Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 50

Fréttablaðið - 25.11.2016, Page 50
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum að verslanir hér á landi eru farnar að halda Svarta föstudaginn (e. Black Friday) há­ tíðlegan. Fyrirbærið er vel þekkt í Bandaríkjunum en frá 1932 hefur dagurinn, sem alltaf er  haldinn daginn eftir þakkargjörðarhátíð­ ina, markað upphaf jólaverslunar þar í landi. Svarti föstudagurinn hefur lengi verið mesti verslunar­ dagur ársins í Bandaríkjunum en þá bjóða verslunareigendur vörur sínar með miklum afslætti. Að sögn Margrétar Sanders, formanns Sam­ taka verslunar og þjónustu, hefur Svartur föstudagur skotið rótum hér á landi. „Þetta varð fyrst að alvöru hér árið 2014. Í fyrra var gríðarlega mikil verslun í kring­ um Svartan föstudag eða svartan fössara eins og ég hef heyrt ein­ hverja kalla hann og líst ekki illa á. Ég fagna þessu framtaki eins og öðrum viðburðum sem eru til þess að örva verslun á Íslandi.“ KAUPHEGÐUN HEFUR BREYST Kauphegðun fólks hefur verið að breytast undanfarin ár, til dæmis vegna tilkomu netverslana. Mar­ grét segir Svartan föstudag vera frábært svar við þeirri miklu sam­ keppni sem kaupmenn hér á landi eigi í við bæði verslun í útlöndum og á netinu. „Þetta ýtir við fólki varðandi verslun hér á landi, og jólainnkaupin sérstaklega. Það er ekki bara hér á Íslandi sem versl­ unarmenn eiga í bullandi sam­ keppni við útlönd og netverslun heldur er það tilfellið í öllum versl­ unum í allri Evrópu. Það er mikil breyting á kauphegðun og þá verða verslunarmenn að koma með nýj­ ungar og þetta er ein góð nýjung sem hefur komið hér á landi,“ lýsir Margrét. LÆKKANIR AÐ UNDANFÖRNU Hún segir að fleiri góðir hlutir hafi gerst hér á landi varðandi verslun. „Vörur sem báru vörugjöld hafa lækkað gríðarlega, eins og heim­ ilistæki, bílavarahlutir og fleira. Meðal annars hafa tryggingafélög talað um að þetta hafi lækkað kostn­ að fyrir þau vegna tjóna. Og þetta hefur haft gríðarleg áhrif á vísitöl­ una en svo getur fólk rifist um það hvort vörurnar lækki nógu mikið.“ Margrét nefnir líka að það sé jákvætt fyrir verslunina að um næstu áramót falla niður tollar á flestum vörum sem koma frá ríkj­ um sem ekki eru með fríverslunar­ samning. „Það verður mikil breyt­ ing. Þetta er fjöldi vara sem verið er að fella niður tolla af um áramót­ in, meðal annars snyrtivörur, leik­ föng, bleiur og margt fleira.“ Þróunin í verslun almennt hefur verið upp á við undanfar­ ið og að sögn Margrétar hafa þeir sem fylgjast vel með verðlagi séð gríðar legar verðbreytingar. „Þetta sést svo vel þegar maður horfir á sjónvörp. Flatskjáir sem kostuðu annan handlegginn áður hafa lækkað gríðarlega á undan­ förnum árum. Það sama má segja um önnur heimilistæki og margar aðrar vörur,“ segir hún. VERSLUN BREYST TIL BATNAÐAR Margrét segir að allar uppákomur eins og Svartur föstudagur komi sér gríðarlega vel fyrir þá sem hafi ekki tækifæri til að fara eða séu ekki á leið til útlanda. „Á meðan fólk svar­ ar svona uppákomum og þær skila sér, bæði til neytenda og verslunar, er það bara jákvætt og þær halda áfram. Mér finnst svo frábært að sjá þessa miklu fjölbreytni sem er orðin í verslun hér á landi og hvað verslunin hefur breyst til batnaðar. Því meira sem Íslendingar versla hér á landi og við verslunarmenn stöndum okkur í samkeppninni því meira eykst úrvalið hér. Þannig verða til meiri tekjur fyrir ríkið af verslun og fleiri fá vinnu í geiran­ um og það skilar sér svo til þjóðar­ búsins. Það sem við sáum síðast af Svörtum föstudegi er að hann hafði áhrif á vísitöluna fyrir nóvember­ mánuð. Það er líka gleðilegt og allt­ af gott þegar vísitalan er lág og verðbólgan þá um leið,“ segir Mar­ grét glöð í bragði. Því meira sem Íslendingar versla hér á landi og við versl- unarmenn stöndum okkur í samkeppninni því meira eykst úrvalið hér. Margrét Sanders, for- maður Samtaka versl- unar og þjónustu. Lilja Björk Hauksdóttir liljabjork@365.is Svartur föstudagur hefur náð fótfestu hér á landi. NORDIC PHOTO/GETTY GOTT SVAR VIÐ SAMKEPPNINNI Formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir Svartan föstudag hafa skotið rótum hér á landi og það sé jákvætt. Slíkar uppákomur haldi áfram svo lengi sem fólk svari þeim og þær séu góðar bæði fyrir neytendur og verslunarmenn. Pantaðu á www.curvy.is eða kíktu við í verslun okkar að Fákafeni 9 Opið Alla virka daga frá kl. 11-18 og Laugardaga frá kl. 11-16 FALLEGIR KJÓLAR FYRIR FERMINGUNA Ný sending með kjólum í stærðum 14-26 Fákafeni 9, 108 RVK Sími 581-1552 | www.curvy.is SKOÐAÐU ÚRVALIÐ EÐA PANTAÐU Á WWW.CURVY.IS Afgreiðslutímar í verslun Curvy að Fákafeni 9 Alla virka daga frá kl. 11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 2 5 . N Ó V E M B E R 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R6 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ I ∙ L Í F S S T Í L L 2 5 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 1 0 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 6 D -3 E D C 1 B 6 D -3 D A 0 1 B 6 D -3 C 6 4 1 B 6 D -3 B 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 0 4 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.