Fréttablaðið - 25.11.2016, Síða 48

Fréttablaðið - 25.11.2016, Síða 48
Eftir að hafa búið í aldarfjórð­ ung í Bandaríkjunum hefur Anna María Kárdal kynnst ýmsu þegar kemur að verslunar­ deginum stóra, Svarta föstudeg­ inun (e. Black Friday). Upphaf­ lega fluttu þau hjónin út þegar eigin maður hennar hóf fram­ haldsnám í Maryland árið 1991. Stuttu síðar fluttu þau til Chi­ cago og þar hafa þau komið sér vel fyrir ásamt börnum sínum þremur. Hún segist hafa þekkt aðeins til þessa dags áður en hún flutti út. „Ég kynntist honum svo fyrst almennilega eftir að við fluttum til Chicago 1993. Sennilega hef ég bara verið fá­ tækur námsmaður fyrstu árin og því ekki náð að sinna þessu nógu vel.“ RUDDIST EKKERT Þótt Anna María hafi kynnst deginum betur eftir flutning­ inn til Chicago man hún lítið eftir fyrstu upplifunum sínum af honum en rifjar þó upp að eitthvað hafi hún fundið fyrir spennu, stressi og múgæsingi. „Þessi mikli verslunardagur hefur líka þróast gegnum árin þegar kemur að opnunartímum og tilboðum. Fyrst var opnun­ artíminn mjög snemma daginn eftir þakkargjörðarhátíðina. Þá var vaknað eldsnemma og beðið í röð eftir opnun. Ég tók tvisv­ ar sinnum þátt minnir mig þegar börnin voru ung og keypti helst leikföng. Mér er minnisstæðast að sjá fullorðið fólk ryðjast inn í verslanir og þrífa til sín það sem það hafði haft augastað á. Fyr­ irgangurinn var slíkur að aldr­ ei hef ég orðið vitni að öðru eins. Eitt augnablik hugsar maður: „Er ég að missa af einhverju?“ Verslanir stunda það að auglýsa hluti á tilboði og reynast svo vera með aðeins fimm stykki af vör­ unni. Á sama tíma eru e.t.v. 50 manns á höttunum eftir þessum fáu hlutum. Þar fáum við þessar myndir af fólki að rífast og berj­ ast um örfáa hluti. Mér tókst nú samt að kaupa það sem ég þurfti án þess að ryðjast og slást!“ NÁÐI HÁMARKI FYRIR HRUN Eftir því sem árin liðu fór dagur­ inn út í hreina vitleysu að henn­ ar sögn. Verslanir voru opnað­ ar sífellt fyrr og á endanum var farið að hafa opið eftir kvöldmat á þakkargjörðarhátíðinni sem er haldin á fimmtudeginum. „Eitt árið fóru gestir úr matarboði hjá okkur á þakkargjörðarhátíð­ inni beint út að versla. Tveimur tímum síðar hringdu þau í mig og tilkynntu að þau væru ekki einu sinni nálægt verslunarmið­ stöðinni, slíkt væri umferðar­ öngþveitið. Þetta brjálæði náði hápunkti einhvern tímann fyrir hrun. Sem betur fer eru nokkur fyrirtæki fjölskylduvænni í dag og auglýsa að þau ætli að gefa starfsfólki frí þennan dag til þess að njóta hátíðarinnar.“ Þróunin ytra virðist að sögn Önnu Maríu stefna í „Black Nov­ ember“ því mörg fyrirtæki eru farin að auglýsa tilboð í byrj­ un mánaðarins. „Skoðun mín er líka sú að með tilkomu nets­ ins og þróun verslunar þar hefur þessi dagur færst mikið yfir á mánudaginn eftir helgina eða á „Cyber­ Monday“ eins og hann er kallaður.“ TEKUR ÞVÍ RÓLEGA Dæmigerður Svartur föstudag­ ur hjá fjölskyldunni verður því með rólegra móti hjá henni. „Frá og með þakkargjörðardeginum byrjar jólaösin og við forðumst verslunarmiðstöðvar eins og heitan eldinn. Í ár vorum við með rúmlega 30 manns í mat á þakk­ argjörðardaginn. Í dag, föstu­ dag, ætlum við hins vegar bara að vera heima í rólegheitunum. Við erum með gesti frá Íslandi þannig að ef við kíkjum út verð­ ur það ekki til að versla heldur frekar til að kíkja niður í miðbæ og fá okkur heitt súkkulaði. Í raun svipar þessum degi til Þor­ láksmessu heima á Íslandi. Hver veit nema við bökum svo pipar­ kökur í kvöld.“ Mér er minnisstæðast að sjá fullorðið fólk ryðjast inn í verslanir og þrífa til sín það sem það hafði haft augastað á. Fyrirgangurinn var slíkur að aldrei hef ég orðið vitni að öðru eins. Eitt augnablik hugsar maður: Er ég að missa af einhverju? Anna María Kárdal Starri Freyr Jónsson starri@365.is Mikil læti eru jafnan í stórum verslunum og verslunarmiðstöðvum í Bandaríkjunum á Svarta föstudeginum. Anna María Kárdal hefur búið í Banda­ ríkjunum í 25 ár. Hún tekur því yfirleitt rólega á Svarta föstudeginum. ALDREI ORÐIÐ VITNI AÐ ÖÐRU EINS Hamagangurinn er mikill í stærri verslunum og verslunarmiðstöðvum í Bandaríkjunum í dag þegar Svarti föstudagurinn (e. Black Friday) er haldinn. Anna María hefur búið í Bandaríkjunum í 25 ár en tekur því yfirleitt rólega þennan daginn. Styrktarþjálfun er ekki bara góð fyrir vöðva heldur getur hún dregið úr heilabilun hjá eldra fólki. Þetta kemur fram í rannsókn sem gerð var við háskólann í Sydney. Eitt hundrað konur og karlar á aldrin­ um 55 til 68 ára tóku þátt í rann­ sókninni. Allt þetta fólk hafði væga skerðingu á minni og var í mikilli hættu á að fá heilabilun eða Alz­ heimer­ sjúkdóminn. Teygjuæfing­ ar gera ekki sama gagn fyrir heil­ ann. Þeim sem tóku þátt í rannsókn­ inni var deilt í fjóra hópa. Einn hóp­ urinn var í styrktarþjálfun undir stjórn þjálfara, annar hópurinn gerði sitjandi teygjuæfingar, sá þriðji fékk þrautir á tölvu og síðasti hópurinn horfði á heimildarmynd og þurfti að svara spurningum um myndina eftir að sýningu lauk. Hópurinn sem gerði styrktar­ æfingar með lóðum sýndi umtals­ verða breytingu á starfsemi heil­ ans. Gerð voru ýmis próf og verk­ efni meðfram æfingum. Þeir sem lyftu lóðum tvisvar í viku sýndu miklar framfarir auk þess sem þeir urðu að sjálfsögðu sterkari. Reglulegar æfingar með lóðum eru greinilega mjög góðar, ekki bara fyrir bein og vöðva, heldur einnig fyrir heilann. Einn vísinda­ mannanna sem unnu við rannsókn­ ina segist ekki geta svarað hvers vegna styrktarþjálfun sé svona góð fyrir heilann en það sé ástæða til að rannsaka það betur. Rannsóknir sem gerðar hafa verið í Kanada og í Svíþjóð á lík­ amsrækt og hreyfingu eldra fólks sýna allar jákvæða niðurstöðu hjá þeim sem hreyfa sig. Ekki bara lík­ amlega heldur einnig andlega. Vísindamenn við Karolinska í Svíþjóð hafa sýnt fram á að hreyf­ ing eins og hjólreiðar, sund, göng­ ur bæta heilsu eldra fólks til muna. Hreyfing eykur blóðflæði til heil­ ans og eykur kraft líkamsstarfsem­ innar. Eldra fólk sem hreyfir sig býr þess vegna við mun meiri lífs­ gæði en þeir sem hreyfa sig ekkert. STYRKTARÞJÁLFUN GÓÐ FYRIR HEILANN Möguleikinn á því að stöðva eða hægja á heilabilun er mun meiri ef fólk lyftir lóðum í stað þess að gera hugrænar æfingar, samkvæmt því sem fram kemur í nýrri ástralskri rannsókn. Þjálfun gerir heilanum gott. Eldra fólk ætti að stunda styrktar­ æfingar að minnsta kosti tvisvar í viku. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Svartur föstudagur af öllum kjólum og skokkum í dag Opið virka daga kl. 11–18 laugardaga kl. 11-15 30% afsláttur 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R4 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ I ∙ L Í F S S T Í L L 2 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 9 K _ N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 D -4 3 C C 1 B 6 D -4 2 9 0 1 B 6 D -4 1 5 4 1 B 6 D -4 0 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.