarstarfsemi til fyrirstöðu.

x

Frón

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.