Fréttablaðið - 25.11.2016, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.11.2016, Blaðsíða 28
Magnus Carlsen fæddist í Töns-berg í Noregi en fyrstu æviárin elti hann foreldra sína, sem báðir eru verkfræðingar, um Evrópu. Bjó hann til að mynda í eitt ár í Finnlandi og síðar í Belgíu. Faðir hans kenndi honum mannganginn þegar sá stutti var fimm ára en til að byrja með hafði Magnus meiri áhuga á að leggja þjóð- fána, höfuðborgir og íbúafjölda ríkja heimsins á minnið. Þegar Carlsen var átta ára hóf hann að sinna Caissu af alvöru. Stór- meistarinn Simen Agdestein, og fyrrverandi landsliðsmaður Nor- egs í knattspyrnu, sá að Carlsen var mikið efni og hóf að kenna honum. Norðmaðurinn varð stórmeistari á vormánuðum 2004, sá þriðji yngsti í sögunni á eftir Sergeij Karjakin og Indverjandum Parimarjan Negi. Í árslok 2010 varð Carlsen stiga- hæsti skákmaður heims en þeim titli hefur hann haldið nær sleitulaust síðan. Indverjinn Viswanathan Anand er sá eini sem hefur skákað honum á listanum um stutta stund. Carlsen hirti heimsmeistaratignina, nokkuð auðveldlega, af Anand í einvígi þeirra árið 2013 og varði titilinn ári síðar. Yngsti stórmeistarinn Líkt og Carlsen var Sergey Karjakín sannkallað undrabarn í skák. Árið 2002 var hann Ruslan Ponomariov, sem þá var átján ára, innan handar í heimsmeistaraeinvígi hans og Vasily Ivanchuk sem Ponomariov vann. Þá var Karjakín aðeins tólf ára gamall og enn landi Ponomariovs. Karjakín fæddist í Simferopol, höfuðborg Krímskaga-Úkraínu. Fyrstu æviárin tefldi hann fyrir hönd fæðingarlandsins en árið 2009 veitti Dimitry Medvedev, forseti Rússlands, honum ríkisborgararétt. Ástæðan fyrir breytingunni var sú að í Rúss- landi átti hann greiðari aðgang að þeim styrktaraðilum og þjálfun sem hann taldi sig þurfa til að bæta sig í íþróttinni. Líkt og alþekkt er hefur Vladimír Pútín gert sitt besta undan- farin ár til að gera Krím hluta af Rúss- landi. Hugsanlegt er, ef hann sigrar, að uppruni Karjakíns gæti nýst í áróðursstríði Moskvu. Í upphafi árs fór Karjakín í fyrsta skipti yfir 2.700 ELO-stig og hefur haldið sig þar síðan þá. Árið 2014 var hann aðeins einum vinningi frá því að skora Carlsen á hólm þegar hann lenti í öðru sæti, á eftir Anand, á áskorendamótinu. Þau mistök endurtóku sig ekki í mars á þessu ári þegar hann bar höfuð og herðar yfir aðra á áskorendamótinu sem fram fór í hans núverandi heimaborg, Moskvu. Skrattinn gegn ömmu sinni Vinskapur Karjakíns og stjórn- valda í Rússlandi þýðir að hann hefur getað seilst djúpt í rússneska ríkiskassann til að sækja sér fjár- magn fyrir undirbúning einvígisins. Heimsmeistaratitillinn tapaðist árið 2007 og nú skal hann sóttur til baka. Í undirbúningsteymi hans má finna elítuþjálfarana Vladimír Potkín, Júrí Dokhoian og Alexander Motylev og aserska ofurstórmeistarann Shakhriyar Mamedyarov. Fyrir hinn almenna lesanda, sem ekki hefur brennandi áhuga á skák, er það sambærilegt því að hafa Pep Guardiola, José Mourinho, Alex Ferguson og Neymar í sínu teymi þegar þú sjálfur ert Lionel Messi. Þá á eftir að minnast á Önnu Chakvet- adze en hún var um skeið ein allra besta tenniskona heims. Hún sér um þrekþjálfun stórmeistarans. Bæði Carlsen og Karjakín vita að til þess að endast klukkustundum saman við borðið þurfa bæði lík- ami og hugur að vera í toppstandi. Sjálfur ver Carlsen löngum stund- Tveir hinna yngstu bítast um tignina 120 milljóna verðlaunapotti skipt á milli Karjakín vann sér inn einvígið gegn Carlsen með því að vera hlutskarp- astur á áskorendamótinu svokall- aða. Meðal annarra á mótinu má nefna Viswanathan Anand, Fabiano Caruana, Peter Svidler og Anish Giri. Einvígið er tólf skákir og hafa keppendur 100 mínútur hvor til að leika fyrstu 40 leikina. Þá bætast 50 mínútur við og aðrar fimmtán eftir 60 leiki. Að auki bætast 30 sekúndur við í hvert sinn sem ýtt er á klukkuna. Alls má gera ráð fyrir um þremur klukkutímum á mann. Gömlu reglunni um að ríkjandi heimsmeistari haldi titlinum á jöfnu hefur verið kastað fyrir borð. Verði jafnt eftir tólf skákir verða tefldar fjórar 25 mínútna atskákir, þá tvær fimm mínútna hraðskákir og að lokum stutt „Armageddon-skák“ sé enn jafnt. Þá fær hvítur meiri tíma en svartur sigrar endi skákin með jafntefli. Auk heimsmeistara- tignarinnar hlýtur sigurvegarinn bróðurpartinn af 120 milljóna króna verðlaunafénu. Keppendur skiptast á að hafa hvítt en röðin snýst við þegar ein- vígið er hálfnað. 3. Skák - 14. nóvember Carlsen hafði juðast á áskorandanum sem hafði varist eins og hershöfð- ingi. Hér brást Karjakín bogalistin. 70. - kxf5? 70. - Hc3! (nær ómannlegur leikur) hefði haldið jafntefli. 71. ra5! Hh1 72. Hb7? Carlsen launar greiðann. 72. Hf7+ Ke4 73. Kg4 h3 74. Hf4+ vinnur nokkuð örugglega. Karjakín fann einu vörnina með lítinn tíma á klukkunni. 72. - Ha1! 73. Hb5+ kf4 74. Hxb4+ kg3 75. Hg4+ kf2 76. rc4 h3 Svarta h-peðið varð ekki stoppað nema með þráleik. 5. Skák - 17. nóvember Ótrúlegt atvik átti sér stað í 5. skákinni. Heimsmeistarinn gerði þau mistök að gleyma að skrá niður leik. Hann lék snöggt 41. kg2? til að ná tímamörkum. Leikurinn gaf Karjakín færi á h-línunni sem hann nýtti sér ekki. 41. - hxg4 42. hxg4 d4 43. Dxd4 bd5 Vélarnar segja þetta afleik en það er ómannlegt að gefa peð til að opna línu og nýta það ekki. Tölvuleikurinn 43. - Hh8 hefði sett Carlsen í þrönga stöðu. Skákinni lauk með jafntefli skömmu síðar. 8. Skák - 21. nóvember Í upphafi skákarinnar átti Karjakín áhugaverða möguleika í 19. - Dg5 en ákvað að stýra skákinni í rólegri farveg. Þegar tímamörkin nálguðust lék hann af sér í jafnri stöðu. Síðustu leikir voru 35. c5? Hxd8 36. rxd8 rxc5 37. Dd6. Hér færir 37. - Da4 svörtum umtalsvert betri stöðu. Með minna en mínútu á klukkunni lék Karjakín hins vegar 37. - Dd3?? sem Carlsen svaraði samstundis með 38. rxe6+! fxe6 39. De7+ kg8 40. Dxf6 og allt stefndi í enn eitt jafnteflið. Með hið versta að baki ákvað Carlsen að tefla áfram og berjast fyrir sigri. Eftir á að hyggja hefði hann betur látið það ógert. Í stöðunni hér að ofan lék hann skákinni í tap. 51. De6?? h5! Eini leikur- inn sem færir svörtum heilan punkt. Hvítur getur ekki varist máthótunum og a-peðinu samtímis með góðu móti. 52. h4 a2 og hvítur gafst upp. Frídagur er í dag en lokaskákirnar fara fram á morgun og hinn. Staðan var 5-4 fyrir Karjakín þegar blaðið fór í prentun. Sé aðeins horft á stigalista FIDe var Carlsen sigurstranglegri fyrir einvígið enda verið stigahæsti skákmaður heims samfleytt í rúm fimm ár. karjakín nýtur hins vegar dyggrar aðstoðar og hefur ekki látið undan. Dramatískir afleikir hafa átt sér stað og náði rússinn að nýta sér einn slíkan til að komast í forystu. FrÉTTAbLAÐIÐ/ePA um á hlaupabrettinu til að tryggja hámarkseinbeitingu. Sitjandi heimsmeistara hefur oftar en ekki verið lýst sem „svíðara“. Í því felst að hann á það til að skipta upp mönnum og þreyta andstæðinginn í krefjandi endatafli. Minnsti afleikur eða örlítil ónákvæmni mótherjans getur kostað skákina og stundum er erfitt fyrir andstæðinginn að benda á hvar hann fór út af sporinu. Skákstíll Karjakíns er að vissu leyti svipaður Carlsens. Hann forðast það að hleypa hlutum í háaloft, mætir vel undirbúinn og reynir að ná frum- kvæði í miðtaflinu. Þá er hann annál- aður fyrir að ná að halda í horfinu í erfiðum stöðum og finnur oftar en ekki bestu leiðina þegar andstæð- ingar hans brydda upp á nýjungum. Á móti kemur að hann á það til að leika af sér í tímahraki. Sjaldséð mistök magnusar Eftirvæntingin fyrir einvíginu var mikil. Um víða veröld sátu skák- áhugamenn sveittir á efri vörinni og búnir að poppa, þegar klukkan var sett af stað. Óhætt er að segja að fyrstu tvær skákirnar hafi verið vonbrigði og sú þriðja virtist stefna sömu leið. Meira að segja menn með brennandi áhuga á skák minntust á þornandi málningu. Dramatíkin hófst í þeirri þriðju eftir rúmlega fimm klukkustunda langa setu. Carlsen hafði juðast á Karjakín sem varðist fimlega í erfiðri stöðu. Tveir ónákvæmir leikir urðu til þess að staða Rússans varð næsta vonlaus en Norðmaðurinn launaði greiðann. Heima sátu áhugamenn, með „ógeðin“ mallandi við hlið sér og trúðu ekki eigin augum. Næstu skákir voru næsta rólegar en í þeirri áttundu dró til tíðinda. Þegar tímamörkin nálguðust lék Carlsen sjaldséðum afleik og sat uppi með vonlausa stöðu. Karjakin launaði hins vegar greiðann nær samstundis. Síðar í skákinni lék Carlsen af sér á ný, Karj- akín gekk á lagið og settist í bílstjóra- sæti einvígisins. Níunda skákin fór fram í fyrra- dag og þegar tímamörkin nálguðust virtist flest benda til þess að Karjakín myndi landa öðrum sigrinum í röð. Ónákvæmni undir lokin, og fimleg vörn heimsmeistarans, varð til þess að í áttunda sinn í einvíginu sættust menn á skiptan hlut. Tíunda skákin var telfd í gærkvöld en henni var ekki lokið þegar Frétta- blaðið fór í prentun. Augu skákmanna um heim allan hafa undan- farna daga einblínt á Nýju-Jórvík. Þar fer fram um þessar mundir einvígi ríkjandi heims- meistara, Magnusar Carlsen, og áskorandans frá Rússlandi, Sergeys Karjakín. Farið er að síga á síðari hlutann í viður- eigninni sem boðið hef- ur upp á óvænta afleiki, dramatík en samtímis leiðindi. Fréttablaðið fór yfir stöðu mála og ein- vígið hingað til. Fjórar lykilstöður úr einvíginu CArLSen er meÐ HvíTT á öLLum STöÐum Jóhann Óli Eiðsson johannoli@frettabladid.is Sergey Karjakín Fæddur 12. janúar 1990 Stórmeistari árið 2002, þá 12 ára og 7 mánaða eLO-stig 2.772 (hæst 2.788 í júlí 2011) Magnus Carlsen Fæddur 30. nóvember 1990 Stórmeistari árið 2004, þá tæplega 13 ára og 5 mánaða eLO-stig: 2.853 (hæst 2.882 í maí 2014) 2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r26 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð 2 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 C -E F D C 1 B 6 C -E E A 0 1 B 6 C -E D 6 4 1 B 6 C -E C 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.