Frón - 01.01.1943, Blaðsíða 70
•64
Orðabelgur
■en sú stjórn sem nú fari þar meS völd sé aðeins til bráðabirgða.
A því sem tilfært er um sambandslögin sést nú samt að
höfundur kaflans hefur hlotið að vita betur, en óneitanlega hefði
önnur efnisskipun og skilmerkilegri framsetning verið heppilegri
til skilnings, ekki sizt í bók sem á að færa lesendum greinargott
yfirlit í sem allra stytztu máli.
I frásögninni um ályktun Alþingis 17. maí 1941 (sem að vísu
er dagsett i bókinni 16. maí) er það fyrst talið að ísland hafi
þá lýst yfir sjálfstæði sínu. Kemur það nokkuð kynduglega heim
við það sem áður er sagt, þar sem rætt er um sambandslögin,
að ísland sé frjálst og fullvalda ríki, enda fólst engin slík sjálf-
stæðisyfirlýsing i ályktun Alþingis.
Fleira mætti tína til, en þetta verður að nægja til að benda
á þann skort á nákvæmni sem því miður vill helzt til oft brenna
við hjá þeim sem semja handbækur af þessu sauðahúsi. l’að
virðist þó varla til of mikils mælzt, að bók sem gefin er út af
einu stærsta blaði Danmerkur og kemst í eins margra hendur
og þessi, fari svo rétt með þau fáu atriði sem frá íslandi eru
sögð, að ekki geti orkað tvímælis. Fáfræði um íslenzk efni er
hverjum útlendingi fyrirgefanleg, en hitt verður síður afsakað
að þeir sem vilja fræða almenning um íslenzk mál leiti sér ekki
nauðsynlegra heimilda eða fari svo klaufalega með þær að skrif
þeirra séu vænlegri til misskilnings en fróðleiks.
J. B.