Frón - 01.01.1943, Síða 65
Orðabelgur
59
prentuS í miljónum eintaka, enda hafa sum þeirra komizt í tölu
hinna vinsælustu alþýðubóka. Hin margþætta alþýSufræSsla sem
Svíar halda uppi væri mikiS og merkilegt íhugunarefni handa
Islendingum, og þar er félagiS VerSandi ein þeirra stofnana sem
oss bæri mjög aS gefa gaum. J. H.
Vem ar vem i Norden.
Forlag Bonniers í Stokkhólmi gaf í fyrra út stóra handbók
um helztu menn NorSurlanda, þá sem fremstir eru taldir og
mest ber á í hverju landi, Vem ár vem i Norden (hver er hver
á NorSurlöndum). Einnig ísland liefur fengiS þar sína deild og
hana tiltölulega ríflega; bókin telur um 230 íslenzka menn en
3000 Dani og álíka marga NorSmenn. Vér eigum ekki einlægt
því aS heilsa aS Svíar meti land vort þess aS telja þaS meS í
verkum sínum og ræSum um NorSurlönd, svo aS ástæSa er til
aS votta forlaginu þakkir aS oss var ekki gleymt aS þessu
sinni. Undirbúningi verksins hefur veriS þannig hagaS, aS þeim
mönnum sem ætlaSur hefur veriS sess í verkinu, hafa veriS
sendar spurningar. Ef spurningunum var ekki svaraS í tæka tíS,
var þaS hlutverk ritstjórnarinnar aS afla vitneskju um manninn
á annan hátt, og eru þær greinar merktar stjörnu. Hvert land
mun hafa haft sinn innlenda ritstjóra, en enginn þeirra er þó
nafngreindur í formálanum nema hinn íslenzki.
Kynning þeirra manna út á viS sem helzt bera hiS íslenzka
þjóSfélag uppi, stjórnmál þess, atvinnulíf, listir, bókmenntir og
menningu, er eitt hiS þarfasta verk, svo sannarlega sem vegur
íslenzku þjóSarinnar í öSrum löndum er undir því kominn aS
hún hafi hlutgenga menn á aS skipa. Hér var tækifæri til aS
gera íslandi mikinn greiSa meS því aS benda á nöfn og verk
Þeirra manna sem þar hafa helzt lagt fram nytsamleg og merkileg
ÞjóSþrifastörf á einhverju sviSi. Bók sú sem hér er um aS ræSa
mun verSa notuS um öll NorSurlönd, í lestrarsölum bókasafna,
ritstjórnum blaSa og miklu víSar.
En allt frá því er hún kom fyrir almennings sjónir, hafa
heyrzt raddir aS ekki væri allt meS felldu um hinn íslenzka hluta
hennar, og nánari athugun hefur sýnt aS misbrestirnir eru þvílíkir
aS eigi dugir aS slíkt sé látiS liggja í þagnargildi.
Þessir eru fulltrúar íslenzkrar myndlistar í bókinni: Gunn-
laugur Blöndal, GuSmundur Einarsson frá MiSdal og RíkarSur